Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 6
26. ágúst 2011 FÖSTUDAGUR6
..af notuðum fötum - allt nýtt..
Fatabúð Hjálpræðishersins
Garðastræti 6, Reykjavík.
Opin alla virka daga
kl. 13.00 – 18.00. EFNAHAGSMÁL Umfjöllun fjöl-miðla um fjárhagsstöðu fyrir-
tækja og stofnana hefur verið
kveikja að athugunum Kauphall-
ar Íslands sem enda með fjársekt
í um 40 prósentum tilvika, síðan í
nóvember 2008.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, kveður almennt
aðhald fjölmiðla og ýmissa ann-
arra óformlegra eftirlitsaðila
vera afar áhrifamikið á mark-
aðnum.
„Fjölmiðlar
eru klárlega
me ð a l m i k-
ilvægustu
óformlegu eft-
irl itsaði la á
markaði. Það
er gríðarlega
mikilvægt að
þeir séu mjög
gagnrýnir,“
segir Páll og bætir við að starfs-
menn fyrirtækja og skortsalar
séu einnig afar áhrifamiklir
eftirlitsaðilar. Hann vitnar þar í
nýlega bandaríska rannsókn sem
gerð var á fjárhagslegu misferli
stórra fyrirtækja og leiddi í ljós
að formlegir eftirlitsaðilar voru
sjaldnast ástæða þess að fjár-
hagslegt misferli komst upp.
„Það hefur verið mín afstaða,
og okkar, að sérstaklega fyrir
hrun hafi þetta verið veikleiki á
markaðnum,“ segir Páll.
Í tíu skiptum af 26 er umfjöll-
un fjölmiðla gefin upp sem upp-
hafleg ástæða Kauphallarinn-
ar á að beita fyrirtæki févíti.
Sektarupphæðir nema í flestum
tilvikum 1,5 milljónum króna, en
hæsta sektin var fjórar milljónir
árið 2008, til Exista hf.
Eins og áður sagði hefur Kaup-
höllin sektað 26 sinnum síðan
í nóvember 2008. Alls hafa 14
fyrirtæki verið beitt févíti, en
sex þeirra hafa tvisvar verið
sektuð og eitt, Bakkavör Group
hf., í þrígang. Umfjöllun fjöl-
miðla var í öll þrjú skiptin kveikj-
an að athugunum Kauphallarinn-
ar á fjárfestingarfélaginu.
„Þetta er í sjálfu sér mjög eði-
legt og áhugavert. Oft á tíðum
snúast þessi mál um jafnræði
fjárfesta að upplýsingum. Þá
er þetta dæmi um augljós brot
á þeirri grundvallarreglu sem
skráð félög eiga að hafa í heiðri,“
segir Páll. sunna@frettabladid.is
Sektir Kauphallarinnar síðan í nóvember 2008
Fyrirtæki Sekt í m.kr. Ástæða
2008
Nýsir hf. 1,5 Birtu ekki upplýsingar um fjárhagsvanda
Exista hf. 4 Ófullnægjandi upplýsingar birtar
Alls frá nóv. 2008 5,5
2009
Milestone ehf. 1,5 Tilkynning um drátt á greiðslum var birt of seint
Bakkavör Group hf. 2,5 Verðmótandi upplýsingar í sjónvarpsviðtali
Atorka Group hf. 1,5 Tilkynning um kyrrsetningu
Landic Property hf. 1,5 Tilkynning um drátt á greiðslum var birt of seint
Straumur-Burðarás 1,5 Rangar upplýsingar birtar
Bakkavör Group hf. 1,5 Skilmálar í lánasamningum höfðu áhrif á markaðsverð
Egla hf. 1 Upplýsingar birtar of seint
Landic Property hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Exista hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Stoðir hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Nýsir hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Atorka Group hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Milestone hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Íslensk afþreying hf. 1,5 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Kögun hf. 1,5 Ófullnægjandi upplýsingar birtar
Teymi hf. 1 Birtu ekki ársreikning opinberlega
Sektir alls 2009 24
2010
Bakkavör Group hf. 3 Komu á framfæri verðmótandi upplýsingum
Reykjaneshöfn 1,5 Vanskil og ónægar upplýsingar um greiðsluörðugleika
Sektir alls 2010 4,5
2011
Orkuveita Reykjavíkur 1,5 Ófullnægjandi upplýsingar um fjárhagsvanda
Norðurþing 1,5 Birtu ársreikning of seint
Langanesbyggð 1,5 Birtu ársreikning of seint
Vestmannaeyjabær 1,5 Birtu ársreikning of seint
Reykjavíkurborg 1,5 Birtu ársreikning of seint
Sandgerðisbær 1,5 Birtu ársreikning of seint
Sektir alls árið 2011 9
Sektir alls 43
: Sektir vegna umfjöllunar fjölmiðla
Heimild: Kauphöll Íslands
Umfjöllun fjölmiðla
leiðir til rannsókna
Umfjöllun fjölmiðla um fjárhagsstöðu fyrirtækja hefur verið kveikja að rann-
sóknum Kauphallarinnar sem enduðu í sektum í um 40 prósentum tilvika.
Fjölmiðlar eru gríðarlega mikilvægir eftirlitsaðilar, segir forstjóri Kauphallar.
Fjölmiðlar eru klárlega
einir af mikilvægustu
óformlegu eftirlitsaðilum á
markaði.
PÁLL HARÐARSON
FORSTJÓRI KAUPHALLARINNAR
PÁLL HARÐARSON
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
MEIRA AF LANDSBYGGÐINNI
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða,
meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi.
Borðar þú hrefnukjöt?
Já 65,7%
Nei 34,3%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þarf að endurskoða styrkjakerfi
í landbúnaði?
Segðu þína skoðun á visir.is
INDLAND, AP Ríkisstjórn Indlands
reynir nú að binda enda á hung-
urverkfall aðgerðasinnans Anna
Hazare, sem hefur enst í níu daga.
Ríkisstjórnin hefur kallað eftir
því að allir flokkar á þingi ræði
kröfur Hazares um löggjöf gegn
spillingu. Hann hefur sagst munu
hætta í hungurverkfallinu ef ríkis-
stjórnin leggur til skriflega að
eftirlitsaðilar verði ráðnir yfir for-
sætisráðherra og dómskerfinu.
Hazare ávarpaði stuðningsmenn
í gær og virtist heilsugóður þrátt
fyrir marga daga án matar. - þeb
Indversk stjórnvöld:
Reyna að stöðva
hungurverkfall
NÁTTÚRA Rjúpnastofninn er mun minni í upphafi
vetrar en hann hefur verið síðustu ár, samkvæmt
talningu sérfræðinga Náttúrufræðistofnunar
Íslands (NÍ).
„Talningarnar í vor sýndu okkur að það var mikil
fækkun um allt land,“ segir Ólafur Karl Nielsen,
fuglafræðingur á NÍ. Hann segir slæmt tíðarfar og
kulda í vor að auki hafa haft mikil áhrif á viðkomu
rjúpunnar, með þeim afleiðingum að stofninn sé nú
minni en hann hafi verið árum saman.
Hann vill ekki segja til um hvaða áhrif þetta muni
hafa á veiði úr stofninum. Umsögn NÍ til umhverfis-
ráðherra þar að lútandi verði afhent í september.
Almennt eru um átta ungar á hvert par af rjúpum
að hausti, og ungar því um áttatíu prósent stofnsins.
Undantekningin er helst þegar gerir hörð hret í maí
eða júní.
Vorhretin í ár voru verst á Norðurlandi og er hlut-
fall unga í stofninum á Norðausturlandi aðeins um
71 prósent. Hlutfallið hefur aðeins einu sinni verið
lægra frá því talningar hófust árið 1981. Hlutfallið
var betra í öðrum landshlutum, um eða rétt undir
áttatíu prósentum. - bj
Slæmt tíðarfar í vor hafði mikil áhrif á rjúpnastofninn samkvæmt talningu:
Stofninn mun minni en síðustu ár
SLÆM TÍÐ Kuldi og snjór í maí og júní hafði slæm áhrif á
afkomu rjúpnastofnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FANGELSISMÁL Bæjarstjórar sveitar-
félaganna fimm á Suðurnesjum
hafa sent frá sér yfirlýsingu þar
sem þeir harma ákvörðun innan-
ríkisráðherra um staðsetningu nýs
fangelsis á Hólmsheiði.
„Í tæpt ár hafa sveitarfélög á
Suðurnesjum og fleiri sveitar-
félög unnið út frá yfirlýsingum
innanríkisráðuneytisins um að
framkvæmdin yrði boðin út óháð
staðsetningu,“ segir í yfirlýsing-
unni og jafnframt að sá kostn-
aður sem yfirvöld telji sparast
með staðsetningu á Hólmsheiði
sé í besta falli óverulegur. Ekki
sé tillit tekið til þátta eins og frá-
dráttar kostnaðar Lögreglunnar á
Suðurnesjum vegna staðsetningar-
innar á Hólmsheiði, vaxandi fjölda
mála sem upp komi í Leifsstöð, né
heldur til þess að lóðin sem standi
til boða á Suðurnesjum sé tilbúin
til framkvæmda með lögnum og
vegakerfi meðan lóð á Hólmsheiði
krefjist aukinna framkvæmda.
Þess utan séu aðstæður á Suður-
nesjum með þeim hætti að fram-
kvæmd sem nemi tveimur millj-
örðum króna geti skipt sköpum
fyrir fjölda fjölskyldna á svæðinu.
„Sveitarfélögum sem hafa í góðri
trú lagt fjármuni og tíma í undir-
búning að útboðsverkefni sem ljóst
virðist að aldrei átti að bjóða út
er sýnd lítilsvirðing með þessari
ákvörðun.“ - jss
Fimm bæjarstjórar á Suðurnesjum segja innanríkisráðherra sýna lítilsvirðingu:
Harma staðsetningu fangelsis
HÓLMSHEIÐI Grunnmynd danskra
arkitekta vegna þarfagreiningar.
KJÖRKASSINN