Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 13

Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 26. ágúst 2011 13 Sölustaðir: 10 -11, Inspired í Flugstöðinni, Samkaup, Nettó, Kaskó, Fjarðarkaup, Skeljungsbúðirnar, Olís, N1, Kaupfélag V- Húnvetninga, Kaupfélag Skagfirðinga, Verslunin Vísir, Bláa lónið, Hreyfing, Krambúðin, Fiskbúðin Freyja, Melabúðin. ÍSLENSK FÆÐUBÓT BITAFISKUR -næring fyrir líkama og sál 2. grein af 3 Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Bensín óhagkvæmara en dísill Útblástur CO2 Dísilbílar eyða minna en bensínbílar og útblástur koltvísýrings úr þeim er minni. Fréttablaðið bar saman kostnað og útblástur bensín- og dísilbíls á ferð frá Reykjavík til Akureyrar. Fyrir valinu varð Toyota Avensis með 1998 rúmsentimetra vél. Dísill Bensín 56,6 kg 85,7 kg 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Kostnaður 4.122 6.313 K ró nu r Dreifikerfið breytist Gjörbylta verður dreifikerfi elds- neytis ef þessi markmið eiga að nást. Ökumenn verða að geta treyst því að þeir fái rétt eldsneyti þegar á þarf að halda. Það hve orkugjafarn- ir verða fjölbreyttir þýðir að hefð- bundnar bensínstöðvar munu heyra sögunni til og fjölorkustöðvar taka við. Á einni og sömu stöðinni verður hægt að fylla á metantankinn, taka bensín, ná í lífdísil, vetni eða hefð- bundinn dísil, eða hvern þann orku- gjafa sem þykir hagkvæmur og umhverfisvænn. „Þetta er risastórt verkefni og sveitarfélögin munu spila stærri rullu en margur gerir sér grein fyrir. Þau eru með tækin og tólin hvað skipulagsvaldið varðar, þegar kemur að því að skipuleggja að gengi að orkugjöfunum. Nú tala ég sem úthverfamóðir, en fjölskyldu- fólk með ung börn fer ekki að kaupa sér þessi ökutæki í stórum stíl fyrr en ljóst er að aðgengi sé fullnægj- andi. Fólk sem þarf að keyra börn í skóla og íþróttir tekur ekki krók á sig til að taka eldsneyti,“ segir Katrín. Hún segir þennan þátt málsins verða á forræði einkaaðila; ekki verði búið til ríkisdreifikerfi. Sveitarfélagið Árborg hefur þegar leitað til iðnaðarráðuneytisins um samstarf varðandi aðgengi að orkugjöfunum. Mistök geta verið dýrkeypt Að mörgu þarf að hyggja þegar kemur að breytingum á bílum. Sverrir veltir því upp hver fram- leiðandaábyrgð sé á breyttum bílum. Sé samið um kaup á fjölda metanbíla, eins og Reykjavíkurborg gerði nýverið, þurfi þeim að fylgja ábyrgð. Það sé lítið mál ef bílarn- ir séu framleiddir sem metanbílar, vandamálið skapist sé þeim breytt. „Mun verkstæðið ábyrgjast breytta bíla? Verður það til í sama formi eftir nokkur ár ef bíllinn bilar? Munu menn kaupa sérstakar tryggingar fyrir þessu? Allt þetta verður að skoða og móta reglur um.“ Sverrir segir að það versta sem gæti gerst væri að mistök ættu sér stað sem gerðu orkuskiptin að ólukkumáli í hugum fólks. Það hafi gerst varðandi metan í Þýskalandi og eyðilagt þann markað. Þess vegna verði að vanda til verka til að verkefnið standi til framtíðar. Á morgun verður sjónum beint nánar að þeim ávinningi sem orkuskiptin hafa í för með sér.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.