Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 26.08.2011, Qupperneq 30
6 föstudagur 26. ágúst Sjálfsfróun er eðlileg líkamsrækt É g er í óðaönn að undirbúa fyrirlestur um sjálfsfróun og forleik. Áheyr-endur mínir verða læknanemar sem sinna kynfræðslu fyrir framhalds- og grunnskólanemendur landsins. Þessi tvö efni eiga einkar vel saman því sjálfsfróun er besta og öruggasta leiðin til að kynnast sér sem kynveru og er því mikilvægur undirbúningur fyrir forleik með kynlífsfélaga. Þrátt fyrir þetta er sjaldan talað sjálfsfróun sem markvissa æfingu sem einstaklingar þurfi að stunda. Þegar ég var í námi horfði ég á bandarískt myndband um sjálfsfróun frá áttunda áratugnum. Hvort sitt myndbandið var fyrir stráka og stelpur. Í þeim var lögð áhersla á að skapa rólega og þægilega stemmingu og voru einstaklingarnir hvattir til að skoða líkama sinn og kynnast honum, bæði með snertingu og með spegli. Því næst fylgdu nærgætnar en þó nokkuð ít- arlegar leiðbeiningar á örvunarstöðunum. Sögumaðurinn lagði áherslu á að einstaklingsmunur væri á hvað hverjum og einum þætti gott. Þá vakti það sérstaka athygli mína að strákum var kennt að einblína ekki eingöngu á lim heldur einnig pung og rass. Þetta var með því merkilegra sem ég hafði séð! Ekki fyrir þær sakir að þetta væri afbrigðilegt heldur að einhver hefði viðurkennt að kynfæri karlmanna væru annað og meira en beinstíft typpi sem bæri að níðast á til sáðláts. Að sama skapi var lögð áhersla á að það gæti tekið tíma fyrir píkuna að blotna og að nudda mætti sníp, barma, spöng, rass og leggöng og ekki ein- göngu stinga einhverju inn í leggöng. Þessi fróðleikur ætti að vera skyldufræðsla fyrir hvert einasta mannsbarn. Ef allir litu á kynlíf sem eðlilega líkamsrækt trúi ég því að fólk hefði heilbrigðari væntingar og upplifanir af kynlífi. Þetta á sérstaklega við um það þegar við verður virk kyn- ferðislega. Hvor aðilinn um sig kæmi þá inn í sambandið fullur af sjálfsöryggi. Það er óeðlilegt að ætlast til þess að einhver annar eigi að geta fullnægt manni þegar maður kann það ekki sjálfur. Það er þó enn tími til að bæta úr málunum. Gefðu þér tíma til að stunda sjálfsfróun og þannig vekja hjá þér kyn- ferðislega löngun. Þetta er eitt sem oft gleymist í lang- tímasamböndum. Hinn aðilinn er gerður ábyrgur fyrir kynferðislegri fullnægingu og báðir verða pirraðir ef hún ekki hlýst. Þetta gæti því verið lausn á vandamáli margra para sem kvarta undan kryddleysi í kynlífinu. Fær mak- inn tíma og svigrúm til að sinna sér persónulega sem kynveru? Þetta er æfing sem virkar og ætti að skila sér í betra kynlífi fyrir þig sem einstakling og ykkur sem par. Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is H önnunarkeppnin Reykjavík Runway var haldin 18. ágúst og kepptu fjórir efnilegir hönnuðir um verðlaunin. Harpa Einarsdóttir, sem hannar undir nafninu Ziska, bar sigur úr býtum og hlaut að launum peningagjöf, boðskort á tískuvikuna í New York og alhliða rekstraraðstoð frá Reykjavik Runway en fyrirtækið sérhæfir sig í að koma íslenskum fatahönnuðum á markað. Föstudagur fékk að kíkja baksviðs áður en keppnin hófst og líkt og myndirnar bera vitni um var mikið um að vera enda í mörg horn að líta. - sm Reykjavík Runway þótti vel heppnuð: BRJÁLÆÐI BAKSVIÐS Beðið baksviðs Fyrirsætur í hönnun Eyglóar Lárusdóttur bíða þolinmóðar baksviðs. Eygló sótti innblástur sinn til barnabókar sem fjallaði um risaeðlur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Flott förðun Förðunarfræðingar unnu ötullega að því að farða fyrirsætur fyrir sigurvegara kvöldsins, Hörpu Einarsdóttur. Stílistar að störfum Stílistar aðstoða hönnuði við undirbúninginn. Hárfínt Hárgreiðslufólk að störfum baksviðs. Ívar Örn Hansen S: 5125429 , gsm 6154349 ivarorn@365.is Sigríður Dagný S: 5125462, gsm 8233344 sigridurdagny@365.is Sigríður Hallgríms S: 5125432, gsm 6924700 sigridurh@365.is AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI! www. ring.is / m .ring. is [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög Þ að hljómar kannski kuldalega að hátta sig ofan í rúm undir frost- marki, en engu að síður staðreynd að gisting í snjóhúsum nýtur fádæma vinsælda hvar sem hún býðst. Eftir áramót sýnir Vetur konungur oft grimm- ustu klærnar og hrúgar niður snjó á mestu snjósöfnunarstaði veraldar. Því fagna ferða- menn sem dýrka vetrar ríkið og þrá að upp- lifa eitthvað nýtt og framandi, en einnig að komast í mikla nánd við náttúruna. Vinsæl- ar snjóhúsabyggðir eru í Lapplandi, Sviss, Slóveníu og Japan, þar sem hin ægifagra Kamakura-hátíð er haldin í febrúar ár hvert í Yokote í Akitahéraði í norðaustur Japan. Mikil snjókoma er í Yokote og ekki óalgengt að falli allt að 30 sentimetra snjór yfir nótt. Snjóhúsin sjálf kallast kamakura og inni í þeim er reist altari til tilbeiðslu vatnsguðs- ins, þar sem fólk biður fyrir góðri uppskeru, öryggi fjölskyldunnar, velgengni og vernd gegn eldum. Ólýsanlega fagurt er á kvöld- in á Kamakura þegar kertaljós lýsa upp snjóhúsin, en hvarvetna ræður rómantík ríkjum á snjóhúsaslóðum og vinsælt meðal elskenda að gefast hvort öðru undir bleik- lilluðum stjörnuhimni og glitrandi frostrós- um. -þlg JANÚAR 2011 FRAMHALD Á SÍÐU 4 OFURSVALT INÚÍTALÍF Snjóhús eru með fegurstu mann- gerðu smíðum náttúrunnar, en efniviðurinn hverfull eftir veðri og vindum. Um víða veröld er hægt að upplifa andrúmsloft inúíta í hnausþykkum, listilega smíðuðum snjóhúsum, til að mat- ast, vera og njótast. Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum fyrirtækið Iceland Summer. SÍÐA 2 Skemmtileg lífs- reynsla Lilja Björk Jónasdóttir starfaði við sumarbúðir barna í Banda- ríkjunum síðasta sumar og ætlar aftur í vor.SÍÐA 6 föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011 Helicopter vekur athygli Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi Kr. TILBOÐ 117.950 FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ 15.6” Skand ínavísk hönnu narvei sla Mikil hönnu narsýn ing er haldin í Stok k- hólmi í febrú ar. Þar eru he lstu ný jungar hönnu narhei msins kynnt ar. Sýn ingin þ ykir gefa g óða m ynd af þeim straum um se m einken na ska ndinav íska hö nnun o g þang að flykkis t fólk f rá öllu m heim shornu m. Sýning arsvæ ðið er stórt o g yfirg ripsm ikið en ein nig er u sýn ingar víðs v egar um borgin a. Í ár var við ur alls ráðan di, ein s og oft áð ur end a grun nefni í skan dinaví skri framl eiðslu . Nát túrule gar á ferðir og umhve rfisvæ nar fr amleið sluaðf erðir n utu sín í b land v ið skæ ra og s terka liti. Ei nnig voru p astelli tir áb erand i og m á segj a að hvítt o g svar t sé á u ndanh aldi. Það g ætir a fturhv arfs t il eldr i tíma hjá un gum f yrirtæ kjum en me ð sam tíma framle iðsluh áttum . Efni eins o g kopa r og messi ng sáu st víð a svo ekki s é min nst á prjóna ða, he klaða og ofn a ull. Þ ægind i og mýkt voru á beran di í m ótsögn við ha rðar línur m ódern isma s em he fur ve rið vin æll undan farin á r. Skan dinaví sk hön nun er þó alltaf stílhr ein og einfa ldleik inn í f yrir- rúmi e n í ár v ar han n óven ju hlýl egur. - she EVERYTH ING MAT TERS. heimi li& hönnu n febrúar 2011 FRAM HALD Á SÍÐ U 4 Klassís k hönnu n í nýju lj ósi Ungir hönnu ðir létu ljó s sitt s kína í Stokkh ólmi. Þ eirra á með al var J aeuk Jung. SÍÐA 6 Mikill græjuk arl Ásgeir Kolbe insson útvarp smaðu r kann vel við sig í miðb ænum . SÍÐA 2 m ni g[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2011 Íslensk menningarpólitík nefnist bók eftir Bjarka Valtýs- son, doktor í boðskipta- og menningarfræðum, sem kom út á vegum Nýhil á dögunum. Í bókinni er íslensk menn- ingarstefna greind fræðilega og sett í samhengi við al- þjóðlegar menningarstefnur. Bjarki varar við ofuráherslu á hina einhæfu íslensku menningarvitund, sem oft og tíðum dragi listamenn í dilka klisjunnar. l FRAMHALD Á SÍÐU 6 DRÖGUM VARLA FLEIRI ÍSJAKA TIL PARÍSAR FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÆMI Á djúpum miðumRagna Sigurðardóttir rýnir í sýningarnar Viðtöl um dauðann og Hljóðheimar. SÍÐA 2 Útsprungnar rósir Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues. SÍÐA 2 matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011 Dekrað við bragðlaukana Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í nútímalegra og heilsusamlegra horf. SÍÐA 2 Hreinn unaður Kristín Eik Gústafsdóttir býr til fádæma flotta tertu sem allir geta spreytt sig á.SÍÐA 4 Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera. DÆMIfjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak-aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning-ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan. „Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg-ir vinir mínir komnir með börn. Hópur-inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf febrúar 2011 Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði. SÍÐA 2 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Ungir kenna fullorðnum Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur. SÍÐA 6 Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína. Gott að hitta aðra unga foreldra FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR okkar.is ze br a Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá ráðgjöfum okkar um hvar auglýsingin þín nær best til markhópsins. AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.