Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 28.09.2011, Blaðsíða 8
28. september 2011 MIÐVIKUDAGUR8 www.hei rpo ar.is • Kleppsvegi 152 • sími 777 2000 RÝMINGARSALA Kanadískir gæðapottar 1 Hvert á hálendinu vill Neyðar- línan leggja ljósleiðara og rafstreng? 2 Hvert hyggst söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir flytja með unn- usta sínum? 3 Hvað heitir sérfræðingur stjórnarráðsins í jafnrétti kynja? SVÖR 1. Í Veiðivötn og á Snjóöldu. 2. Til Noregs. 3. Hildur Jónsdóttir. STJÓRNSÝSLA Áfengis- og tóbaks- verslun ríkisins (ÁTVR) var óheim- ilt að neita að taka bjór tegund í sölu vegna trúarlegra skír skotana á umbúðum, samkvæmt áliti umboðsmanns Alþingis. Brugghúsið Ölvisholt ætlaði að selja páskabjórinn Heilagan papa síðastliðið vor, en ÁTVR neitaði að taka bjórinn í sölu þar sem for- svarsmenn verslunarinnar töldu trúarvísanir á umbúðum bjórsins brjóta í bága við almennt velsæmi. Á umbúðunum er mynd af krjúp- andi munki með kross í hendi. Umboðsmaður Alþingis telur að ÁTVR hafi ekki haft heimild til að brjóta gegn tjáningar- og atvinnu- frelsi bjórframleiðandans með því að neita að selja bjórinn. Jón E. Gunnlaugsson, fram- kvæmdastjóri Ölvisholts, segir tjónið af því að skipta um merki- miða á bjórflöskunum hafa numið nokkrum milljónum króna. Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir álit umboðsmanns snúast um lögin eins og þau hafi verið þegar málið hafi komið upp. Síðan þá hafi lögin breyst, og ÁTVR hafi skýr- ari heimildir í nýju lögunum. Hún vildi þó ekki segja til um hvort bjór í sömu eða sambærilegum umbúðum yrði hafnað á nýjan leik, en sagði hvert tilvik skoðað. „Það er í raun ótrúlegt hvern- ig ÁTVR tekur sér einhliða vald til að setja reglur án þess að hafa til þess nokkrar heimildir,“ segir Árni Helgason, lögmaður Ölvis- holts. Hann segir nýju lögin í raun festa þetta fyrirkomulag í sessi. Hann segir að það veki spurn- ingar hvaða sérfræðinga ÁTVR ætli að hafa við störf til að meta hvaða umbúðir geti sært velsæmi ákveðinna þjóðfélagshópa. - bj ÁTVR var óheimilt að brjóta gegn atvinnufrelsi: Máttu ekki neita að selja Heilagan papa UMDEILDUR MUNKUR Tjón brugghúss- ins Ölvisholts vegna ákvörðunar ÁTVR um páskabjórinn Heilagan papa nam nokkrum milljónum króna. BÓLIVÍA, AP Evo Morales, for- seti Bólivíu, ákvað á mánudag að fresta framkvæmdum við þjóðveg sem leggja átti þvert yfir þjóðgarð og sjálfstjórnarsvæði frumbyggja. Fjölmenn mótmæli hafa verið gegn þessari fyrirhuguðu vega- gerð síðan um miðjan ágúst. Til átaka hefur komið milli mótmæl- enda og lögreglu, en á sunnudag og mánudag hljóp mikil harka í þau átök. Á sunnudag ákvað lögreglan að stöðva mótmælasamkomu og handtók fjölmarga mótmælendur. Á mánudag lokuðu mótmælendur síðan bæði vegum og flugvelli til að koma í veg fyrir að lögreglan færi með fanga burt af svæðinu. Lögreglan ákvað þá að láta hundr- uð handtekinna mótmælenda lausa. Fáeinum klukkustundum síðar kom tilkynningin frá Morales for- seta um að framkvæmdum yrði frestað. Hann sagðist jafnframt ekki hafa átt neinn hlut að ákvörð- un lögreglunnar um að leysa upp mótmælin á mánudag og harmaði hvaða stefnu málið hafði tekið. Vegurinn átti að auðvelda sam- göngur milli tveggja mikilvægra svæða í landinu, í von um að það verði til að styrkja efnahagslíf landsins. - gb Umdeildri vegagerð gegnum þjóðgarð á Amasonsvæðum Bólivíu frestað: Mótmælendur höfðu betur EVO MORALES Forseti Bólivíu segist harma hversu mikil harka hefur færst í mótmælin. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Rúmlega fertugur karl- maður hefur verið ákærður fyrir líkamsárás. Manninum er gefið að sök að hafa ráðist á þáverandi sambýlis- konu sína á heimili þeirra á Akur- eyri, gripið í föt hennar, ýtt henni upp að vegg og slegið hana í and- litið þannig að hún féll í gólfið og síðan sparkað í hana. Atvikið átti sér stað í febrúar. Konan slasaðist, hlaut mar og bólgu á kinnbeini og æð sprakk í auga. Hún krefst hálfrar milljón- ar í miskabætur. - jss Rúmlega fertugur ákærður: Réðst á sam- býliskonu sína SAMGÖNGUR 828 bílar hafa farið um Bolungarvíkurgöngin hvern dag á þessu ári að meðaltali. Þetta kemur fram á vef Vega- gerðarinnar. Umferðin um göngin er tveimur prósentum meiri en um Óshlíðarveg á sama tímabili í fyrra, áður en göngin voru opnuð. Umferðin dróst lítillega saman á virkum dögum milli ára, um 0,2 prósent. Hún jókst hins vegar um níu prósent um helgar. Það telur Vegagerðin glöggt merki um að atvinnutengd umferð standi í stað en umferð í einkaerindum og umferð ferðamanna fari vaxandi. - þeb Umferðin meiri um helgar: Fleiri um göng- in en Óshlíðina BOLUNGARVÍKURGÖNG Svipað margir fara um göngin á virkum dögum og fóru um Óshlíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Það er í raun ótrúlegt hvernig ÁTVR tekur sér einhliða vald til að setja reglur án þess að hafa til þess nokkrar heimildir. ÁRNI HELGASON LÖGMAÐUR ÖLVISHOLTS STJÓRNMÁL „Það er ekki hægt að sitja undir þessu lengur, þegar maður er í góðri trú og góðri samvinnu við aðila á vinnumark- aði um góð mál til uppbygging- ar í sam félaginu, að sitja linnu- laust undir svona árásum frá þeim,“ segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðar ráðherra um ásakanir for- svarsmanna Samtaka atvinnu- lífsins (SA) um aðgerðaleysi ríkis- stjórnarinnar. Vilmundur Jósefsson, for maður SA, sagði á fundi sam takanna í gær að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við eigin yfir lýsingar í tengslum við stöðugleika sáttmálann og því væri henni ekki treystandi lengur. Katrín segir forsvarsmenn SA aldrei hafa lagst jafn lágt og með þessum ummælum sínum. „Þegar formaður SA heldur því fram að ekki hafi verið staðið við neitt í yfirlýsingu okkar frá því í vor, í tengslum við kjarasamning, þá eru það hrein og klár ósannindi og hann veit það vel.“ Katrín segir öll verkefni umræddrar yfirlýsingar ýmist vera í framkvæmd eða lokið, að undanskildum ákveðnum vega- framkvæmdum, en mótmæla listar vegna vegtolla hafi tafið þær. Hún bendir á að framkvæmd- ir séu í gangi í fjórum virkjunum sem samanlagt muni framleiða 345 megavött af orku. Það jafn- gildi hálfri Kárahnjúkavirkjun, en framleiðslugeta hennar nemur 690 MW. Virkjanirnar sem Katrín vísar til eru Búðarhálsvirkjun (80 MW) sem sé komin í framkvæmd, fimmti áfangi Hellisheiðar- virkjunar (85 MW) sem verði tek- inn í gagnið um helgina og virkj- anir við Bjarnarflag (90 MW) og Þeistareyki (90 MW), en búið sé að bjóða út hönnun á mann virkjum við þær virkjanir. „Það hentar þeim [forsvars- mönnum SA] ekki að sjá þessar staðreyndir vegna þess að þeir eru komnir á bólakaf í flokka pólitík. Þeir geta ekki unað því að eiga ekki lengur nein handbendi inni í ríkisstjórn.“ Katrín segir forsvarsmenn SA blindaða af flokkapólitík og geta ekki tínt til það sem þó er verið að gera. „Það getur ekki þjónað hags- munum þeirra umbjóðenda, ég bara trúi því ekki. Við í iðnaðar- ráðuneytinu erum í mjög góðu samstarfi við ýmis aðildarsamtök þeirra að miklum framfaramálum. Ég trúi því ekki að þeir hafi talað í þeirra nafni.“ kolbeinn@frettabladid.is Iðnaðarráðherra sakar SA um lygar og flokkapólitík Iðnaðarráðherra segir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins blindaða af flokkshagsmunum. Þeir geti ekki unað því að eiga ekki handbendi innan ríkisstjórnar. Yfirlýsingar um framkvæmdaleysi séu hrein ósannindi. ÓSÁTT Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra segir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins fara með ósannindi um framkvæmdaleysi ríkisstjórnarinnar. Það geri þeir gegn betri vitund. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.