Fréttablaðið - 28.09.2011, Síða 10
28. september 2011 MIÐVIKUDAGUR
SKAPAÐU ÞÍNA
EIGIN FRAMTÍÐ
TAKTU SKREFIÐ
Námsráðgjöf og upplýsingar:
sími 525 4444 endurmenntun.is
NÝ HAGNÝT NÁMSKEIÐSLÍNA
MEÐAL VIÐFANGSEFNA:
ÞJÓNUSTUFRÆÐI – FERLAR – SIÐFERÐI
SJÁLFSTRAUST -
SAMSKIPTAHÆFNI - VINNUGLEÐI
MARKVISS VINNUBRÖGÐ -
FRAMÚRSKARANDI ÞJÓNUSTA
KENNT ER Í ÞREMUR LOTUM
Í OKTÓBER TIL DESEMBER
ENGIN INNTÖKUSKILYRÐI
UMSÓKNARFRESTUR TIL 29. SEPTEMBER
LYKILÞÆTTIR
ÞJÓNUSTU
– MARKVISS LEIÐ
FÓLK Ágústa Ýr Sveinsdóttir raf-
virki og Sylvía Dagsdóttir raf-
eindavirki hlutu um helgina verð-
laun fyrir besta árangur á öllum
hlutum sveinsprófa í rafvirkjun
og rafeindavirkjun.
Þetta er í fyrsta skipti í sögu
rafiðnaðarins sem tvær konur ná
bestum árangri á öllum hlutum
sveinsprófanna í bæði rafvirkjun
og rafeindavirkjun á sama tíma.
Í tilkynningu frá Rafiðnaðar-
sambandi Íslands segir að þetta
sanni að rafiðngreinar höfði
ekki síður til kvenna en karla og
fagnar sambandið því að áhugi
kvenna hafi aukist á undan-
förnum árum.
Þá hafa launakannanir sam-
bandsins sýnt að rafkonur, þær
konur sem hafa sveinsbréf í raf-
iðngreinum, hafa verið með hærri
meðalheildarlaun en rafkarlar.
Á síðasta ári var munurinn rúm
tíu prósent og er þá búið að taka
tillit til þess að karlar unnu tvö-
falt meiri yfirvinnu en konur á
tímabilinu. Þá vonar sambandið
að árangur þessara ungu kvenna
verði hvatning fyrir ungt fólk að
kynna sér rafiðnnám.
Tvær stúlkur hlutu um helgina verðlaun fyrir besta árangur á sveinsprófum:
Dúxuðu á öllum hlutum prófanna
HEILBRIGÐISMÁL Sjúkratryggingar
Íslands (SÍ) hafa hafið rafræna
miðlun upplýsinga um réttinda-
stöðu sjúklinga til almennings og
veitenda heilbrigðisþjónustu. Er
þar meðal annars átt við lækna
og apóteka, bæði í gegnum þjón-
ustugáttir stofnunar innar og
með rafrænni tengingu.
Veitendur heilbrigðisþjónustu
geta nú nálgast upplýsingar
rafrænt til að ákvarða rétta
kostnaðar þátttöku sjúklinga án
frekari staðfestinga eða fram-
vísunar á afsláttarskírteinum.
Á sama tíma getur almenningur
skoðað eigin réttindi, sótt
afsláttarkort og skoðað reikn-
ingsyfirlit og endurgreiðslur
vegna heilbrigðisþjónustu.
Upplýsingum um réttinda-
stöðu vegna læknisþjónustu er
miðlað til heilbrigðisstofnana
með beinum rafrænum sam-
skiptum við upplýsingakerfi og í
þjónustusíðu SÍ, www.sjukra.is.
Meðal annars er hægt að kom-
ast að því hvort sjúklingur sé
sjúkratryggður eða ekki, hvort
hann greiði sem öryrki og hvort
hann sé með afsláttarkort.
Rafrænni tengingu hefur
verið komið á við afgreiðslukerfi
43 apóteka af þeim 63 sem starf-
rækt eru á landinu og er áætlað
að síðustu apótekin tengist fyrir
árslok. - sv
Sjúkratryggingar Íslands hafa tekið upp rafræna miðlun upplýsinga:
Mun tengja öll apótek fyrir árslok
APÓTEK Rafrænni tengingu hefur verið
komið á við afgreiðslukerfi 43 apóteka í
landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
DÚXARNIR Ágúst Ýr Sveinsdóttir rafvirki og Sylvía Dagsdóttir rafeindavirki fengu
viðurkenningu fyrri námsárangur.
ÞÝSKALAND, AP „Ég ábyrgist það
að Grikkland mun standa við allar
sínar skuldbindingar,“ sagði Georg
Papandreú, forsætisráðherra Grikk-
lands, nýkominn til Berlínar í gær-
morgun til að ræða við Angelu Mer-
kel Þýskalandskanslara.
Papandreú var þangað kominn
til að leggja áherslu á nauðsyn þess
að Þjóðverjar aðstoði Grikkland.
Hann átti meðal annars fund með
þýskum atvinnurekendum og bað þá
sérstaklega um að standa við bakið
á Grikkjum.
Frekari neyðaraðstoð við Grikki
er nú í undirbúningi, bæði hjá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
Evrópu sambandinu, til við bótar
þeirri aðstoð sem þegar hefur verið
samþykkt en virðist ekki ætla að
duga til að bjarga Grikkjum úr
skuldavanda.
Þá er G20-ríkjahópurinn með
lausn í smíðum, sem til stendur að
afgreiða á leiðtogafundi þessara
20 helstu hagkerfa heims í byrjun
nóvember. Meðal annars hafa þar
verið ræddar hugmyndir um að
afskrifa helminginn af skuldum
Grikkja. Einnig eru hugmyndir um
að Evrópusambandið efli neyðar-
sjóð sinn, líklega með því að gera
honum kleift að taka lán hjá Seðla-
banka Evrópusambandsins þannig
að sjóðurinn fái allt að 2.000 millj-
arða evra til umráða – án þess að
þurfa að auka framlög aðildarríkj-
anna enn frekar til sjóðsins.
Óvissa er enn um afdrif fyrri
björgunaraðgerða. Til dæmis hafa
hvorki finnska né hollenska þingið
enn samþykkt stækkun neyðarsjóðs
Evrópusambandsins, en veruleg
andstaða hefur verið við þau áform
á þingum beggja þessara landa.
Þá hafa AGS og EBS frestað
næstu greiðslu til Grikkja, sem á að
nema átta milljörðum evra, vegna
óvissu um að Grikkir geti staðið við
þau aðhaldsáform, sem þeir hafa
boðað. Grikkir þurfa hins vegar
nauðsynlega á þessum átta milljörð-
um að halda fyrir miðjan október
til þess að geta greitt afborganir af
lánum og laun til ríkisstarfsmanna.
Í gær skýrði Evangelos Venize-
los, fjármálaráðherra Grikklands,
frá því að fulltrúar frá AGS og EBS
kæmu til Grikklands í næstu viku
til að fara yfir stöðuna, og er búist
við að þá verði tekin ákvörðun um
að Grikkir fái þetta fé.
Í gær samþykkti gríska þing-
ið nýjan og umdeildan eignaskatt,
sem er partur af nýjustu aðhalds-
aðgerðum stjórnarinnar. Eigna-
skatturinn verður innheimtur með
rafmagnsreikningum, sem gerir
það að verkum að hægt verður að
loka fyrir rafmagnið hjá þeim sem
ekki hafa greitt skattinn.
gudsteinn@frettabladid.is
Papandreú biðlar til
þýskra stjórnvalda
Veruleg óvissa er enn um afdrif bæði nýrra og eldri aðgerða til bjargar bæði
evrunni og efnahag Grikklands. Forsætisráðherra Grikklands lofar því að
Grikkir muni standa við skuldbindingar sínar, fái þeir frekari aðstoð.
RÆÐAST VIÐ Angela Merkel og Georg Papandreú á fundi í Þýskalandi. NORDICPHOTOS/AFP