Fréttablaðið - 28.09.2011, Page 12
28. september 2011 MIÐVIKUDAGUR
Notaðu Nicky þegar
þú ert búinn!
KVIKMYNDATÓNLEIKAR FILM CONCERT
SKÚLI SVERRISSON & SÓLEY
MIÐASALA OG UPPLÝSINGAR Á RIFF.IS
HVENÆR
WHEN
HVAR
WHERE
// 28. SEPTEMBER, 21:00
// FRÍKIRKJAN
norra na husid e
-
- RIFF.IS
ALÞINGI Rannsókn er hafin á mál-
efnum Íbúðalánasjóðs annars
vegar og aðdraganda og orsökum
erfiðleika og falls sparisjóðanna
hins vegar. Sitthvor rannsóknar-
nefndin hefur verið skipuð um
málin. Sigurður Hallur Stefáns-
son, fyrrverandi héraðsdómari,
er formaður rannsóknar nefndar
um Íbúðalánasjóð, en Sigríður
Ingvarsdóttir héraðsdómari leiðir
rannsóknina um sparisjóðina.
Nefndirnar starfa á grundvelli
laga um rannsóknarnefndir sem
Alþingi samþykkti í júní. Sam-
kvæmt þeim eru rannsóknar-
nefndirnar óháðar fyrirmælum
frá öðrum í störfum sínum, þar
með talið Alþingi. Þá er þeim í
sjálfsvald sett hvaða upplýsingar
verða gerðar opinberar um störf
þeirra og eins hvernig aðgangi að
þeim gögnum sem þær afla verð-
ur háttað.
Þetta gefur nefndunum vald til
að birta gögn sem að öðru jöfnu
gildir bankaleynd um og eins að
halda opna fundi um rannsóknar-
efnin.
Meðal rannsóknarefna varð-
andi Íbúðalánasjóð, sem finna
má í þingsályktunartillögu, er að
finna viðbrögð sjóðsins við aukinni
samkeppni banka um íbúðarlán.
Þá verður hækkað lánshlutfall úr
80 í 90 prósent rannsakað, sem og
hækkuð hámarkslán, auk ýmissa
fleiri viðfangsefna.
Ragnheiður Ásta Jóhannes-
dóttir, forseti Alþingis, sagði á
blaðamannafundi í gær að nefnd-
in ætti einnig að meta hvernig
Íbúðalána sjóður hefði staðið undir
því lögbundna hlutverki sínu að
vera velferðarstofnun.
Rannsóknarnefnd um sparisjóði
á að varpa sem skýrustu ljósi á
aðdraganda og orsakir rekstrar-
erfiðleika sjóðanna. Fjár mögnun
þeirra og útlánastefna verð-
ur skoðuð, eignarhald og aukið
stofnfé, svo sitthvað sé nefnt. Þá
ber nefndinni að leggja mat á
hvort um mistök eða vanrækslu
hafi verið að ræða við framkvæmd
laga og reglna.
Ásta Ragnheiður sagði á fund-
inum að vel mætti vera að skipa
hefði átt þessar rannsóknar-
nefndir fyrr, en lagaramminn utan
um þær hefði ekki verið tilbúinn
fyrr en í sumar. Nefndirnar hafa
þegar tekið til starfa.
kolbeinn@frettabladid.is
Rannsaka ÍLS
og fall spari-
sjóðanna
Tvær rannsóknarnefndir Alþingis hafa tekið til
starfa. Fall sparisjóðanna er verkefni annarrar en
hin rannsakar starfsemi Íbúðalánasjóðs. Þær starfa
á grundvelli nýrra laga um rannsóknarnefndir.
Breytingar verða á nefndaskipan Alþingis á nýju þingi og þeim fækkar úr tólf
í átta. Ný nefnd tekur til starfa, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, en hennar
hlutverk er meðal annars að gera tillögu til Alþingis um hvenær rétt sé að
skipa rannsóknarnefndir. Þá fjallar hún um skýrslur slíkra nefnda, meðal
annars þeirra tveggja sem tekið hafa til starfa.
Önnur verkefni nefndarinnar eru tvíþætt. Annars vegar þau er lúta að
stjórnarskrármálum, málefnum forseta Íslands, Alþingis, kosningamálum og
málefnum Stjórnarráðsins. Hins vegar málefni sem nefndin tekur upp að
eigin frumkvæði og lúta að athugunum á verklagi ráðherra.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
NEFNDIRNAR KYNNTAR Nefndarmenn sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í gær,
ásamt forseta og starfsmönnum Alþingis. Sigurður situr Ástu Ragnheiði á vinstri
hönd og Sigríður á þá hægri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SVÍÞJÓÐ Tveir menn hafa verið
ákærðir fyrir hatursglæpi og
morðtilraunir í Svíþjóð. Þeir eru
taldir hafa reynt að myrða tvo
innflytjendur í Västerås í Svíþjóð
til stuðnings við aðgerðir hryðju-
verkamansins Anders Behring
Breivik í Noregi.
Mennirnir eru 25 og 26 ára.
Fórnarlömbin í málinu eru bæði
frá suðurhluta Asíu og særðust
lífshættulega. Annað fórnar-
lambanna svaf á bekk þegar
ráðist var á það, fjórum dögum
eftir árásirnar í Noregi. Tveimur
dögum síðar var ráðist á annan
mann og hann stunginn þar sem
hann bar út póst.
Samkvæmt lögregluskýrslum
öskraði annar mannanna á annað
fórnarlamb sitt að það ætti að
„fara heim“ og teiknaði haka-
kross á tösku þess. Í skýrslum
kemur einnig fram að þeir hafi
sent sín á milli skilaboð þar sem
ódæðisverkum Breiviks var hælt.
Þá sýni tölvur að þeir hafi farið
inn á síður tileinkaðar kynþátta-
hatri fyrir fyrri árásina.
Mennirnir voru handteknir
skömmu eftir seinni árásina en
neita báðir sök. - þeb
Tveir ungir menn réðust á innflytjendur í Svíþjóð:
Til stuðnings Breivik