Fréttablaðið - 28.09.2011, Side 20
MARKAÐURINN28. SEPTEMBER 2011 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
ER ÞITT FYRIRTÆKI
MEÐ SAMNING?
SAGA CLASS
Úrvalsþægindi, gott rými
og fyrsta flokks þjónusta.
Fyrirtæki sem eru með samning við Icelandair njóta
þess í hagkvæmari rekstri, betri tímanýtingu og
ánægðara starfsfólki.
Hlunnindi sem fyrirtækjasamningur veitir:
Sérstakur ferðaráðgjafi hefur umsjón með hverju
fyrirtæki.
Neyðarnúmer sem er opið allan sólarhringinn – alla
daga ársins.
Afsláttur sem býðst af fargjöldum til áfangastaða
Icelandair.
Nákvæmt viðskiptayfirlit á vefnum.
+ Allar nánari upplýsingar á www.icelandair.is/fyrirtaeki
eða sendið fyrirspurnir á fyrirtaeki@icelandair.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
5
39
19
0
4
/2
01
1
Ekki hefur verið lokið við fjármögnun á fagfjár-
festasjóðnum Björk. Hann hefur því ekki fjárfest
í neinu fyrirtæki fram til þessa.
Baldur Már Helgason sjóðsstjóri gerir ráð fyrir
að ljúka fjármögnun innan nokkurra vikna og verði
þá um einn og hálfur milljarður króna í sjóðnum.
Það er ívið lægri upphæð en stefnt var að í upphafi.
Í kjölfarið verður fjárfest í fyrsta sinn, hugsan-
lega fyrir áramót.
Bjarkarsjóðurinn var stofnaður af Auði Capi-
tal og tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur
skömmu fyrir jólin 2008 en félagið eiga þau til
helminga. Væntingar voru um að sjóðurinn myndi
fjárfesta í fimmtán til tuttugu sprotafyrirtækjum
sem byggja á auðlindum landsins og með mikla
vaxtarmöguleika á þremur
árum fyrir samtals tvo til 2,5
milljarða króna. Eink-
um hefur verið horft til
fyrir tækja á sviði endur-
nýjanlegrar orku, sjávar
og vatnsauðlinda.
Auður Capital lagði
sjóðnum til hundrað millj-
óna króna hlutafjár loforð
og hefur síðan leitað jafnt
til áhugasamra einstaklinga
og fagfjárfesta og lífeyris-
sjóða eftir innleggi í sjóðinn.
- jab
B A N K A B Ó K I N
Samanburður á
vaxtatöflum bankanna
*Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö
daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25%
Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum.
Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán
innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja
Markaðsreikningur
1,50%A
11,50% 11,45%
Vaxtaþrep
2,05%
11,35% 11,35%
Vaxtareikningur
1,35%B
11,30% 11,30%
MP Sparnaður 9,65 til
1,95%
11,15% 11,15%
PM-reikningur 11,5 til
2,05% A 11,30% 11,3%
Netreikningur
1,90% C
11,45% 11,45%
Sparnaðarreikningur
2,00%
10,35% Ekki í boði.
Fjármögnun Bjarkar ekki lokið
„Við höfum unnið að því markvisst
að upplýsa erlenda aðila um stöðu
íslenskra fyrirtækja og það hefur
skilað þessum jákvæða árangri,“
segir Finnur Oddsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptaráðs.
Atradius, annað af tveimur
stærstu erlendu greiðslu-
tryggingafélögum
heims, hefur opnað fyrir
greiðslufallstryggingar
á íslensk fyrirtæki. Við-
skipti sem þessi hafa
verið í frosti síðan í efna-
hagshruninu fyrir
þremur árum þegar
tryggingafélögin
hættu að gangast
í ábyrgðir fyrir
greiðslur frá
íslenskum fyrir-
tækjum. Það olli
inn- og útflytjendum vandræðum
og neyddust mörg þeirra til að
greiða vörusendingar fyrirfram
eða útvega aðrar og kostnaðar-
samar greiðslutryggingar.
Viðskiptaráð, Creditinfo,
íslenskir banka og tryggingafélög-
in hafa frá haustinu 2008 unnið
að því að koma aftur á eðlilegu
fyrirkomulagi greiðslufalls-
trygginga. „Við höfum lagt ríka
áherslu á að íslensk fyrirtæki
standi reglulega skil á ársreikn-
ingum og það er jákvætt
hversu mikil bragar-
bót hefur verið gerð
í þeim málum á síð-
ustu misserum.
Breytt afstaða
Atradius er fagn-
aðarefni,“ segir
Finnur. - jab
Loksins opnað fyrir
greiðslufallstryggingar
BJÖRK
GUÐMUNDSDÓTTIR
Gengi hlutabréfa í bandaríska
ljósmyndavörufyrirtækinu Kodak
hrundi um næstum einn fjórða á
mánudag eftir að stjórnendur
nýttu sér í fyrsta sinn ádráttar-
lán fyrirtækisins. Ádráttarlán
er eins konar yfirdráttarheimild
fyrir fyrirtæki. Fjárfestar hafa
áhyggjur af fjárhagsstöðu fyrir-
tækisins.
Kodak var framarlega í þróun
og framleiðslu á filmum og á
fjölda einkaleyfi í stafrænni ljós-
myndatækni. Fyrirtækið missti
hins vegar af stafrænu bylting-
unni og hefur barist í bökkum við
að komast á réttan kjöl. - jab
MYNDAVÉLUM STILLT UPP Gengi
hlutabréfa í Kodak skrapar nú botninn,
fjárfestum til lítillar gleði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Klúður hjá Kodak
Gengi hlutabréfanna hefur aldrei verið lægra
FINNUR
ODDSSON
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson
skrifar
Fjárfestarnir Magnús Ármann og Jón Scheving
Thorsteinsson eru á meðal nýrra hluthafa í Vefpress-
unni, eiganda vefmiðlanna Pressan, Eyjan, Menn.is,
Bleikt.is og tveggja netverslana en í annarri er versl-
að með hjálpartæki ástarlífsins. Tvö félög þeirra áttu
samtals rúman 24 prósenta hlut í fyrirtækinu um
síðustu áramót samkvæmt nýbirtum ársreikningi.
Hlutafé Vefpressunnar var aukið um 78 milljón-
ir króna í fyrra, bæði með sölu hlutafjár og loforð-
um um hlutafjárframlag. Samkvæmt uppgjöri Vef-
pressunnar sem birt var í síðustu viku kemur fram
að hluthöfum hafi verið fjölgað úr fjórum í ellefu.
Vefpressan var stofnuð árið 2009. Upphaflega voru
hluthafar fjórir. Tryggingafélagið VÍS átti 33 pró-
senta hlut á móti Birni Inga Hrafnssyni, fyrr-
um borgarfulltrúa Framsóknarflokksins,
Salt Investments, fjárfestingarfélagi
Róberts Wessman, fyrrverandi for-
stjóra Actavis, og Arnari Ægissyni,
framkvæmdastjóra Vefpressunnar.
Hlutafé upphaflegra eigenda
þynntist út við hlutafjáraukninguna.
VÍS á samkvæmt því átján prósenta
hlut í Vefpressunni og Björn Ingi á
rúm átján prósent í stað rúmra 26
prósenta. Jón Scheving er skráður
fyrir fjórtán prósentum í nafni JST
Holding. Magnús Ármann á rúm tíu
prósent í nafni Imons. Fimm hluthaf-
ar áttu minna en tíu prósenta hlut hver
í félaginu og eru ekki upplýsingar um
þá í uppgjöri Vefpressunnar.
Magnús Ármann með
stóran hlut í Eyjunni
Hluthöfum Vefpressunnar fjölgaði úr fjórum í ellefu í fyrra.
VÍS lækkaði hlutafjáreign sína úr 33 prósentum í átján.
BJÖRN OG MAGNÚS Hlutafé Vefpressunnar
var aukið um 78 milljónir króna í fyrra.
■ Vefpressan tapaði 8,7 milljónum króna í fyrra. Þetta
er talsverður bati á milli ára samanborið við rúmlega
þrjátíu milljóna króna tap árið 2009.
■ Fastafjármunir Vefpressunnar jukust verulega í fyrra,
fóru úr 8,5 milljónum króna árið 2009 í 53 milljónir.
Mestu munar um óefnislegar eignir, oft nefnt við-
skiptavild, sem fór úr engu í tuttugu milljónir króna
og eignarhluti í félögum sem fóru sömuleiðis úr
engu í 25 milljónir. Viðskipta-
vildin er eignarfærð í
ársreikningnum.
N O K K U R A T R I Ð I U M V E F P R E S S U N A