Fréttablaðið - 28.09.2011, Side 22
MARKAÐURINN28. SEPTEMBER 2011 MIÐVIKUDAGUR4
Ú T T E K T
Ný niðursveifla í
aðsigi á
Vesturlöndum?
Ingi Sturluson
899-8451 ingi@alnus.is
TIL LEIGU GLÆSILEGT SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
Í HÚSI VERSLUNARINNAR, KRIN
Höfum til leigu stórglæsilegt 257,3 m2
Húsnæðið skiptist í stórt funda
Einnig er sér tæknirými með kæ
eikar plankaparketi á gólfum,
sem hægt er að stilla sérstakl
tölvulagnir verið endurnýjaðar.
Afríka sunnan Sahara
5,20%
1,50%
3,80%
1,10
1,7
0,8
3,80%
2,10%
Evrusvæðið sem heild 1,60%
Önnur iðnríki 3,60%
Á
hyggjur af stöðu heims-
hagkerfisins hafa stig-
magnast síðustu vikur
og mánuði. Hag tölur
hafa leitt í ljós að hægst
hefur merkjanlega á efnahags-
batanum á Vesturlöndum og
mikill órói hefur einkennt helstu
markaði. Óttast því margir að tví-
bytna niðursveifla (eða „double
dip recession“) sé í uppsiglingu
meðal iðnríkja.
Andrúmsloftið á ársfundi Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og
Alþjóðabankans um helgina bar
þess glögglega merki að óveðurs-
ský hafa hrannast upp yfir hag-
kerfum Vesturlanda. Á árs-
fundinum voru saman komnir
fjármálaráðherrar og seðlabanka-
stjórar margra af 187 aðildar-
ríkjum sjóðsins ásamt fjölda
fræðimanna, blaðamanna og ann-
arra gesta. Utan formlegra funda
var á dagskrá á ársfundinum fjöldi
fyrirlestra og pallborðsumræðna
en meðal þátttakenda má nefna
Nóbelsverðlauna hafana í hag-
fræði; Joseph Stiglitz og George
Akerlof, fjárfestinn George Soros
og Mohammed El-Erian, fram-
kvæmdastjóra PIMCO, stærsta
fjárfestingasjóðs heims.
El-Erian lýsti raunar tilfinn-
ingum margra á fundinum í pall-
borðsumræðum um stöðu heims-
hagkerfisins þegar hann sagði:
„Ég er einhvers staðar milli þess
að vera áhyggjufullur og hrædd-
ur. Það eru þrjár krísur til stað-
ar; hagvaxtar- og atvinnuleysis-
krísa, skuldakrísa meðal þjóð-
ríkja og bankakrísa.“
AGS ÁHYGGJUFULLUR
AGS gaf fyrir fundinn út skýrsl-
una World Economic Outlook um
stöðuna í heimshagkerfinu. Þar
segir að hættulegt nýtt skeið sé
runnið upp innan heimshagkerfis-
ins þar sem efnahagsbati iðnríkja
sé í hættu. Spár stofnunarinnar
um hagvöxt bera þess merki en
þær voru endurskoðaðar talsvert
niður á við. Nú er því spáð að hag-
kerfi iðnríkja vaxi einungis um
1,6 prósent á þessu ári og 1,9 pró-
sent á því næsta. Það er almennt
ekki talinn nægilegur vöxtur til
að atvinnuleysi minnki. Áður
hafði sjóðurinn spáð 2,2 prósenta
vexti á þessu ári og 2,6 prósenta
vexti á því næsta. Spár sjóðsins
um vöxt í nýmarkaðsríkjum voru
einnig endurskoðaðar og færðar
niður á við þótt myndin þar sé allt
önnur og bjartari. Því er spáð að
hagkerfi nýmarkaðsríkja muni
vaxa um 6,4 prósent á þessu ári
og 6,1 prósent á því næsta.
Versnandi horfur eru helst
raktar til aukinnar óvissu um
skuldastöðu þjóðríkja og stöðug-
leika fjármálakerfisins. Þá hafa
veik viðbrögð stjórnvalda á evru-
svæðinu við skulda kreppunni
á svæðinu og pólitískt þrátefli í
Bandaríkjunum dregið úr trausti
á getu vestrænna stjórnvalda.
Í skýrslu AGS segir að neikvæð
áhætta sé mikil. Fari allt á versta
veg geti heims hagkerfið sogast
inn í spíral aukinnar óvissu og
áhættufælni, frosinna fjármála-
markaða, ósjálfbærrar skulda-
stöðu þjóðríkja, minnkandi eftir-
spurnar og hækkandi atvinnu-
leysis. Vægari og jafnframt
líklegri útkomur gætu einnig leitt
til langs tímabils lítils hagvaxtar.
„Það er efnahagsbati en hann
er veikur og ójafn. Áhætta hefur
aukist vegna endurgjafar lítils
hagvaxtar og erfiðrar skulda-
stöðu þjóðríkja, banka og heim-
ila. Þar að auki hefur skort pólit-
íska forystu í baráttunni við fjár-
málakreppuna. Þetta hefur leitt
til traustskrísu sem veldur efna-
hagslegum jafnt sem félagslegum
skaða,“ sagði Christine Lagarde,
framkvæmdastjóri AGS, á árs-
fundi sjóðsins. Lagarde sagði enn
vera til staðar leið út úr alþjóðlegu
fjármálakreppunni en bætti við
að leiðin væri þrengri en áður. Þá
kallaði Lagarde eftir kröftugum
viðbrögðum frá stjórn völdum um
allan heim til að tryggja hraust-
legan og sjálfbæran efnahags-
bata.
ÞÖRF Á AÐGERÐUM ÁN TAFAR
Meðal gesta á ársfundi AGS virtist
einhugur um að grípa þyrfti til
tafarlausra aðgerða til bjarg-
ar efnahagsbatanum á Vestur-
löndum. Í pallborðsumræðum
um vandræði evrusvæðisins
sagði George Soros skulda-
kreppuna á svæðinu vera al-
varlegri en fjármálakreppan
árið 2008. Hann sagði að árið
2008 hefðu stjórnvöld getað
gripið inn í eftir að kreppan
skall á en að því væri ekki að
skipta núna. „Ég vona innilega að
leiðtogar ríkja Evrópusambands-
ins átti sig á þessu sem fyrst og
grípi til aðgerða til að hemja krís-
una,“ sagði Soros.
AGS lagði á fundinum fram
áætlun um aðgerðir sem stjórn-
völd víða um heim geta gripið til.
Við bráðavandanum leggur stofn-
unin áherslu á þrjá þætti. Í fyrsta
lagi þykir mikilvægt að þau þjóð-
ríki sem glíma við háar skuldir
og fjárlagahalla leggi fram trú-
verðugar áætlanir um hvernig
koma megi ríkisfjármálum þeirra
á sjálfbæra braut án þess þó að
kippa fótunum undan efnahags-
batanum. Niðurskurður ríkis-
útgjalda og skattahækkanir draga
til skamms tíma úr eftirspurn.
Því geta aðhaldsaðgerðir í ríkis-
fjármálum hægt merkjanlega á
vexti sé gengið of hratt til verks.
AGS hefur því lagt áherslu á trú-
verðugar áætlanir sem stuðla að
vexti til skamms tíma en aðhaldi
Í skugga titrings á helstu mörkuðum fór um síðustu helgi fram
ársfundur AGS og Alþjóðabankans. Þar voru saman komnir
leiðtogar í efnahagsmálum alls staðar að úr heiminum sem
ræddu stöðu heimshagkerfisins. Magnús Þorlákur Lúðvíksson
sótti fundinn og fjallar hér um viðhorf fundarmanna.
til langs tíma. Oliver Blanchard,
aðalhagfræðingur AGS, lýsti
þessari nálgun kjarnyrt á blaða-
mannafundi í síðustu viku: „Að-
haldsaðgerðir mega ekki eiga sér
stað of hratt því þá drepa þær
hagvöxt. En þær mega heldur ekki
eiga sér stað of hægt því þá drepa
þær trúverðugleika stjórnvalda.“
Í öðru lagi beinast áhyggjur
AGS að stöðu banka og fjármála-
stofnanna, helst evrópskra, sem
margar hverjar eru berskjaldað-
ar gagnvart mögulegu greiðslu-
falli Grikklands og titringi sem
það gæti valdið. AGS leggur því
áherslu á að raunveruleg eigin-
fjárþörf banka á Vesturlöndum
verði metin og nauðsynlegt eigið
fé þeirra tryggt. Helst með fjár-
Rómanska Ameríka
Kanada
Bretland
Frakkland
Spánn
Mexíkó
Brasilía
Bandaríkin