Fréttablaðið - 28.09.2011, Page 26
KYNNING − AUGLÝSINGferðir MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20112
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462. | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
1. Scapa-flóinn við Orkneyjar
Í f lóanum er að finna fjölda skipsflaka,
f lest úr þýska flotanum úr fyrri heims-
styrjöldinni. Stærstu skipin eru Kron-
prinz Wilhelm, Markgraf og SMS König,
sem liggja á 25 metra dýpi. Þrátt fyrir
fremur lélegt skyggni, frá 2 upp í 30
metra, er staðurinn vinsæll meðal kafara
enda á fáum stöðum hægt að komast að
jafn mörgum skipsflökum í einu.
2. Bikini-kóralrifið við Marshall-eyjar
Í mörg ár var lónið við rifið skipa-
grafreitur bandaríska hersins og því úr
mörgum skipsflökum að velja fyrir kaf-
ara. Merkilegast þykir hið 300 metra
langa flugmóðurskip USS Saratoga,
sem sökkt var í fyrstu atómsprengju-
tilrauninni árið 1946.
3. Andrea Doria í Norður-Atlantshafi
Andrea Doria var ítalskt farþegaskip sem
sökkt var nærri Nantucket árið 1956. Það
liggur á 73 metra dýpi og hefur verið kall-
að Everest-fjall kafara. Aðeins reyndustu
kafarar hætta sér að skipinu enda hafa
fimmtán kafarar dáið þar.
4. Chuuk-lónið í Míkrónesíu í Kyrrahafi
Hér er að finna grafreit um sextíu
japanskra herskipa sem bandaríski
herinn sökkti árið 1944. Mörg skipin
liggja á aðeins 10 til 15 metra dýpi í
kristal tærum sjó og eru því gríðarmikil
upplifun fyrir kafara. Eitt áhugaverðasta
flakið er af Fujikawa Maru, 132 metra
löngu fragtskipi. Það er alsett litríkum
kóröllum og enn má finna þar sæbarðar
sake-flöskur.
5. Thistlegorm í Rauðahafi
við Sharm el-Sheikh
SS Thistlegorm var breskt herskip sem
sökkt var aðeins ársgömlu í október 1941
nærri Ras Muhammad í Rauðahafinu.
Skipið var að flytja vörur fyrir breska
herinn. Svæðið allt kringum Sharm el-
Sheikh þykir henta einkar vel til köfunar.
6. Umbria í Rauðahafi við Súdan
Umbria var ítalskt vöruskip sem sökkt
var árið 1940. Það liggur á 5 til 35 metra
dýpi og þykir fullkominn áfangastaður
kafara. Ef vel er gáð glittir í Fiat-bíla, vín-
flöskur og björgunarbáta.
7. Zenobia við Kýpur
Zenobia er mun nýlegra skip en þau
sem á undan eru nefnd. Bílaferjan sökk
í sinni fyrstu ferð árið 1980 vegna bilun-
ar í tölvubúnaði. 104 bílar voru um borð í
skipinu, sem er 178 metra langt, og margt
er þar að skoða.
8. Yongala í Ástralíu
Farþegagufuskipið Yongala sökk árið
1911 þegar fellibylur skall skyndilega
á. Allir um borð létust. Skipið liggur í
himnaríki kafarans í kóralrifinu mikla,
Great Barrier Reef, við Ástralíu. Skipið
er orðið að gervirifi og þar er að finna
urmul af dýralífi.
9. USS Coolidge í Vanúatú
Coolidge var lúxusskip en var notað til að
flytja hermenn Bandaríkjanna í seinni
heimsstyrjöldinni. Það sökk 1942. Skipið
er 198 metrar að lengd og auðvelt er að
komast að því þar sem það liggur á 20 til 40
metra dýpi. Margt er að skoða, til dæmis
herminjar á borð við byssur, trukka,
hjálma og gasgrímur. Þá þykir sjúkra-
stofan einkar áhugaverð, svo og snyrting
skipstjórans.
10. Oriskany í Flórída
Flugmóðurskipinu Oriskany var sökkt af
ásettu ráði árið 2004 við strönd Flórída.
Skipið er nú stærsta gervirif heims. Skipið
er 275 metra langt og var eitt sinn notað í
stríðinu við Víetnam.
Sögulegar minjar á hafsbotni
Draumur margra kafara er að kafa niður að skipsflökum enda geyma þau oft afar áhugaverða sögu. Oft og tíðum eru skipsflök á miklu dýpi en til eru
nokkur sem kafarar geta komist að. Hér eru nefnd nokkur flök á sjávarbotni víðs vegar um heiminn.
Kafarar kanna hinar fjölbreyttu minjar á skipinu USS Coolidge, sem liggur á botni Kyrrahafs nálægt eyríkinu
Vanúatú. Skipið liggur á tuttugu til fjörutíu metra dýpi og því er auðvelt að komast að því. NORDICPHOTOS/GETTY
Hópatilboðin eru vinsæll kostur fyrir vinahópa sem vilja skemmta sér saman og
oft er líka farið í vinnu- og hvata-
ferðir út á land,“ segir Bergþóra
Ragnarsdóttir í hópadeild Flug-
félagsins og segir lágmarksfjölda
í slíkar ferðir tíu manns. Ingibjörg
Dís er í sömu deild og tekur fram
að pakkaferðir henti líka fyrir fjöl-
skyldur og einstaklinga sem kaupi
sér þá flug og gistingu saman. Bæði
tilboðin gildi frá 1. september til 30.
apríl.
Áfangastaðir Flugfélags Íslands
eru fjórir hér innanlands. Þeir eru
Akureyri, Egilsstaðir, Ísafjörður og
Reykjavík. Einnig heldur félagið
uppi áætlunarferðum til Græn-
lands og Færeyja. Bergþóra segir
Færeyjar stöðugt sækja á í vinsæld-
um. „Fólk er að átta sig á að stutt er
til Færeyja og að þar er margt að sjá
og skoða. Við erum með skemmti-
ferðir þangað frá föstudegi til
mánudags í samvinnu við Atlan-
tic Airways en auðvitað er hægt að
stoppa yfir miðja vikuna ef menn
velja það.“ Ingibjörg bætir við að
verslanir í Þórshöfn séu lokaðar á
sunnudögum en hægt sé að fara í
dagsferðir út frá Þórshöfn og gaman
sé að hitta á færeyskan dansur.
„Við erum með samning við Hótel
Hafnia í miðborg Þórshafnar fram
í miðjan desember. Þar fylgir einn
kvöldverður og einn hádegisverð-
ur í tilboðinu.“
Á Akureyri eru þrjú hótel í boði.
Það er hið nýja Icelandair hótel Ak-
ureyri sem var opnað í sumar uppi
á Brekkunni og Hótel KEA og Hótel
Akureyri, sem bæði eru í miðbæn-
um. „Í fyrra buðum við upp á flug,
gistingu og leikhús og munum setja
saman slíka pakka um leið og sýn-
ingar hefjast hjá Leikfélagi Akur-
eyrar,“ lofar Bergþóra. „Annars
er fullt af afþreyingu á Akureyri
og góðum veitingastöðum,“ bætir
Ingibjörg við.
Á Egilsstöðum er Hótel Hérað í
samstarfi við Flugfélagið í pakka-
ferðum. „Við förum líka út fyrir Eg-
ilsstaði, til dæmis á Hótel Ölduna á
Seyðisfirði og gistihúsið á hinum
upprunalegu Egilsstöðum, og á Ísa-
firði er Hótel Ísafjörður aðalgistiað-
staðan okkar,“ segir Bergþóra.
„Svo má ekki gleyma höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Ingibjörg. „Borg-
in er auðvitað vinsæl hjá lands-
byggðarfólki og nýja Natura hótel-
ið, sem áður hét Hótel Loftleiðir, er
heillandi gististaður, með Spa og
dekur. Svo eru Hilton, Hótel Björk
í Brautarholti, Hótel Hafnarfjörð-
ur og f leiri í góðu samstarfi við
okkur.“
Þær stöllur taka fram að hótelin
geti að sjálfsögðu sett saman hóp-
amatseðla ef pantað sé fyrirfram og
mörg þeirra búi yfir góðri aðstöðu
fyrir hópa til að halda minni hátt-
ar teiti.
Flug og gisting saman í pakka
Skemmtum okkur innanlands og Burt úr bænum er yfirskrift pakkaferða sem Flugfélag Íslands dregur upp úr hatti sínum á haustin. Þær henta bæði
hópum og einstaklingum. Bergþóra Ragnarsdóttir og Ingibjörg Dís Gylfadóttir eru fróðar þegar kemur að þeim ævintýrum.
Bergþóra Ragnarsdóttir og Ingibjörg Dís, Gylfadóttir starfa í hópadeild Flugfélags Íslands og taka við pöntunum í síma 5703075 og á
hopadeild@flugfelag.is. MYND/STEFÁNReykjavík Natura er nýuppgert og notalegt.