Íslendingur

Tölublað

Íslendingur - 11.04.1956, Blaðsíða 1

Íslendingur - 11.04.1956, Blaðsíða 1
XLII. árg. Miðvikudagur 11. apríl 1956 15. tbl. Magnús Jánssótu Árni Jónsson. Guðmundur Jörundsson. Árni Ásbjarnarson. Frainboð SjálNæðls- flokk§in§ I Eyjiiiirdi Einkennilegasta stjórnmáladstand, sem hér hefir bekkzt Vetnr heilsar á ný Eftir einmuna tíð og hlýindi vikum saman, kólnaði í veðri upp úr páskum, og aðfaranótt síðast- liðins sunnudags gerði norðan stórhríð með mikilli veðurhæð um allt Norðurland og víðar. í Þingeyjarsýslu telja sumir veðrið eitt hið versta, er þar hefir geng- ið yfir. Snjókoma var ekki svo mikil, að samgöngur tepptust um nærliggjandi byggðir né vestur yfir heiðar. Vaðlaheiði er þó ó- fær bifreiðum síðan. Eftir að hríðinni létti á sunnu- daginn, fór veður kólnandi, og var hér 10 stiga frost í fyrrinótt. fylgjast með öllum nýjungum á sviði fiskveiða og vinnslu sjávar afurða. Fjórði maður listans, Árni Ás- bjarnarson, er meðal þekktustu og dugmestu bænda í héraðinu. Nam hann ungur búfræði og gerðist síðan bústjóri fyrir kúabúi Siglu- fjarðarbæjar, er liann rak af dugnaði og ágætri forsjá um margra ára skeið. Síðan hefir hann búið stórbúi að Kaupangi í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn í byggðum og sjávarþorpum Eyjafjarðar munu hafa fullan hug á að afla þessum vel skipaða lista flokksins meira fylgis en nokkru sinni áður. Ánægjulegur fundur Sjálfstæðismanna lir bænum og héraðinu Síðastliðið fimmtudagskvöld efndu Sjálfstæðismenn á Akurcyri cg úr Eyjafjarðarsýslu til fundar í fundasal Landsbankans. Var cal- urinn fullskipaður þegar er fundur hófst. Auk Sjálfstæðismanna og kvenna úr bænum sótti hann margt Sjálfstæðismanna úr nær- liggjandi hreppum Eyjafjarðarsýslu og víðar að úr kjördæminu, meðal annars utan úr Grímsey. Tveir þingmenn málshefjendur. Árni Jónsson tilraunastjóri, formaður Sjálfstæðisfélags Ak- ureyrar, setti fundinn og stjórn- aði honum. Bauð hann fundar- menn velkomna og síðan sérstak- lega málshefjendur á fundinum. Jónas G. Rafnar og Magnús Jónsson alþingismenn. Gaf hann Jónasi síðan orðið. Hóf hann mál sitt á því að þakka Sjálfstæð- ismönnum á Akureyri það traust, er þeir hefðu sýnt sér með því að óska eftir því, að hann yrði enn í kjöri fyrir þeirra hönd við Alþingiskosningarnar á sumri komanda,og kvaðst hann mundu gera sitt ýtrasta til þess að bregðast ekki því trausti, meðan honum væri falin þingseta fyrir kjördæmið. Þá vék hann að ýmsum þeim málum, er sérstaklega varða Ak- ureyrarbæ en leita þarf aðstoðar ríkisvaldsins og Alþingis til að koma í höfn. s. s. hafnarmálin, flugvallarmálið, frystihúsmálið, sjúkrahúsmálið o. fl. Kvaðst hann síðar mundu rekja þau mál nánar í blaði flokksins hér og því aðeins stikla á stóru um þau á fundinum. Því næst vék hann að stjórnmála- ástandinu og fyrirhuguðum kosn- ingum, er nú skyldu reknar með sérstökum hætti og óvenjulegum, og mundu þær væntanlega verða sóttar af meira kappi cn nokkru sinni áður. Framhald á 8. siðu. Fjölmennur fulltriiaráðsfundur sam- þykkti listann einróma S. 1. laugardag kom Trúnaðar- mannaráð Sjálfstæðisflokksins í Eyjafjarðarsjslu saman á fund hér á Akureyri til að ræða um og ganga frá framboðslista flokksins í sýslunni við næstu Alþingiskosn ingar. Var fundurinn óvenju vel sóttur, og ríkti þar mikill áhugi fyrir að gera hlut flokksins sem glæsilegastan í kosninguntim. — Voru allir trúnaðarráðsmenn á einu máli um, að hafa 1., 2. og 3. sæti listans skipað sömu mönn- um og við kosningarnar 1953, en skipa 4. sætið Árna Ásbjarnar- syni bónda í Kaupangi. Það sæti skipaði við síðustu kosningar Stefán Stefánsson bóndi og hrepp stjóri í Fagraskógi, er lézt á kjör- tímabilinu. Verður listinn því þannig skip- áður: 1. Magnús Jónsson, alþm. 2. Árni Jónsson tilraunastjóri, 3. Guðmundur Jörundsson út- gerðarmaður. 4. Árni Ásbjarnarson bóndi. Óþarfi mun að kynna þessr frambjóðendur fyrir Eyfirðing um. Magnús Jónsson hefir nú farið með umboð þeirra á Alþing.’ árum saman, fyrst sem varamað ur í veikindaforföllum Stefáns heitins í Fagraskógi, en síðan sem 2. þingmaður Eyfirðinga. Hefir liann þegar unnið mikið starf og giftudrj úgt að framfaramálum héraðsins á Alþingi og utan þess og áunnið sér sívaxandi traust, cr nær langt inn í raðir stjórnmála- andstæðinga. Árni Jónsson tilraunastjóri er nákunnur eyfirzkum bændum og málefnum þeirra, en hann hefir íaft á hendi tilraunastörf og leið- beiningastörf í þágu landbúnað- irins um 16 ára skeið við vaxandi vinsældir og traust. Guðmundur Jörundsson er cins og kunnugt er einn ötulasti út- gerðarmaður norðanlands og 'hefir mjög gert sér far um að Danska konungsfjölskyldan. (Sjá grein á bls. 3.)

x

Íslendingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingur
https://timarit.is/publication/675

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.