Íslendingur - 11.04.1956, Blaðsíða 2
2
ÍSLENDINGUR
Hver er mitliliðaoróðini) ?
„Vinstri“ mennirnir, sem kalla
sig svo í þjóðfélagi okkar, tala
mikið um milliliðagróðann, hvað
hann sé gífurlega hár og að milli-
liðirnir séu óþarfir eða a. m. k.
of margir. Eitt af aðal úrræðum
þeirra í efnahagsmálunum er líka
að lækka milliliðakostnaðinn, eða
jafnvel að afnema hann með öllu.
Gott væri ef það væri hægt, en
ekki rætast allir draumar og ég
held að engum óvitlausum manni
detti í hug að hægt sé að lifa í
nútíma þjóðfélagi án milliliða,
a. m. k. í verzlun. Um það verður
ekki deilt. Um hitt er hægt að
deila óendanlega lengi hvaða
verzlunarfyrirkomulag er hentug-
ast og bezt en um það ætla ég
ekki að ræða, af þeirri ofur ein-
földu ástæðu, að mér virðist
reynslan hafa kennt mér það, að
þeir sem hafa kaupgetu og eru
frjálsir að meðferð á fé sínu og
ekki eru haldnir af neinum sér-
stökum trúarbrögðum um það
hvar þeir eigi að verzla, kaupi
vöru sína þar, sem þeir fá hana
bezta og ódjrasta og þar sem þeir
mæta mestri lipurð í afgreiðslu
og öllu viðmóti. Og svona held ég
að það verði svo lengi, sem menn
hafa frjálsræði, og hver vill ekki
hafa það?
Og þá er komið að hinu raun-
verulega tilefni greinarstúfs þessa
Hver er milliliðagróðinn?
Ég vil taka 4 vörutegundir, sen>
dæmi. Að sjálfsögðu eru þetta
ekki algild dæmi og meiri álagn -
ing er á sumar aðrar vörutegund
ir, en þær, sem ég tek hér, en
imsar ástæður eru fyrir misjafn
lega hárri álagningu, sem of langl
ar að rekja, í þessu sambandi.
Dæmin, sem ég tek, eru þessi:
Sement.
Innkaupsverð 1 smál. cif...................... Ér. 405.00
Vörumagnstollur, verðtollur og söluskattur = gjöld í
ríkissjóð ..................................... — 134.88
Ómakslaun til aðalinnflytjenda ...
Uppskipun, akstur og móttaka í húsi
Hafnargjald ......................................... —
Leyfisgjald ......................................... — 2.10
Bankakostnaður....................................... — 4.20
Vextir ........................................... 5.13
Rýrnun .............................................. — 10-0l)
Kostnaðarverð í hendur verzlunar................. kr. 619.90
Álagning ....................................... — 67.45
Samtals kr. 687.41
eða álagning af útsöluverði tæplega 10%.
Timbur.
Innkaupsverð 1 standard cif...................... kr- 4.223.00
Vörumagnstollur, verðtollur og söluskattur = gjöld í
ríkissjóð ....................................... — 1.715.00
Ómakslaun til aðalinnflytjenda................... — 126.70
Uppskipun, akstur og aðgreining.................... — 500.00
Hafnargjald........................................ — 41.25
Leyfisgjald .................................... 33.00
Bankakostnaður .................................... — 66.00
Vextir ............................................ — 67.00
Rýrnun ............................................ — 76.00
Kostnaðarverð í hendur verzlunar .............. kr. 6.847.95
Álagning ..................................... — 826.95
Samtals kr. 7.674.90
eða álagning rúmlega 11% af útsöluverði.
Sfeypusfyrktarjárn.
1 smálest cif. verð............................. kr. 2.220.40
Vörumagnstollur, verðtollur, soluskattur af flutnings-
gj. (innif. cif.v.), söluskattur í tolli, söluskattur í
smásölu = gjöld í ríkissjóð..................... — 947.80
Uppskipun og heimakstur............................ — 96.00
Hafnargjald........................................ — 10.00
Leyfisgjald ....................................... — 19.25
Bankakostnaður .................................... — 36.50
Vextir ............................................ — 27.89
Kostnaðarverð í hendur verzlunar .............. kr. 3.357.84
Álagning ...................................... — 463.16
Samtals kr. 3.821.00
M iðstöðva rof na r.
1 fermetri ........................................ kr. 84.95
Vörumagnstollur, verðtollur, söluskattur í tolli, sölu-
skattur í smásölu = gjöld í ríkissjóð.............. — 21.98
Uppskipun ........................................... — 1.40
Akstur............................................... — 1.28
Hafnargjald ......................................... — 0.37
Leyfisgjald ......................................... — 0.75
Bankakostnaður ...................................... — 1.50
Umboðslaun .......................................... — 0.75
Vextir .............................................. _ 1.03
Kostnaðarverð í hendur verzlunar................... kr. 114.0L
Álagning ............................................ _ '19.79
Samtals kr. 133.80
eða tæp 15% af útsöluverði.
Þessar vörutegundir hefi ég
alið sökum þess að þær eru að-
alefnið í húsbyggingu, en hús-
næðismálin eru eitt af mestu
andamálum þjóðarinnar.
Áður en ályktanir eru dregnar
if þessum dæmum, þarf nokkurra
frekari skýringa.
Ómakslaun aðalinnflytjenda
ru í því fólgin, að verzlunarsamn
ngarnir við Rússa eru á þá lund,
ð Rússar afgreiða ekki til ein
takra verzlana, heldur til sér-
takra fyrirtækja, sem löggilt hafa
erið af ríkisstjórninni, í sam-
áði við rússneska sendiráðið í
Aeykjavík.
Sem stendur eru þessir aðilar:
H. Benediktsson & Co., J. Þor
láksson & Norðmann, Samband
ísl. samvinnufélaga, Innflutnings-
samband timburinnflytjenda í
Reykjavík og Verzlanasamband-
ið (sem er samband verzlana utan
Reykjavíkur). Og verður innflutn
ingurinn að fara fram að tilhlut-
un einhvers þessara fyrirtækja.
Segja má að þennan millilið
hefði mátt spara, ef Rússar hefðu
fengist til að afgreiða beint til
verzlananna. En þá er hætt við að
þeir hefðu sett verðið þeim mun
hærra, vegna aukinnar fyrirhafn
ar, en verðið hafa þeir að mestu
í hendi sér, vegna þess að við
verðum að kaupa af þeim vörui
fyrir allar þær vörur, er við eelj -
um þeim, og er ekki annað hag-
kvæmara en t.d. timbur og sem-
ent. Hefðum við þá orðið að
groiða Rússum þessi ómakslaun,
í stað þessum innlendu fyrirtækj-
um, sem greiða þau svo aftur, að
meira eða minna leyti í vinnu
laun og til ríkis og bæjar.
Leyfisgjald er lögákveðin
greiðsla til Innflutningsskrifstof-
unnar og ekki mun vera reksturs-
afgangur þar. Bankakostnaður er
sömuleiðis beinn kostnaður. Vext
ir þeir, sem reiknaðir eru, gera
ekki betur en nægja til að greiða
vaxtakostnað af því fé, sem í vör-
unum liggur, áður en þær koma
í hendur verzlunarinnar, því að
fyrirframgreiðslur fara fram, að
meira eða minna leyti, löngu áð-
ur en vörurnar fara í skip.
Rýrnun sú, er ég hefi reiknað
á timbri og sementi, er áreiðan-
Iega ekki of há. Rýrnun er engin
reiknuð á miðstöðvarofnum, en
þar er raunverulega um allmikla
r.'rnun að ræða, því oft brotnar
mikið í flutningi. Auk þess er um
allmikinn aukakostnað að ræða í
sambandi við afgreiðslu á mið-
stöðiar fnum vegna breytinga á
stærðum, sem ekki reiknast sér-
staklega.
Þá er að athuga álagninguna.
Hún er á sementinu tæplega 10%,
á timbrinu rúmlega 11%, á
steypustyrktarjárninu rúmlega
12% og á miðstöðvarofnunum
tæplega 15%.
Til þess að reka verzlun, þarf
einhvern til að stjórna henni, eins
og bónda (bústjóra) þarf til að
stjórna búi og menn þarf til að
afhenda vöruna og kaup þarf að
greiða þessum mönnum. En það
er fleira, sem þarf að greiða.
Húsaleigu, lóðarleigu, vátrygg-
ingu og opinber gjöld, að ó-
gleymdum vöxtum af því fé, sem
í vörunum er fast, en ársvextir
eru nú 7%%.
Ekki mun yfirleitt gerlegt að
reka verzlun, nema með allmikl-
um vörubirgðum og um sumar
vörutegundir er þannig farið, t.d.
timbur og sement, að ógerningur
er að flytja þær inn svo verð
verði hagkvæmt nema í allmiklu
magni í einu. Verða því mjög
miklar vörubirgðir á ýmsum tím-
um. Það mun því ekki of áætlað
að 3% eða allt að % álagningar-
innar fari til vaxtagreiðslu, ekki
sízt þegar tillit er tekið til þess,
að verzlunin á að greiða öll gjöld
til ríkissjóðs af vörunum, áður cn
farið er að selja þær, en meiri-
dutinn af þeim gjöldum er sölu-
skattur, sem ekki má leggja á.
Vefna má, í þessu sambandi,
rekstursútsvörin, sem verzlunin
erður að greiða í bæjarsjóð og
;em mun vera t. d. hér á Akureyri
'/2% af byggingavöruiiL
Ég sé ekki ástæðu til að lengja
nál mitt mikið, en geri ráð fyrir
.ð leitun verði á manni, sem get-
ir fært rök fyrir því að hægt sé
rð lækka þennan milliliðakostnað,
eða að komast af án hans, a.m.k.
varðandi þær 4 vörutegundir sem
hér er rætt um.
Hitt hljóta allir að reka augun
í, að gjöldin í ríkissjóðinn eru h.
u. b. tvöfalt á við álagningu
verzlunarinnar og er því ríkis
sjóðurinn langstærsti milliliður-
inn í íslenzkri innflutningsverzl-
un. Og það er á þessari milliliða-
starfsemi, sem fjármálaráðherra
þjóðarinnar byggir afkomu ríkis-
sjóðsins að verulegu leyti.
Ef hægt væri að finna leið til
að lækka þennan milliliðakostnað
væri vel farið, en hver trúir því
Miðvikudagur 11. apríl 1956
| Þórunn Jóhannsdóttir
heidur hljómleka hér
nl íöstndofl
í gær komu góðir gestir í bæ-
inn, þau feðginin Jóhann
Tryggvason og Þórunn dóttir
hans, en hún ætlar að halda pía-
nótónleika í Nýja Bió á föstu-
dagskvöldið kl. 9.
Þórunn er nú orðin 16 ára
gömul og því ekkert barn lengur.
I vetur hefir hún haldið hljóm-
leika í mörgum enskum borgum
og leikið í brezka útvarpið
(BBC), jafnframt námi sínu, en
yfirleitt er hljómlistarnemendum
þar ekki leyft að halda opinbera
hljómleika.
Þau feðginin munu aðeins
verða hér á landi um þriggja
vikna skeið en hverfa þá aftur til
London. Mun Þórunn, auk hljóm-
Ieikanna hér halda hljómleika i
Reykjavík og ef til vill víðar.
Væntanlega fýsir marga að
heyra til hinnar ungu listakonu á
föstudagskvöldið og fylgjast með
þroska hennar og framförum í
listinni.
Sólgleraugu
Gott úrval, nýkomið.
MYNDAVÉLAR
FILMUR, allar stærðir.
SJÓNAUKAR
2 stærðir.
TIL FERMINGAR-
GJAFA:
I Bafcpokar
I Svefnpokar
| Tjöld o. m. fl.
Bryuj. Sveinsson li.f.
Sími 1580.
Svartir
karlmannsskór
nýkomnir.
ÓDÝRT.
STRIGASKÓR f. börn,
stærðir 26—35.
Verð frá kr. 19.75.
Skóverzlun
M. H. Lyngdal & Co.
Hafnarstræti 104. Sími 2399.
að svokallaðir „vinstri“ menn,
sem hafa á stefnuskrá sinni sí-
aukin afskipti ríkisvaldsins og
gera síauknar kröfur á hendur
ríkisvaldinu, verði til þess?
eða rúmlega 12% álagning af útsöluverði.
Tómas Björnsson.