Íslendingur - 11.04.1956, Qupperneq 12
1-crnungarmcssa á sunnudaginn kem-
ur kl. 10.30 f.h. í Akureyrarkirkju. P.S.
Huld, 59564117 — IV—V, Kjörf.
Lokaf.
I. O. O. F. 2 — 1374138% — II.
Frá héraSslœkni. Erlendur Konráðs-
son læknir gegnir störfum fyrir héraðs-
lækni í Akureyrarhéraði frá 10. april
til 10. maí n. k.
Barnadagur Hlíjar. Kvenfélagið Hlif
hefir valið sumardaginn fyrsta til fjár-
söfnunar fyrir dagheimili sitt, Pálm-
liolt. Mun félagið að þessu sinni sem
að undanförnu hafa merkjasölu, kaffi-
sölu, bazar og bamaskemmtun þann
dag, og vill blaðið hvetja bæjarbúa til
að stuðla að góðum árangri fjáröflun-
arinnar. Að Pálmholti dvelja á sumrin
um 60 böm, en aðsókn er meiri en
unnt er að sinna. í fyrra var sótt um
dvalarleyfi fyrir allan hópinn á einum
cg sama degi.
Slysavarnafélagskonur, Akureyri. ■—
Áríðandi fundur verður í kirkjukap-
ellunni kl. 9 í kvöld. Mætið vel. —
Stjómin.
Hjúskapur. Ungfrú Þóra Jóna Guð-
jónsdóttir og Agnar B. Óskarsson Rán-
argötu 2, Akureyri. — Ungfrú Sigríð-
ur Einarsdóttir Siglufirði og Sigurður
Bárðarson bifvélavirki Laxagötu 8, Ak-
ureyri.
Hjúskapur. Á páskadag vorti gefin
saman í hjónaband ungfrú Guðný Þór-
halla Pálsdóttir og Baldur Sveinsson
húsasmíðanemi. Heimili brúðhjónanna
er að Oddagötu 7, Akureyri. — Þann
6. þ. m. voru gefin saman ungfrú Guð-
rún Ingveldur Benediktsdóttir og Ililm-
ar Símonarson togarasjómaður. Heim-
ili Skipagata 5.
St. Isajold-Fjallkonan nr. 1 heldur
fund í Skjaldborg mánudag 16. marz
n.k. Fundarefni: Vígsla nýliða. Inn-
setning embættismanna. Bögglauppboð.
Dans. Félagar fjölsækið og komið með
böggla. Eldri embætitsmenn 6tjórna
fundi. — Æðstitemplar.
Fíladcljia Lundargötu 12. Miðviku-
dag saumafundur kl. 6 e.h. Fimmtudag
kveðjusamkoma fyrir Ellen Edlund kl.
8.30 e.h. Sunnudag sunnudagaskóli kl.
1.30 e.h. og almenn samkoma kl. 8.30
e.h. Söngur og hljóðfærasláttur. Allir
velkomnir.
Dánardœgur. Nýlega er látinn í Fjórð-
ungssjúkrahúsinu Skafti Eiríksson,
Brckkugötu 29, er lengi var starfsmað-
ur á Gefjun, og ekkjan Rósa Guð-
mundsdóttir, Brekkugötu 2, fyrrum
húsfreyja að Botni í Eyjafirði.
Dánardœgur. Nýlega er látinn í
sjúkrahúsi Húsavíkur Björn Sigtryggs-
son fyrrum bóndi á Brún í Reykjadal.
Dánardœgur. Síðastliðinn laugardag
lézt í Fjórðungssjúkrahúsinu frú Þór-
dís Stefánsdóttir Aðalstræti 54 hér í
bæ, ekkja Davíðs Sigurðssonar tré-
smíðameistara. Hún varð 86 ára göm-
ul.
Togararnir. Harðbakur kom af veið-
um 3. apríl. Landaði 120 tonnum af
saltfiski og 10 tonnum af nýjum fiski.
Fór á veiðar 4. apríl. — Svalbakur kom
af veiðum 4. apríl. Landaði 111 tonn-
um af saltfiski og 70 tonnum af nýjum
fiski. Fór á veiðar 5. apríl. — Kaldbak-
ur kom af veiðum 5. apríl. Landaði
108 tonnum af saltfiski og 5 tonnum af
nýjum fiski. Fór á veiðar 6. apríl. —
Slétlbakur kom af veiðum 6. apríl.
Landaði 89 tonnum af saltfiski. Fór á
veiðar 7. apríl.
mgttr
Miðvikudagur 11. apríl 1956
Framlioi Sjdlfnsiismanaa
Verið er nú að undirbúa íram-
boð flokka og „bandalaga“ í
kjördæmum, og er Sjálfstæðis-
flokkurinn kominn lengst á veg í
því efni, enda á hann ekki við þá
erfiðleika að etja í þeim efnum,
er nú hrjá hinar nýju flokksbrota
samsteypur og hræðslubandalög,
sem þurfa að fórna öðrum hverj-
um frambjóðanda frá síðustu
kosningum, en eins og kunnugt
er, eiga hinir fyrri frambjóðend-
ur Framsóknar- og Alþýðuflokks-
ins að ganga úr rúmi hvor fyrir
öðrum í kjördæmunum.
Hjá Sjálfstæðisflokknum eru
þessi framboð þegar ákveðin:
Akureyri: Jónas G. Rafnar al-
þingismaður.
ísafjörður: Kjartan J. Jóhanns-
son alþm.
Hafnarfjörður: Ingólfur Flyg-
enring alþm.
Vestmannaeyjar: Jóhann Þ.
Jósefsson alþm.
N.-Þingeyjarsýsla: Barði Frið-
riksson lögfr.
A.-Húnavatnssýsla: Jón Pálma
son alþrn.
V.-Húnavatnssýsla: Jón G. ís-
berg lögfr.
Dalasýsla: Friðjón Þórðarson
sýslumaður.
Snæfellsness- og Hnappadals-
sýsla: Sigurður Ágústsson alþm.
V estur-Skaf taf ellssýsla: J ón
Kjartansson alþm.
Rangárvallasýsla: (listi) Ingólf-
ur Jónsson ráðherra, Sigurjón
Sigurðsson bóndi, Guðmundur
Erlendsson hreppstj. og sr. Sig-
urður Haukdal.
Árnessýsla: (listi) Sigurður Óli
Ólafsson alþm., Steinþór Gestsson
bóndi Hæli, Sveinn Þórðarson
skólameistari Laugarvatni og
Sveinn Skúlason bóndi Bræðra-
65 ára
Ánnáll íslendings
Flokkur þeirra fleygir
langa nafninu og nefnist
nú
Alþýðubandalagið.
Flokkur íslenzkra kommúnista,
sem síðustu árin hefir borið ó-
þægilega langt nafn (Sameining-
arflokkur alþýðu — Sósíalista-
flokkurinn), hefir nú varpað því
fyrir borð og tekið upp nýtt heiti
„Alþýðubandalagið“. Þessi nafn-
breyting, sem viðburðirnir í
Moskvu gáfu strax tilefni til, er
nú fóðruð með því, að flokkurinn
Enn breyta kommúnistar um
nafn á flokki sínum
hefir innbyrt Hannibal Valdi-
marsson og Málfundafélag jafn-
aðarmanna í Reykjavík, sem
Bragi Sigurjónsson sagði sig úr,
þegar annað kosningabandalag,
„Þriðja aflið“, var stofnað í vet-
ur.
í aðalstjórn A.-bandalagsins
(menn rugli því ekki saman við
Atlantshafsbandalagið) eru:
Hannibal Valdimarsson, formað-
ur, Einar Olgeirsson, varaform.,
og Alfreð Gíslason, læknir, ritari.
Kommúnistar munu nú bjóða
fram til Alþingis undir hinu nýja
nafni í von um að geta villl á uér
heimildir.
<06»6»0000000»00<0ft6»0»
M A R Z :
Fangar að Litla-IIrauni gera uppþot
að næturlagi, brjótast út úr klelum og
ná hælinu á vald sitt, svo að fangaverð-
ir fengu ekki við ráðið. Lögreglusveit
úr Reykjavík fer austur og skakkar
leikinn. Engin meiðsli urðu á mönn-
um ,og enginn fangi strauk.
□
Gunnlaugur Briem verkfræðingur
skipaður póst- og símamálastjóri.
□
Stórbruni verður á Keflavíkurflug-
velli, er stórt íshús í smíðum, 800—
lOOOferm. brennur. Stóðu aðeins út-
veggir uppi, er eldurinn varð slökktur.
□
Færeyskur kútter tekinn í landhelgi
og sektaður um 7400 kr. Mælitæki
hans voru í ólagi, en hann var að hand-
færaveiðum, er hann var tekinn.
□
Nýtt farþegaskip „Akraborg" hefur
ferðir milli Akraness, Borgamess og
Reykjavíkur.
□
Stórtjón verður af eldi í húsinu Tún-
götu 41 Siglufirði, en það var eign
Þórodds Guðmundssonar útgm. Var
búið á neðri hæð, og tókst að bjarga
mestu innbúi þaðan, en mikið af út-
gerðarvörum á efri hæð eyðilagðist.
□
APRÍL :
Ungur sjómaður, Jón Bjartmar Sig-
urgeirsson frá Gilsárvöllum í Borgar
firði (eystra) drukknar í Vestmanna
eyjahöfn aðfaranótt annars páskadags
Ilann var þar háseti á bát, og er ekki
kunnugt um tildrög slyssins.
□
Ungur maður frá Þórshöfn finnst
látinn í herbergi í Reykjavík á föstu-
daginn langa, en þar var hann gestur
kunningja síns, sem ekki var heima
nóttina áður. Rannsókn leiddi í ljós,
að dauða mannsins hafi ekki „borið
Hansa h.f. framleiðir mi hurðir og
hillur auk sóltjaldanna
Um helgina síðustu var einn af
eigendum Hansa h.f. í Reykjavík,
Ebenezer Þ. Ásgeirsson, staddur
hér i bænum. Sýndi hann þá tíð-
indamönnum blaðanna sýnishorn
af framleiðslu fyrirtækisins, sem
hefir verið aukin og færð inn á
fleiri svið en áður.
Hansa h.f. er stofnað fyrir 9
árum, og hefir fyrirtækið allt
fram að þessu eingöngu framleitt
sólartjöld (rimlatjöld) fyrir
glugga, en sú framleiðsla er löngu
kunn um allt land. Nú hefir
Hansa endurbætt þá framleiðslu
á ýmsan hátt og hefir nú yfir
mörgum litum og munstrum að
ráða, bæði úr álmi (aluminium)
og plasti. Festing tjaldanna er
einnig gerð einfaldari og hag-
kvæmari. Þá er Hansa einnig að
hefja framleiðslu á álmhurðum
(rennihurðum), sem farið er að
panta í ný hús milli samliggjandi
herbergja og ennfremur bókahill-
ur, er auka má hillurn í eftir vild
og hækka og lækka eftir þörfum.
Loks framleiðir Hansa sérstaka
gerð af gluggaköppum, sem mikil
eftirspurn er eftir í Reykjavík. Á
fyrirtækið allmikið efni fyrir-
liggjandi, og gerði Ebenezer ráð
fyrir, að framleiðsluvörur þess
myndu ekki hækka í verði meðan
þær birgðir endast.
Sýnishorn af framleiðsluvörum
Hansa h.f. geta menn séð þessa
daga í s'ningarglugga við Hafn-
arstræti 106.
Umboðsmaður Hansa h.f. hér í
bæ er Þórður V. Sveinsson.
___*______
Karl Friðriksson
yfirverkstjóri Vegagerðar rík-
isins á Norðurlandi átti 65 ára
afmæli s. 1. páskadag.
Karl er fæddur í Víðidal í
Húnavatnssýslu, kominn af hún-
vetnskum bændaættum, og átti
heima þar vestra fram yfir þrít-
ugsaldur. Ungur nam hann tré-
smíðaiðn og stundaði eftir það
húsabyggingar víðsvegar um sýsl-
una samhliða bústörfum. Síðar
tók hann að vinna við brúargerð-
ir, og varð fljótt verkstjóri fyrir
þeim, og um 2^ árs skeið var
hann yfirverkstj. Rvíkurbæjar.
Eftir það gerðist hann umsjónar-
verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins,
og hefir síðan verið búsettur hér
á Akureyri.
Karl Friðriksson hefir tekið
drjúgan þátt í félagslífi bæjarins,1 að með óvenjulegum hætti", segja dag-
síðan hann gerðist akureyrskur blöðin.
borgari. Hefir hann gegnt ýmsum
trúnaðarstörfum í félagsskap
Sjálfstæðismanna og var vara-
bæjarfulltrúi flokksins árin 1950
—54. Hann hefir nú árum saman
átt sæti í bygginganefnd, og fleiri
trúnaðarstörf hefir hann á hendi,
sem hér verða ekki rakin.
Karl er glaðvær og vel máli
farinn. Hagmælsku hefir hann
hlotið í vöggugjöf, og eru surnar
stökur hans landskunnar.
□
Friðjón Sigurðsson lögfræðingur
skipaður skrifstofustjóri Alþingis í
stað Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðar-
nesi, sem fengið hefir lausn frá því
starfi.
□
Dönsk myndlistarsýning haldin f
Reykjavík í tilefni af heimsókn dönsku
konungshjónanna.
fyrst beykir hjá Ottó Tuliniusi cn
síðan 30 ár ýmist stýrimaður cða
skipstjóri á fiskiskipum og flutn-
ingaskipum.
Árið 1927 gerðist Jón skip-
stjóri á póstbátnum Unni, og hélt
síðan uppi póstsiglingum milli
S. 1. föstudag, 6. apríl, átti Jón Akureyrar og Eyjafjarðarhafna,
Björnsson skipstjóri 75 ára af- unz hann hætti skipstjórn vegna
mæli, en hann dvelst nú hjá syni vanheilsu árið 1941. Sigldi hann
sínum, Steindóri skipstjóra, að fyrst á Unni, þá Langanesinu,
75 ára:
Jón Björnsson
skipstjóri.
Eyrarveg 31 hér í bæ.
Jón er Árnesingur að uppruna,
síðan Drangey og loks Ester, en
það skip átti hann sjálfur um
fæddur að Bollastöðum í Hraun-
gerðishreppi, en ólst upp í Olfus-
inu. Rúmlega tvítugur flutlist Eyjafjarðarhafna
hann til Hafnarfjarðar og stund- ^ 1942—43
nokkurra ára skeið og gerði út
til póst- og vöruflutninga milli
til áramóta
aði þar sjósókn á skútum um
Jón Björnsson var dugmikill og
nokkurra ára skeið. Lauk hann öruggur skipstjóri og hið mesta
prófi frá Sjómannaskólanum vor- þrekmenni, meðan heilsan entist.
ið 1907 eftir eins vetrar nám, en Á póstsiglinguin sínum um Eyja-
var hinn næsta vetur í Hauga-^fjörð eignaðist hann margt vina
sundi í Noregi við beykisiðnar- og kunningja á viðkomustöðum
nám. Vorið eftir, 1908, fluttist flóabátsins og ávann sér almennt
hann hingað til Akureyrar, var | traust í starfi eínu.