Íslendingur - 02.12.1976, Síða 2
Hart barist í leik Þórs og ísfirðinga á laugardaginn.
ÞÚR8ARAR HEPPNIR
AÐ VIIMIMA Í8FIRÐIIMGA
Tveir leikir voru leiknir í 2. deild fslandsmótsins í körfubolta
í Skemmunni um helgina. Þór og ísfirðingar léku á föstudag
og sunnudag, en samkomulag varð milli liðanna um að leika
báða leiki sína í mótinu á Akureyri núna, þar sem ísfirðingar
hafa ekki löglegan heimavöll. Þór vann báða leikina og í bæði
skiptin með 2 stigum. Var sigur Þórs sanngjarn í fyrri leikn-
um, sem fram fór á föstudagskvöldið, en á sunnudaginn voru
þeir heppnir að ganga með sigur af hólmi. Þá höfðu ísfirðingar
haft yfir allan leikinn, en Þórsarar „stálu“ sigrinum á síðustu
sekúndunum. Leikirnir voru ekki vel leiknir, léleg skorun og
hittnin í lágmarki, sérstaklega hjá Þórsurum. Þrátt fyrir það
voru leikirnir hörkuspennandi, þar sem mjótt var á mununum
í lokin.
Tindastóll
sigraði KA
KA lék sinn fyrsta leik í 3.
deild íslandsmótsins í
körfubölta á sunnudaginn,
við Tindastól frá Sauðár-
króki. Sigraði Tindastóll
með nökkrum yfirburðum,
54-39.
Riðlakeppni er í 3. deild-
inni og er KA í riðli með
Tindastól og UÍA. Næsti.
leikur KA er ekki fyrr en
í febrúar og er sá leikur
fyrirhugaður við UÍA á
Eskifirði ef völlurinn þar
er löglegur. Er niðurröðun
ileikja í 2. og 3. deild karla
í körfuboltanum og 1. deild
kvenna furðuteg. Akureyr
arliðin hafa t. d. leikið frá
1 og upp í 4 lei'ki, en eiga
ekki næstu lei'ki fyrr en í
febrúar.
Sigraði líka
i 4. flokki
íslandsmótið í yngri flokk-
unum í körfubolta er hafið.
í Norðurlandsriðli eru KA,
Þór og Tindastóll í 4. flokki
og léku KA og Tindastóll á
sunnudaginn. — Tindastóll
sigraði með nokkrum yfir-
burðum, 19-10.
SNIÐILL hf. |j
Óseyri 8, Akureyri.
Sími 2-22-55.
Hefur söluumboð á
Norðurlandi fyrir:
SIMCA
1100, 1307/1508
Dodge
fólksbíla, jeppa
og flutningabíla
Plymouth
fólksbíla og jeppa
frá hinum frægu
CHRYSLER
bílasmiðjunum í Banda-
ríkjunum og
Frakklandi.
Hafið samband við
SNIÐIL hf. sem hefur
margra ára reynslu
í bílasölu og þjónustu og
kynnið yður úrvalið og
kjörin áður en þér ieitið
annað.
Ifökull hf.
ÁRMÚLA 36 REYKJAVÍK Sími 84366
Þór hafði forystuna frá byrj
un í fyrri leiknum. Þó sýndi
liðið engan yfirburðaleik og
hittnin var í lágmarki. Þegar
5 mínútur voru eftir af leikn-
um, höfðu Þórsarar 8 stiga
forystu, en á þeim mín., sem
eftir voru, skoruðu þeir ekki
nem'a 5 stig, og ísfirðingum
tókst að jafna, 45-45. Ólafi
Gunnarssyni tókst síðan að
tryggja Þórsurum sigurinn í
svokallaðri bónus-framleng-
ingu, sem Þórsarar fengu
vegna þess, að ísfirðingar voru
komnir með meira en 10 vill-
ur. Sem dæmi um lélega hittni
Þórsara má geta þess, að þeir
skoruðu ekki nema úr 6 víta-
skotum af 21, sem þeir fengu.
Stigahæstir hjá Þór voru:
Hjörtur Eiríksson með 14 stig,
Stefán Hallgrímsson með 9
stig og Ólafur Gunnarsson og
Axel með 8 stig. Óli R. Ingi-
marsson var langstigahæstur
ísfirðinganna með 17 stig.
f seinni leiknum höfðu Is-
firðinigar yfirhöndina þar til á
síðustu mín. Mest höfðu þeir
12 stig yfir undir lok fyrri
hálfleifcs, en í hálfileik höfðu
þeir 9 stig yfir, 28-19.
Þórsarar byrjuðu að saxa á
forskotið í upphafi síðari hálf
leiks og áttu þá góðan sprett.
Hjörtur Eiríksson jafnaði síð-
an fyrir Þór þegar rúmlega 1
mín. var til leiksloka og stuttu
síðar skoraði hann sigurkörf-
una. Hjörtur leggur mikið á
sig til að leika með Þórslið-
inu. Hann er kennari við
Stóru-Tjarnarskóla, en ekur
til Akureyrar á æfingar tvisv-
ar í viku. Þar við bætast ferð-
ir vegna leikjanna. Þórsarar
voru heppnir að vinna í þess-
um leik og var sigur þeirra
ekki sanngjarn.
Stigahæstir voru: Axel Harð
arson með 13 stig og Hjörtur
Eiríksson með 12 stig. Stiga-
hæstir ísfirðinganna voru
Karl Jensson með 12 stig og
Ómar Torfason með 10 stig.
Leikirnir voru báðir lélegir
og illa leiknir. Hittni liðanna,
sérstaklega Þórs, var í lág-
marki, sem sést af skoruninni,
47-45 í fyrri leiknum, og 46-
44 í þeim seinni. Svipaðar töl-
ur eins og gengur og gerist hjá
kvennaflokkum.
Þórsliðið má taka sig veru-
lega á ef það ætlar að eiga
möguieika á sigri í deildinni.
Menn eins og Eiríkur Sigurðs-
son og Axel Harðarson, sem
oft hafa skorað um 20 stig í
leik, sáust varla. Sérstaklega
á það við um Eirík, sem skor-
aði e’kki nema 5 stig í fyrri
leiknum og 3 í þeim síðari.
Axél náði sér aðeins á strik í
seinni leiknum, en var þó
langt frá sínu besta. ísfirðing-
ar skoruðu mörg stig úr hraða
upphlaupum í leikjunum og
oft voru Þórsarar seinir í vörn
ina og fengu á sig óþarfa stig
af þeim sökum.
Þórsarar fá góðan tíma til
að l'aga það sem laga þarf, því
næstu leikir þeirra í mótinu
verða ekki fyrr en í febrúar.
Alfreð Tuliníus og Gunn-
laugur Björnsson dæmdu báða
þessa leiki og áttu þeir bestan
leik af þeim sem voru á vell-
inum.
BLAK:
U.M.S.E.
tapaði
fyrir Þrótti
UMSE lék við Þrótt í 1.
deild íslandsmótsins í blaki
um helgina. Fór leikurinn
fram' í íþróttaskemmunni á
Akureyri. Þróttarar unnu
nokkuð öruggan sigur,
unnu allar hrinurnar, en
Eyfirðingar veittu þeim
harða keppni, sérstaklega í
síðustu hrinunni. Þróttar-
ar unnu fyrstu hrinuna 14-
8, aðra 15-8 og þá síðustu
17-15, en þá hrinu voru
Eyfirðingar nærri því að
sigra. Þróttarar eru taldir
með sterkustu liðum lands-
ins í blaki um þessar mund
ir og líktegir til sigurs í ís-
landsmótinu.
Tap og sigur
hjá Þórs-
stúlkunum
Meistaraflokkur Þórs í
kvennaflokki lék tvo leiki
í 1. deild íslandsmótsins í
handbolta um helgina. ViS
Val á laugardaginn í Laug-
ardalshöllinni og við FH-
inga á sunnudaginn í
Iþróttahúsinu í Hafnar-
firði, en FH-ingar urðu ís-
landsmeistarar utanhúss í
sumar.
Leikurinn á móti Val var
jafn framan af, en þegar
Vatestúlkurnar færðu sig
framar í vörninni fór allt í
baklás hjá Þórsstúlkunum
og Valur vann stórt, 15-7.
Þórsstúlkurnar hefndu
ófaranna á móti Val, er
þær mættu FH-ingum á
sunnudaginn. Þá sigruðu
þær með þriggja marka
mun, 12-9.
Næsti leikur þeirra í mót
inu verður fyrir sunnan 9.
janúar.
IMæstu leikir
Þors og KA
í meistara-
flokki karla
Á laugardagin kl. 4 leika
Þórsarar við Fylki, en sá
leikur er liður í íslandsmót
inu í handbolta 2. deild.
KA lei'kur ekki í deild-
inni en þeir fara suður og
léika við Stjörnuna í Bik-
arkeppni HSÍ.
Samkvæmt mótaskrá, á
fyrri leikur Þórs og KA að
fara fram laugardaginn 11.
desember. Líkur eru á því
að leiknum verði flýtt fram
á föstudag eða fimmtudag,
en það veltur á því hvort
mögulegt verður að fá dóm
ara frá Reykjavík á þeim
tíma.
Sandnám
Hreppsnefnd Glæsibæjarhrepps óskar eftir til-
boðum í sandtöku á Gásaeyri, frá n. k. áramótum.
Tilboðunum skal skila til oddvita hreppsins fyrir
20. des. 1976 og skulu þau miðast við magn
(tonn).
Hreppsnefndin
2 — ÍSLENDINGUR