Íslendingur - Ísafold - 23.05.1970, Blaðsíða 10
10 ÍSLENDINGUR-lSAFOLD, - FAUGARDAGUR 23. MAÍ.1970.
KVIKMYIMDASAGA - 21. HLUTI
Þá hafði Joseph Lee fengið að vita
það. Hann hélt nokkur skref á brott,
en sneri sér svo að Jóa Bass og
horfði beint framan í hann. „Þú hef-
ur mikið sjálfsálit, það vantar ekki,“
sagði hann, og þúaði nú fyrrverandi
eiganda sinn í fyrsta skipti. „Þú ert
fjandanum harðvítugri, stendur í
stríði við allt og alla, og hefur jafn-
vel ekki vit á að hætta að berjast,
þegar þú hefur unnið sigur. En hef-
urðu nokkra hugmynd um, hve lengi
þú mundir hafa þrek til að þola það
að vera svartur þræll? Ekki stund úr
degi, hvað þá Iengur.“
Að svo mæltu hélt hann aftur af
stað.
„Stanzaðu Lee . . kallaði Jói
Bass á eftir honum og lyfti hendinni
til merkis um að þeir skyldu hafa
hljótt um sig.
Þá heyrði Lee hjólagný og hófatak.
Hann nam staðar og beið þangað til
Jói Bass kom úr út gilinu til hans.
Síðan gengu þeir, hlið við hlið, þang-
að sem þeir séu út yfir sandauðnina.
Þar var einn vagn á ferð. Þótt byrj
að væri að skyggja, sáu þeir báðir
greinilega, að þar í vagninum sátu
þær, kvenmaðurinn Kata og mexi-
könsku konurnar, en Ramón sat í
eklissætinu.
Það var ærinn stærðarmunur á
dráttarhestunum, sem báðir voru ber
sýnilega reiðhestar og hafði aldrei
fyrr verið beitt fyrir vagn. Á eftir
vagninum fóru sjö eða átta karl-
menn, einungis tveir þeirra á hest-
baki.
Lee mælti: „Það hafa þá ekki
nema fjögur hross lifað eitrunina af.“
„Fjandinn hafi það,“ tautaði Jói
Bass. „Það er það þrælslegasta bragð
sem ég hef nokkurn tíma leikið, en
ég komst ekki hjá því . . .“
Lee yppti öxlum. „Það er nógu
bjart enn til þess að þú getur séð,
að loðskinnaklyfjarnar eru ekki í
vagninum. Enda hefur enginn getað
tekið meira með sér en það sem
nauðsynlegt er til að draga fram líf-
ið.“
Á meðan þeir virtu hópinn fyrir
sér, fór annar þeirra, sem reið, af
baki og lét einum göngumönnunum
eftir reiðskjótann.
„Kannski þú hafir sagt mér satt,“
varð Jóa Bass að orði. „Við skulum
skreppa yfir að vatnsbólinu á eftir.
Ætli við finnum ekki loðskinnaklyfj-
arnar þar einhvers staðar.“ Röddin
var þreytuleg og kaldranaleg, en svo
brá gamla hreimnum þar fyrir aftur.
„Nú, ef í það fer, þá get ég alltaf
haldið eftirförinni áfram og gengið
á milli bols og höfuðs á illþýðingu."
„Ég held nú það,“ samsinnti Lee.
„Það er enginn dugur í því lengur."
Áður en Jói Bass snakaði sér í
hnakkinn, skar hann nokkrar ræmur
með veiðihnífnum sínum af ábreiðu
og rétti Joseph Lee. „Þú getur vafið
þessu um fæturna á þér,“ sagði hann.
„Komizt ég nokkurn tíma yfir til
Mexikó," varð Lee að orði, „þá ætla
ég að reyna að fá mér eitthvert það
starf, sem ég get unnið í sæti mínu.
Nái ég ekki í eitthvað, sem ég þarfn-
ast, nema að ég standi upp, verð ég
heldur án þess.“
Jói Bass hló og snakaði sér í
hnakkinn. Reið af stað án þess að
líta um öxl til að sjá hvort Lee kæmi
á eftir. Og Lee þrammaði á eftir
honum og Brúnku án þess að gera
sér minnstu grein fyrir hvers vegna.
Þegar kom að tjörninni, vildi
Brúnka óðfús fá sér að drekka, en
Jói gaf henni ekki lausan tauminn.
Þarna lágu loðskinnaklyfjarnar, —
vafðar innan í bjarnarfeldinn, —
skammt frá hjólalausu flakinu af
stóra tjaldvagninum. Það var auðséð,
að stigamennirnir höfðu tekið þau
hjól, sem heil voru, með sér til vara.
Lee varaðist að mæla orð. Svipur
veiðigarpsins benti til þess, að þar
væri allra veðra von, svo Lee þagði
og beið átekta.
Jói Bass gekk þangað, sem loð-
skinnaklyfjarnar lágu og virti þær
fyrir sér andartak. Svo yppti hann
öxlum. „Komdu hingað og réttu mér
hjálparhönd,“ sagði hann við Lee.
„Við verðum að setja klyfjarnar í
hnakkinn. Og svo göngum við báðir.“
Það reyndist allerfitt að lcoma
klyfjunum í hnakkinn. Jói Bass gat
ekki heldur notað við það nema
aðra höndina að ráði, með hinni
varð hann að halda í taumana, svo
Brúnka tæki ekki strikið beint í
tjörnina. Þeir voru svo önnum kafn-
ir við klyfjarnar, báðir tveir, að þeir
hrukku við, þegar þeir heyrðu eitt-
hvert þrusk fyrir aftan sig.
Jim Howie hafði skriðið undan
vagnflakinu.
Þeim var báðum svo brugðið, að
þeir máttu sig hvergi hræra, þar sem
þeir stóðu sitt hvoru megin við
Brúnku, þegar Jim Howie tók undir
sig stödd og slæmdi riffilskeptinu í
höfuðið á Jóa Bass yfir bakið á
henni, og var skellurinn svo harður,
að Lee fékk hellu fyrir eyrun.
Loðskinnaklyfjarnar, sem þeim
hafði ekki unnizt tími til að ganga
frá í hnakkinum, ultu yfir og lentu
ofan á Jóa, þegar hann hneig til jarð-
ar. Hann iá þar kylliflatur og hreyfði
hvorki 1‘egg né lið.
Howie æpti upp yfir sig. „Ég hef
brotið á honum helvízkan hausinn!
Loksins tókst mér að kála honum!
Hann átti það lika skilið . . . þorp-
arinn, sem drap af mér menn og
hesta og braut vagnana. En nú hefur
hann hægara uni sig á næstunni, sá
fantur!"
Og Jim Howie veifaði rifflinum og
steig eins konar stríðsdans kring um
hinn fallna fjandmann sinn.
Lee gekk aftur fyrir Brúnku —
það var engin hætta á að hún færi
langt, því að Jói Bass lá ofan á taum
unum. Lee laut ofan að hinum
fallna veiðigarpi og velti svo loð-
skinnaklyfjunum ofan af brjóstinu á
honum. Jói opnaði augun eilítið, nóg
ti! þess að Lee gat greinilega lesið
ásökunina úr tillitinu. Lee hristi höf-
uðið, hann vildi ekki fyrir nokkurn
mun að Jói Bass hefði hann grunað-
an um að hafa leitt hann í þessa
gildru, en gat þó ekki áfellst hann
fyrri að halda það, eins og allt var
í pottinn búið.
Jim Howie gerði nú hlé á dansin-
um og hratt Lee til hliðar, um leið
og hann dró mikið og egghvasst veiði
sax sitt úr slíðrum. „Ég skal flá af
þér höfuðleðrið, fanturinn þinn, og
bera það við belti mér sem sigur-
tákn,“ hrópaði hann og laul að hin-
um fallna andstæðingi sínum.
Lee mundi það ekki eftir á, að
hann hafði gripið um handlegginn á
Jim Howie og hangið þannig á hon-
um, að hann gat ekki beitt saxinu,
unz stigamannaforinginn gerðist leið-
ur á þófinu, snerist gegn svertingj-
anum og keyrði hann á bak aftur
við flakið á vagninum. „Ég skal
jafna um þig, þrællinn þinn,“ hvæsti
hann og reiddi upp saxið.
Ósjálfrátt spyrnti Lee af öllu afli
undir handlegginn á Howie, svo sax-
ið þaut út úr hendinni á honum og
hvarf inn undir vagnflakið.
Ungir
kjósendur!
Stefna Sjálfstæðismanna
í bæjarmálum Akur-
eyrar byggist á því að búa
ungu fólki sem bezt
skilyrði í bænum. —
ICynnið ykkur gagnorða
málefnavfirlýsingu þeirra
og stuðlið að hag unga
fólksins með því að kjósa
D-listann.
Unga
fólk!
Sækjum fram til sigurs
fyrir lista Sjálfstæðis-
manna og gerum næsta
kjörtímabil að mestu
framfara- og velinegunar-
árum í sögu Akureyrar.
Stuðlum að sigri
Sjálfstæðisflokksins
Skrifstofa fV Sjálfstæðis- ^iljf flokksins W' Sjálfstæðisfólk Akureyri
á Akureyri, að Sldpagötu 13, verður framvegis opin frá
kl. 10 — 22 alla daga. Áríðandi er, að skrifstofu Sjálfstæðisflokksins fái sem
fyrst í hendur upplýsing.ur um stuðningsfólk, sem dvel-
Stuðningsfólk flokksins, sem vill lána bíla, vinsamleg- ur erlendis, eða vdrður fjarverandi á kjördag.
ast hafið samband við skrifstofuna sem fyrst. Skrifstofa Sjálfstæðisflokksins að Skipagötu 13 er op-
Sími 21504 og 21506 in kl. 10 — 22 daglega.
Sjálfstæðisfélögin Sími 21504 og 21506