Faxi - 01.06.1964, Blaðsíða 23
3. bekkur:
1. Guðrún Einarsdóttir .............. 7.08
2. Arni Þór Hilmarsson............... 6.75
3. Herdís Þorgeirsdóttir............. 6.70
2. bekkur H:
1. Kolbrún Sigurðardóttir ............ 6.40
2. Hugrún Helgadóttir ............... 6.33
3. Karlotta Andrésdóttir ............ 5.96
2. bekkur S:
1. Gróa Hreinsdóttir ( 7ára) ........ 5.40
2. Magnús Hreinsson ................. 5.33
3. Sigríður Jakobsdóttir ............ 5.30
1. bekkur D:
1. Solveig Einarsdóttir ............. 5.43
2. Rebekka Jónsdóttir ............... 5.13
3. Flosi Magnússon .................. 4.50
1. bekkur G:
1. Sveinbjörn Oddsson ................ 3.50
2. Jón Olsen ........................ 3.70
3. Erna Reynisdóttir ................ 2.70
4. Viðar Kristjánsson ............... 2.70
S. K.
Iðnskólinn í Keflavík
Skólanum var slitið 16. apríl. Hafði hann þá
starfað í 24 vikur, en kennslan fór fram síð-
degis og á kvöldin í húsakynnum barnaskól-
ans eins og undanfarna vetur. í skólanum var
71 nemandi. 27 í 1. bekk en 44 í 3. bekk í 15
iðngreinum. Næsta vetur munu starfa 2. og
4. bekkur. Kennarar voru 7 alls.
Hæstu einkunn í 3. bekk hlaut Þorvarður
f. Vilhjálmsson 9,65, sem mun vera hæsta
aðaleinkunn, sem gefin hefir verið við skól-
ann, en hæstu einkunn í 1. bekk hlaut Sig-
urður V. Egilsson 8,89.
Gerðaskóli
Gerðaskóla var slitið í Útskálakirkju 1. maí
síðast liðinn. í skólanum voru s.l. vetur 118
nemendur í 6 deildum.
Hæstu einkunnir á unglingaprófi hlutu:
Marta Guðmundsdóttir, Meiðastöðum, og
Erla Þorsteinsdóttir, Reynistað, en á barna-
prófi Soffía M. Eggertsdóttir, Árbæ.
Valtýr Guðjónsson og Jónas Guðmundsson
komu fyrir hönd Rotaryklúbbs Keflavíkur og
færðu þeim nemendum, er hlutu hæstar eink-
unnir í hverri deild, bókagjöf.
Fastir kennarar voru þeir sömu og undan-
farin ár: Jón Olafsson, Jóhann Jónsson, Hall-
dóra Ingibjartsdóttir. — Halldóra hefir nú
kennt við skólann í 20 ár við góðan orðstýr.
Stundakennarar voru sr. Guðm. Guðmunds-
son, Finnbogi Björnsson, Auður Tryggvadóttir,
Guðríður Jónsdóttir og Heiðar Ástvaldsson,
er kenndi dans í vetur í stað Rigmor Hansen,
er kennt hefir undanfarið. Prófdómari var
Sigurbergur Þorleifsson hreppstjóri.
Síðast liðið haust var foreldrum boðið í
skólann á ákveðnum degi, til viðræðna við
kennara barna sinna. Þótti þetta mjög gagn-
legt fyrir alla aðila, enda fjölmenntu foreldr-
ar í skólann.
Á bindindisdaginn kom Jón Eiríksson á
Meiðastöðum í heimsókn í skólann og ræddi
við eldri nemendur um áfengi og tóbak.
Félagslíf nemenda var með svipuðu sniði
og undanfarið. Nemendur héldu jólaskemmt-
un, skruppu i Þjóðleikhúsið, höfðu dansæfing-
ar, kepptu í körfubolta við Grindvíkinga og
notuðu ferðasjóð sinn til að skreppa í tveggja
daga ferðalag austur í Vík í Mýrdal. J. O.
Barna- og unglingaskóli
Grindavíkur
Barna- og unglingaskóla Grindavíkur var
slitið 15. maí. I unglingaskólanum voru 28
nemendur, þar af 13 í eldri deild og luku 12
þeirra unglingaprófi. í yngri deild voru 14
nemendur, luku þau ársprófi, nema eitt, sem
tók unglingapróf, enda 14 ára.
Eins og áður var tveim beztu nemendum
úr hópi fermingarbarna veitt heiðursverðlaun
úr Sæmundarsjóði fyrir góðan námsárangur
og góða hegðun í skóla og utan.
Fyrstu verðlaun hlaut að þessu sinni Stef-
anía Ólafsdóttir, Víðihlíð, með 9.28 í meðal-
einkunn, og er það jafnframt hæsta einkunn
yfir skólann.
Önnur verðlaun úr Sæmundarsjóði hlaut
Gyða Waage Ragnarsdóttir, Bjargi, með 8.33
í einkunn.
Handavinnuverðlaun, sem Kvenfél. Grinda-
víkur veitir, hlaut Jórunn Jórmundsdóttir,
Þrúðvangi, með 9.2 í handavinnueinkunn,
verðlaunin eru fingurbjörg úr silfri.
I barnaskólanum voru 111 nemendur og
luku 12 barnaprófi. — Á sumardaginn fyrsta
efndu börnin til skólaskemmtunar fyrir al-
menning, var ágóða af skemmtuninni varið
til tveggja daga skólaferðar austur í Þjórsár-
dal og nærsveitir.
I júnímánuði sækja börnin sundnámskeið
í Sundhöll Keflavíkur og verða daglega flutt
á milli, en samtímis sundnáminu munu þau
aðstoða við að gróðursetja trjáplöntur í Sel-
vogsskógi, sem er trjáræktarsvæði Grindvík-
inga, norðan við Þorbjörn.
E. K. E.
<>«>«><><><><><><><<><>«*«><>«hc'<><><^<><><><*^«>««><><>«><h^<£'<><><<><><hí«><><><><><>«><><>^^
Keflvíkingar, Suðurnesjamenn!
Talstöðvarbílar til reiðu allan sólarhringinn —
hvert á land sem óskað er: norður, suður, austur
og vestur.
AÐALSTÖÐIN — Sími 1515
<*<>«><>«««><><><><><><><><><><><><'<>«'<><'<>«<><><><><><'«<'<' >>3*«<><><><>««><><>'>>>;>«><>««><><><><><>«<>«<3><>«><><>«<>«>«><><>'>>«>'>>>$«‘>C><C><><><><'>«><-><><><>«'
F A XI — 103