Faxi - 01.09.1964, Page 1
Sept.-blað
7
XXIV. ÁR 1964
Tveir erlendir biskupar predika á Suðurnesjum
t>r. Rajah B. Manikam biskup og sóknarpresturinn sr. Björn Jónsson í Njarðvíkurkirkju,
Dagana 30. ágúst til 5. sept. gerðist sá
einstæði og stórmerkilegi atburður, að í
Reykjavík var haldinn aðalfundur stjórnar-
nefndar Lútherska Heimssambandsins.
Stjórnarnefndin er kosin á þingi Heims-
sambandsins, sem baldið er sjötta hvert
ár, — nú síðast í Helsingfors sumarið
1963, — og kemur hún árlega saman til
þess að ganga frá málum, sem ekki reynd-
ist mögulegt að leiða til lykta á sjálfu
þinginu, — svo og til að ræða öll þau mál,
sem efst eru á baugi hverju sinni í hinni
lúthersku kirkju.
Fulltrúarnir, sem hingað komu, voru 19
að tölu, en alls sátu þingið um 50 kirkju-
leiðtogar frá öllum álfum heims.
Sunnudagana tvo, sem þeir dvöldu hér,
30. ágúst og 6. september, prédikuðu þeir
í flestum kirkjum höfuðborgarinnar og
nágrennis.
Hér í Keflavík prédikaði dr. Heinrich
Meyer, biskup frá Lúbeck í Þýzkalandi
30. ágúst. Hann fór ungur sem kristni-
boði til Indlands og dvaldi þar í 21 ár.
Eftir það var hann um nokkurt skeið
prófessor í kristniboðsfræðum við háskól-
ann í Hamborg, unz hann vígðist biskups-
vígslu. Meyer biskup lagði út af orðunum
í 1. Þess. 1, 2—10, og ræddi aðallega um
þá miklu þakkarskuld, sem við mennirnir
stöndum í við Guð, fyrir þann mikla,
óverðskuldaða kærleika, sem hann auð-
sýnir okkur í smáu og stóru. Marga góða
vini meðal manna er okkur ljúft og skylt
að þakka Guði fyrir, en þegar dýpra er
skoðað, þá hlýtur þó fyrsta og síðasta
þökkin að vera helguð honum, sem hing-
að kom til að frelsa okkur, synduga menn.
„Guði sé lof fyrir fagnaðarerindið um
Jesúm, — sannan Guð og sannan mann
— og okkar elskaða Frelsara,“ sagði Mey-
er biskup að lokum. 1 messulok ávarpaði
sóknarprestur biskupinn og þakkaði hon-
um fyrir komuna. Frh' á bls- 118-