Faxi - 01.09.1964, Qupperneq 8
' ;---------------------------------------------------------------------------------------------'\
Utgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. — Ritstjóri og afgreiðslumaður:
1i ir Hallgrímur Th. Bjömsson. Blaðstjóm: Hallgrímur Th. Bjömsson. Margeir
JL.Jónsson, Kristinn Reyr. Gjaldkeri: Guðni Magnússon. Auglýsingastj.: Gunnar
Sveinsson. Verð blaðsins í lausasölu krónur 15,00. Alþýðuprentsmiðjan h.f.
V_________________________________________________________________________________________________/
Tónlistarskólinn í Keflavík
byrjar óttunda starfsór sitt
Aðalfundur Tónlistarfélags Keflavíkur
var haldinn þriðjudaginn 15. sept. í Tón-
listarskólanum. Sú eina breyting varð á
stjórnarskipan, að Arnbjörn Olafsson baðsl
undan endurkjöri, sem gjaldkeri félagsins.
og var í hans stað kosinn gjaldkeri frú
Ingveldur Þorsteinsdóttir. Þakkar tónlist-
arfélagið Arnbirni vel unnin störf, sem
gjaldkera undanfarin ár. Stjórn Tónlistar-
félagsins skipa þá: frú Vigdís Jákobsdóttir
formaður, Helgi S, Jónsson ritari, frá Ing-
veldur Þorsteinsdóttir gjaldkeri, og með-
stjórnendur frú Sesselja Magnúsdóttir og
Kristinn Reyr.
Fundurinn gladdist yfir þeirri samvinnu,
sem tekizt hefir með barnaskólanum,
gagnfræðaskólanum og tónlistarskólanum
og vonar að slíkt samstarf megi halda
áfram og telur að sameiginlegt átak þess-
ara aðila verði heilladrjúgt tónlistarmál-
um Keflavíkur og reyndar Suðurnesja
allra. Og rétt þykir að benda á, að tón-
listarskólanum er ekki ætlað að vera skóli
Keflvíkinga einna, heldur vill hann ná til
ungmenna á öllum Suðurnesjum, scm óska
að þjálfa og þroska sig í tónlistinni og að
þeir geti fundið skólann, sem sinn skóla,
hvar sem þeir annars eru búsettir á Suður-
nesj um.
Skólinn vill reyna á þau fög, sem kennd
eru við skólann, en þau eru: píanóleikur,
fiðluleikur, kennsla á flestöll blásturshljóð-
færi, söngkennsla og kennsla í undirbún-
ingsdeild.
Um undirbúningsdeildina er það að
segja, að þar hafa verið tekin inn börn allt
niður í 6 ára aldur, lil undirbúningsþjálf-
unar, og verður svo áfram. En þar sem
þessi dcild ltefir, því miður, orðið nokkuð
útundan í mótun skólans, hefir skólinn í
hyggju að leggja meiri rækt við þessa deild
hans, en verið hefir hingað til.
Það er að takmörkuðu leyti hægt að
segja til um tónlistarhæfni 6—8 ára gam-
als barns. En nokkra sérhæfileika þarf til
að ná nokkrum teljandi árangri í tónlistar-
námi og því verður að telja það skyldu
skólans að reyna að þekkja þessa sérhæfi-
leika strax í upphafi, svo ekki þurfi að
eyða peningum og tíma í tilgangslaust
nám.
Þrátt fyrir það að skólinn hafi haft fær-
ustu söngkennurum á að skipa, hefir söng-
deildin verið fremur fámenn og hefir það
valdið nokkrum vonbrigðum hjá forráða-
mönnum skólans. Vill skólinn benda á, að
söngkennsla er ekki fyrir einsöngvara eina,
eða þá sem það vilja verða. Síður en svo.
Söngkennslan í skólanum er ætluð fyrir
alla þá sem finna ánægju í að syngja —
hvort sem þeir gera það hér, í bílnum sín-
um á leiðinni í eða úr vinnunni, í baðinu
eða fram í eldhúsi, yfir uppvaski, fram á
stafni eða aftur í skut, jafnvel leikarinn,
sem verður að heyrast aftur á 30. bekk
hefir gott af að læra svolítið að syngja. Og
þar sem staðreyndir hafa sýnt að mikið er
af söngröddum á Suðurnesjum, hlýtur að
vera verkefni fyrir söngkennara.
Stjórn Tónlistarfélagsins þakkar öllum
vclunnurum og styrktarfélögum skólans
góðan skilning og samstarf.
Með þökk fyrir birtinguna.
R. B.
Þjóðhátíðin í Kcflavík.
Hátíðahöldin hófust með því að Lúðrasveit
Keflavíkur lék við kirkjuna og var gengið
þaðan á hátíðasvæðið í Skrúðgarðinum. Skát-
ar báru lýðveldisfánann að 17. júní stönginni,
sem er minnismerki um lýðveldisstofnunina
1944. Fáninn var dreginn að
hún kl. 2 af Jóni Guðbrands-
syni. Þá fór fram guðsþjón-
usta, flutt af sr. Birni Jóns-
syni og flutt minni dagsins af
Vilhjálmi Þórhallssyni lög-
fræðingi. — Kristbjörg Kjeld
flutti ávarp Fjallkonunnar
efir Kristinn Reyr. Guðmund-
ur Jónsson óperusöngvari
söng og fleiri skemmtiatriði
fóru fram í Skrúðgarðinum,
t. d. söng Karlakór Keflavík-
ur undir stjórn Herberts Hri-
berseck og þar á meðal nýtt
lag og ljóð eftir Kristinn Reyr,
tileinkað lýðveldistökunni. —
Um kvöldið var dansað á göt-
um bæjarins, bæði nýju og
gömlu dansarnir, og fóru þar
fram ýmis önnur skemmti-
atriði. Veður var mjög gott
og fór hátíðin vel og virðu-
lega fram.
4
J
116 — FAXI