Faxi - 01.06.1966, Side 6
í glaða sólskini og fagurri fjallasýn. Ekið
var um Borgarfjörð til Húsafells og í
Reykholti tók sr. Einar Guðnason á móti
okkur, sýndi okkur staðinn og sagði frá
því helzta sem þar gerðist, allt frá dög-
um Snorra Sturlusonar. Var síðan haldið
til húsmæðraskólans að Varmalandi. Þar
tók á móti okkur fr. Steinunn Ingimundar-
dóttir og námsmeyjar hennar. Allt var þar
til reiðu, nýbakaðar kökur, smurt brauð
og dásamlegt kaffi.
Steinunn bauð okkur velkomnar með
ræðu, þar sem hún ræddi um starfsemi
skólans og lýsti ánægju sinni yfir góðri
ástundun og frammistöðu námsmeyja, sem
við brátt mundum fá nánar að kynnast.
Lét hún síðan 2 námsmeyjar fylgja hverj-
um 12 konum um skólann, til að sýna
vistarverur hans, skólaeldhús og vefnaðar-
handavinnu stúlknanna og margt fleira.
Bar þar margt dásamlegt fyrir augu okkar,
allt frá smábarnafatnaði og upp í fatnað
fullorðinna, auk fallegra dúka af ýmsum
gerðum og gardínur, svo aðeins nokkuð
sé nefnt.
Eftir ánægjulega stund í þessu menn-
ingarlega skólasetri kvenna, kvöddum við
og þökkuðum góðar móttökur. Við það
tækifæri flutti ein úr okkar hópi, frú
Laufey Sigurðardóttir, skemmtilega ræðu.
Var síðan haldið að Bifröst, þar sem
beið okkar indæll kvöldverður. Að honum
enduðum var sezt í setustofu að rjúkandi
kaffi og tekið upp létt hjal um vel heppnað
ferðalag og voru allar á einu máli um
fegurð og yndisleik Borgarfjarðar, sem
aldrei brygðist.
Hér gefst ekki tóm til að lýsa nánar
einstökum þáttum þessarar dásamlegu
húsmæðraviku í Bifröst, en eins og að
framan getur, rak þar hver viðburðurinn
annan, þar sem skiptust á léttir gaman-
þættir, ferðalög, erindaflutningur og um-
ræður um gagnleg og fræðandi mál, ásamt
sýnikennslu, eins og fyrr var að vikið. —
Meðal annars voru flutt erindi um sumar-
búðir barna og unglinga og þjóðlegt nota
gildi þeirra. En sú starfsemi er nú víða
að festa rætur og virðist ætla að gefast
vel. Þyrftum við Njarðvíkingar og Kefl-
víkingar að gefa þessu gætur, ef verða
mætti til blessunar fyrir börn okkar og
æskufólk.
Einn daginn flutti Jónas Pálsson sálfræð-
ingur erindi er hann nefndi: Lestrarnám
og lestrarörðugleikar og var það mjög
fróðlegt og athyglisvert.
Kvöldið fyrir síðasta daginn var kvöld-
vaka, sem dvalargestirnir önnuðust sjálfir.
Var hún fjölþætt og skemmtileg, þar sem
voru ljóð og ræður, sagðar sögur og sungið
mikið, fluttir gamanþættir og fl. o. fl.
Að morgni síðasta dagsins fóru allar að
taka saman pjönkur sínar og búast til
farar. Var nú komið að kveðjustund eftir
ógleymanlega dvöl á þessu fríða menn-
ingarsetri Samvinnumanna. Þurfti hver
gestanna að taka í hönd hvers einstaks
heimamanns og konu, sem öll höfðu verið
okkur svo elskuleg og góð að á betra
varð ekki kosið. Flestar ætluðu konurnar
til Reykjavíkur, þó þær væru annars utan
af landi, til þess að hafa sem bezt not af
þessari góðu suðurför. Við hugðum því
á góða samfylgd, áður en leiðir skildu í
Reykjavík.
Er við stigum í bifreiðina, voru allir
heimamenn þar staddir ásamt frú Guð-
laugu Einarsdóttur, sem kvaddi okkur þar
ásamt starfsfólki sínu, en við þökkuðum
dásamlega umönnun og ómetanlega
fræðslu á þessum ljúfu dvalardögum þar,
sem okkur munu aldrei úr minni líða.
Að lokum vil ég svo bæta við þessa fá-
tæklegu frásögn kæru þakklæti frá okkur
konum af Suðurlandsumdæmi og þá eink-
um af Suðurnesjum, fyrir þetta dásam-
lega boð og ógleymanlegu dvöl á okkar
fagra og kyrrláta stað, Bifröst. Dvölin
sú verður þó ekki hvað sízt minnisstæð
fyrir frábærar móttökur og alúð frú Guð-
laugar Einarsdóttur, sem hafði á herð-
um sér húsmóðurvandann í Bifröst, að
ógleymdu ágætu starfsliði hennar, sem
var samhent henni um að gera okkur
dvölina þar sem ánægjulegasta.
Þá vil ég einnig þakka öllum þeim
mörgu, körlum og konum, sem þarna
komu fram til að fræða okkur og
skemmta, og í þeirra hópi vil ég nefna
forstöðukonu kvennaskólans að Varma-
landi, sem, eins og fyrr er frá sagt, sýndi
okkur mikla vinsemd og veitti öllum
þessum stóra hóp rausnarlegar góðgerðir.
Alls þessa góða fólks munum við jafnan
minnast með gleði og þakklæti og óska
því alls góðs í framtíð
Megi samvinnuhugsjónin og sam-
vinnustarfið eflast og dafna til heilla og
blessunar fyrir land og þjóð.
Sigríður Hafliðadóttir,
Ytri-Njarðvík.
r-------------------- n
KREEMIT
BABY FOOD
bárnámjólk
Þessi yinsæla og vitamínríka barnafæða
fæst í
APÓTEKI KEFLAVÍ KUR
v---------------------J
86 — FAXI