Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.06.1966, Qupperneq 20

Faxi - 01.06.1966, Qupperneq 20
Þórarinn Ólafsson sjötugur Þórarinn Ólafsson. 30. maí sl. varð einn af þekktustu borg- urum Keflavíkur sjötugur, Þórarinn Olars- son trésmíðameistari. Hann er vestfirskur að ætt, en fluttist hingað suður fyrir meira en fjörutíu árum, og hefur búið í Keflavík síðan. Þórarinn er maður mjög starfssamur, og hefur staðið fyrir fjölda byggingafram- kvæmda hér í bænum, bæði fyrir einstak- linga og það opinbera. Hefur hann reynzt eftirsóttur til slíkrar fyrirgreiðslu, vegna lipurðar og verklægni, enda oftast haft á að skipa ágætu starfsliði. Kunna menn því vel að hafa menn á borð við Þórarin til framkvæmda og fyrirsjónar um þá hluti. Eins og margir starfssamir menn er Þór- arinn að eðlisfari félagslyndur mjög, og nýtur trausts og virðingar allra sem honum kynnast. Honum hafa því verið falin marg- háttuð trúnaðarstörf, bæði fyrir bæjarfé- lagið og önnur þau félög, sem honum hafa þótt vera heillavænleg fyrir Keflvíkinga og aðra héraðsbúa. Má þar til nefna Iðnaðarmannafélag Keflavíkur, en hann er hvatamaður að stofnun þess, og fyrsti formaður. Hann var einnig í ráðum um stofnun Kaupfélags Suðurnesja, og hefur ætíð verið deildarstjórnarformaður og full- trúi á aðalfundum félagsins, enda mikill samvinnumaður. 'Hann er og formaður eða stjórnarmaður fleiri félaga í Keflavík, en það yrði of langt að rekja það hér. Fyrsta júlí næstkomandi verður hann for- seti Rótaryklúbbs Keflavíkur, enda verið meðlimur hans frá upphafi. Þórarinn er tvígiftur, en hefur misst báð- ar konur sínar. Börn hans eru þrjú, upp- komin, mjög vel gefin og mannvægleg. Ekki er það ætlunin að rekja frekar æfiferil Þórarins að þessu sinni, það verður betur gert þegar hann verður áttræður, 'Þórarinn er Keflvíkingum og flestum Suðurnesjamönnum vel kunnur af verkum sínum og þátttöku í uppbyggingarstarfinu, bæði á félagslegum og verklegum sviðum. Hann var ekki heima á afmælisdaginn sinn, en margur hefði viljað taka í hönd hans þann dag. Skulu honum færðar bestu heillaóskir í tilefni afmælisins, og er þess að vænta, að vinir hans, sem eru margir eigi þess enn kost um langa hríð, að njóta með honum glaðra stunda. V. G. Góð landkynningarbók um ísland nútímans. Faxa hefur borizt eintak af nýrri bók, sem ber enska heitið ICELAND — A Traveller’s Guide. Bókin er, eins og nafn hennar ber með sér á enska tungu. Höfundur hennar er Peter Kidson, fyrrum sendiráðsritari við brezka sendiráðið í Reykjavík, en útgefendur Ferða- handbækur s. f., sem undanfarin ár 'hafa gefið út hina vinsælu Ferðahandbók. Hin nýja bók er í alla staði hið vandaðsta ritverk og virðist geta þjónað vel þeim tví- þætta tilgangi, sem liggja mun til grundvallar útgáfunni; þ. e. s. að vera hvorttveggja í senn handbók fyrir erlenda ferðamenn og hentug bók til að senda vinum sínum erlendis. Má í því sambandi geta þess, að bókin er afhent kaupendum í haganlega gerðri pappaöskju, sem ætluð er til póstsendinga, og auk þess fylgir henni límmiði á hvern rita skal nafn sendanda og viðtakanda. Kaupendur þurfa því ekki annað að gera en rtia á miðann, líma hann á öskjuna og setja síðan í póst. Það mun tæpast of djúpt tekið í árinni, að sjaldan hafi komið út hérlendis eins hentug bók til gjafa né jafn vel um slíka bók búið. Of langt mál yrði að rekja hér allt efni bókarinnar, en í stuttu máli má segja að hún greinir frá landinu og sérkennum þess, þjóð- inni og sögu hennar í fortíð og nútíð. Sér- stakur kafli er um öll kauptún og kaupstaði á landinu og eru þar stærstir kaflarnir um Reykjavík og Akureyri. Bókin er skreytt með fjölda pennateikningum. Mörg kort eru í bók- inni t. d. af Reykjavík, Akureyri og miðhá- lendinu og sérstakt vegakort fylgir henni. Bókin er prentuð í Prentsmiðjunni Eddu og er frágangur hinn vandaðasti, Sr. Bragi Friðriksson. Sr. Brogi Friðriksson hlaut Garðaprestakall Við atkvæðagreiðslu í prestskosningum á Álftanesi urðu úrslit þau, að séra Bragi Frið- riksson var kjörinn lögmætri kosningu, hlaut 602 atkvæði. Bragi Benediktsson fékk 227 at- kvæði. Tómas Guðmundsson 40 atkv. og Þór- bergur Kristjánsson 24 atkvæði. Á kjörskrá voru 1116 og greiddu 897 at- kvæði. 3 seðlar voru auðir. Sr. Bragi Friðriksson tók guðfræðipróf 1953. Var hann 3 ár starfandi prestur í Manitoba, starfaði síðan hjá Æskulýðsráði Reykjavíkur frá hausti 1956 til vorsins 1963, og hefur siðan verið prestur íslendinga á Keflarvíkurflugvelli og unnið að æskulýðsstarfi í Kjalarnespróf- astdæmi. Bragi er kvæntur Katrínu Eyjólfsdóttur frá Eskifirði og eiga þau tvö börn. Áfengissalan 1. ian. til 31. marz 1966. Heildarsala: Selt í og frá Reykjavík, kr. 80,385.315,00, Akur- eyri kr. 8.011.515,00, ísafirði kr. 2.786.795,00, Siglufirði kr. 1.585.970,00, Seyðisfirði kr, 2.277.380,00. Samtals kr. 95.046.975,00. Á sama tíma 1965 varð salan, eins og hér segir. Selt í og frá Reykjavík kr. 59.680.023,00, Akur- eyri kr. 6.290.525,00, ísafirði kr. 1.790.815,00 Siglufirði kr. 1.191.020,00, Seyðisfirði kr. 1.592.291,00. Samtals kr. 70.544.674,00. Söluaukning er 34% fyrstu þrjá mánuði þessa árs miðað við 1. ársfjórðung í fyrra, en þess ber að geta, að allmikil verðhækkun hefur orðið á áfengum drykkjum frá þeim tíma. Áfengisvarnarráð. SELJUM ÍS Hraðfrystihús Keflavíkur 100 — FAXI

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.