Faxi - 01.06.1966, Side 24
Góð bók, — gulli
Kaupirðu góðan hlut, þá mundu hvar
þá fékkst hann. Svo hljóðandi auglýsing
heyrðist oft í útvarpinu fyrir nokkrum
árum.
Mér kom þessi auglýsing í hug, er ég
settist niður til að vekja athygli lesenda
Faxa á mjög góðri bók, sem ég las í vetur,
en kom út fyrir síðustu jól. Þessi bók
heitir: „Vörðuð leið til lífshamingju" og
er eftir Norman Vincent Peale. Norman
er heimsþekktur kennimaður, og einhver
áhrifamesti kennimaður vorra tíma. Þýð-
andi er Baldvin Þ. Kristjánsson.
Bókin skiptist í 17 kafla, sem bera heiti
s. s.: „Rór hugur geislar orku“, „Þú crt
þinnar gæfu smiður“, „Að viðurkenna
betri
ekki ófarir“, Reyndu „mátt bænarinnar“.
Bókin hefst á svohljóðandi inngangsorð-
um: „Þessi bók er skrifuð í þeim tilgangi,
að ráðleggja aðferð og gefa dæmi um, að
þú þurfir ekki að falla í duftið fyrir neinu
— að þú getur búið yfir sálarró, betri heilsu,
og ótakmarkaðri orku, — í stuttu máli
sagt' þú getur lifað glaður og ánægður“.
Og fyrsti kaflinn sem heitir: „Temdu
þér sjálfstraust", hefst þannig: „Hafðu
sjálfstraust, treystu dugnaði þínum. An
ákveðins en raunhæfs álits á eigin hæfi-
leikum, geturðu ekki rutt þér braut, eða
orðið hamingjusamur“.
Bókin er mjög létt skrifuð, þannig að
þér finnst þú vera að lesa skáldsögu, í
henni er mikið af skemmtilegum tilvitn-
unum, og þar er fjallað um þessi lífsins
vandamál, sem mæta okkur daglega, svo
sem gleði, sorg, reiði, hræðslu og dagleg
samskipti manna í milli.
Höfundur leggur áherzlu á mátt bænar-
innar.
„Það er ekkert það til, sem þú getur
ekki framkvæmt, ef þú trúir, og biður um
það nógu einlæglega," segir höfundur.
Það hafa allir gott af að lesa þessa bók,
og ég mundi segja, að hún væri á við
margar kirkjuferðir, og þó stuðlaði hún
að þeim, með þeim boðskap sem hún
flytur.
Þýðandi hefur unnið verk sitt vel, því
bókin er skrifuð á góðu máli, og útgáfan
er hin vandaðasta.
G. Sv.
104 — F A X I