Faxi

Volume

Faxi - 01.06.1966, Page 25

Faxi - 01.06.1966, Page 25
Frá barnaskólanum í Keflavik I skólanum voru 810 börn í vetur í 33 bekkjadeildum. Fastir kennarar voru 19 auk skólastjóra og þriggja stundakennara. Undir barnapróf gengu 119 börn, en 163 börn 7 ára innrituðust nú í vor. Aætlaður barnafjöldi næsta skólaár er því um 850— 860 börn. Ákveðin hefur verið viðbygging við skólann við Sólvallagötu. Verður hún gerð í tveim áföngum, og hefur fyrri áfangi verið boðinn út, og mun að því stefnt að Ijúka honum fyrir haustið. Eru það 4 kennslustofur, salerni og gangar og eitt Iítið herbergi. I seinni áfanga eru 2 kennslu- stofur og söngsalur auk tveggja minni her- bergja. Árshátíð skólans var haldin mánudag- inn 4. apríl, og hefur áður verið sagt frá því í Faxa. Einnig voru bekkjaskemmt- anir haldnar í vetur. Tvær fyrir 6. bekk- inga og ein fyrir 5. bekkinga. Farið var með barnaprófsnemendur í Þjóðleikhúsið í vor að sjá leikritið Gullna hliðið og á uppstigningardag var farið með þau í ferðalag austur fyrir fjall. Við skólaslit, sem fóru fram í íþrótta- sal skólans, lék Drengjalúðrasveitin, sem nú er skipuð drengjum, sem byrjuðu í henni síðast liðið haust. Eins og áður voru mörg verðlaun veitt fyrir góðan námsárangur. Verðlaun Bókabúðar Keflavíkur fyrir hæstu aðaleinkunn yfir allan skólann hlaut Bergþóra Ketilsdóttir. Hún hlaut einnig verðlaun sóknarprestsins fyrir beztu rit- gerð á barnaprófi. Verðlaun frá Rótarý- klúbbi Keflavíkur hlutu eftirtaldir nem- endur: Hildur Agnarsdóttir, Jórunn Tóm- asdóttir, Gísli Torfason, Steinunn Karls- dóttir, Vilborg Einarsdóttir, Ásgeir Eiríks- son og Svandís Valdimarsdóttir. Hermann Eiríksson. Málverkasýning. Dagana 28.—30. maí hélt Sveinn Björnsson málverkasýningu í félagsheimilinu Stapa, Ytri-Njarðvík. Á sýningunni voru 23 olíu- málverk og seldust 8 myndir. Sveinn Björns- son er kunnur listmálari, hefir haldið margar sýningar bæði hér heima og erlendis, og hvar- vetna fengið lofsamlega dóma. Síðast hélt hann málverkasýningu í Shar- lothenborg í Kaupmannahöfn. á s. 1. hausti og var þá mjög vinsamlega skrifað um hann í dönskum blöðum. Aðspurður lét Sveinn vel af viðtökunum í Stapa og var ekki frá því að koma þar oftar með sýningar. 3. uniferð: Heklið 22 Ml.aukið í 4. og 5. hverja lykkju 4. umferð: Heklið 26 Ml.aukið í 5. og 6. hverja lykkju. 5. umferð: Heklið 30 Ml, aukið í 6. og 7. hverja lykkju. 6., 7., 8., 9., 10., 11., 12. umferð: 30 munsturlykkjur. 13. umferð: Heklið 15 munsturlykkjur, snúið við og heklið 5 Ml til baka, snúið við og heklið 4 Ml til baka, snúið við og heklið 3 Ml til baka, snúið við og heklið 2 Ml til baka, snúið við og heklið 1 Ml, dragið garnið i gegn og slítið. Byrjið aftur við byrjun 15 lykkjanna og heklið 5 Ml, snúið við og heklið 4 Ml o. s. frv, Bryddið síðan húfuna með fastalykkjum (Fl) og gerið hnappagat bðrum megin, en setjið hnapp hinum meg- Garn: 1 hespa Gefjunar- dralonsportgarn. Heklunál nr. 3-4 Fitjið upp 5 loftlykkjur (Ll) og myndið hring með því að tengja fyrstu og siðustu lykkju saman með 1 keðju- lykkju (Kl). 1. umferð: 1 Ll (ca 2 cm;, sláið upp á nálina, hekl- ið I hringinn jafnlanga lykkju, sláið upp á nálina, hekl ið i hringinn jafnlanga lykkju, sláið upp á nálina, hekl- ið þriðju lykkjuna i hringinn og dragið garnið siðan í gegnum allt saman, þá er komin 1 munsturlykkja (Ml). Endurtakið 8 sinnum (9 Ml) og tengið saman með keðjulykkju í lok hringsins. 2. umferð: Heklið 18 Ml. aukið í hverja lykkju dralon sem þær voru að hekla húfurnar sinarúr Veljid vandað garn- veljid DRALON sportgarnid F A X I — 105

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.