Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1975, Side 3

Faxi - 01.01.1975, Side 3
bjó þar Páll heitinn Kolka læknir. Hann var læknir hér um tíma, 2-3 ár, að námi loknu, og þarna bjó ég 'til árs- ins 1929 o-g lagði fyrir mig útgerð.“ „Báturinn var keyptur af Lofti Loftssyni, gamall, sem hann hafði feng ið frá Matthíasi Þórðarsyni, 15 tonn að stærð, stærs'ti bátur hans og hét Óðinn, og tengdafaðir minn lagði í hann á móti mér. Báturinn var óhentugur til fiskveiða, línuveiða þó sérst'aklega. Lagið var danskt og hann lét illa að stjórn, tvístefnungur, sem kallað var. Við vorum því aðallega í flutningum á milli Reykjavíkur og Akraness, til Keflavíkur og Sandgerðis og hingað og þangað fyrir verzlanirnar. Þjónuðum líkt og stór'u vöruflutningabílarnir nú t'il dags. Báturinn rúmaði anzi hreint mikið, ein 20 tonn, þót't hann væri gef- inn upp fyrir fjórðungi minna. Út- gerðin gekk þolanlega, við lifðum af þessu.“ Togaramenn hentu kolamola í hausinn á mér A þessum árum var Hjörtur alvar- lega að hugsa um að gera sjómennsk- una að ævistarfi, þvert ofan í öll fyrri áform um störf í landi, en sjóveikina losnaði hann ekki við og það var eig- inlega hún, sem r'ak hann í iand og varð þess valdandi, að báturinn var seldur. „En eitt' hið síðasta sem ég gerði á Óðni var að að taka brezkan togara í landhelgi suður á Hafnarleir, árið 1925. Við vor'um að flytja vörur suður í Kirkjuvog og þá kemur togarinn fyrir Reykjanesið og alveg upp í landssteina, rétt fyrir utan voginn. Við vorum að enda við að losa og erum beðnir af heimamönnum að fara út og ná af helv .... nafni og númer'i, og ekki þurft'i að hvetja okkur mikið til þess, viljinn var fyrir hendi. Togarinn var að enda við að hífa inn þegar við kom- um að honum, en við gátum ekki séð nafn og númer, því vandlega var br'eitt yfir hvort tveggja." „Ég bað þá vélstjórann um að taka við st'ýrinu og keyra fram með honum. Hugmyndin var að reyna að kraka drusluna fr'á númerinu með einhverju móti, en það mistókst. Skipverjarnir létu síðan dynja á okkur kolamolum, einn lenti í höfði mér, svo ég fékk stóra kúlu á ennið, en við gáfums't ekki upp við það, en allt fór á sömu leið. Hann virtist því æt'la að sleppa, en gerði þá reginskyssu, að snúa við, til að hræða okkur. Stefnir beint á bát- inn og beygir ekki fyrr en alveg á sein- ustu s'tundu, fór eins nærri og hann þorði, en beygjan var svo kröpp, að dulan lyftist frá léttbátnum, sem var út við síðuna og við sáum nafnið. Tog- arinn var frá Heljer í Hafnarfirði.“ Skipstjórinn va.r dæindur í 30 gullkróna sekt „Aúðvitað var hann kærður og ég held að hann hafi át't það inni. Seinna vorum við kallaðir til réttarhalda. Á jólaföst'unni kom Sigurður nokkur Gíslason, á sínum tíma þekktur lög- regluþjónn í Reykjavík, suður til að sækja okkur og sverja framburð okkar. Islands Falc var þá einnig búinn að taka togarann, en Falc var þá við gæzlu hér að hálfu Danastjórnar. Þeir tóku hann rétt fyrir innan Berg í út- synningi og urðu að bsit'a valdi við tökuna. Þeir voru harðir í hor'n að taka, ekki síður en Þjóðverjarnir núna. I Reykjavík var skipstjórinn dæmdur í 30 þúsund gullkróna sekt. Þetta var hans þriðja brot, svo hann var tekinn heldur ómjúkum höndum, fékk auk þess tutt'ugu daga varðhaldsdóm, en hann setti veð fyrir öllu saman og fékk að fara. Þriðja brot hans hafði verið við Vestmannaeyjar'. Þeir mönnuðu bát og réðust um borð alveg ákveðnir. Þegar heim kom var skipstjórinn rek- inn, settur af, og átti það víst sannar- lega skilið. Já, og ég seldi bátinn, hinn ánægðasti." Keypti mér Ford-bíl og fékk ökuskírteini nr. 777 En útgerðarsögu Hjartar var þó ekki alveg lokið þar með. Seinna sneri hann sér smávegis að ú'tgerð, en árið 1925 var vélaöldin að marka æ dýpri spor í atvinnulíf Islendinga. B'ifreiðum fór fjölgandi og gagnsemi hennar fyrir landsmenn kom sífellt betur og betur í ljós. „Ég vildi reyna þessa atvinnu, enda nýjung, sem bauð upp á mikla mögu- l'eika og tilbreytingu. Ég keypti mér bifreið og fór að stunda mjólkurflutn- inga fyrir bændurna og hélt þeim á- fram til ársins 1930, að ég flutti inn á Seltjarnarnes. Mig minnir að St'eindór Einarsson hafi annast þessa flutninga í fyrstunni, á hálfkassabíl, flutt bæði farþega, vörur og mjólk, og gerði það í eitt ár eða svo. Ég man ekki eftir öðrum fyrr', en svo keyptu Miðnesing- ar og Garðmenn nýja Fordbíla og byrj- uðu flutninga inn eftir. Ég er því með allra elztu ökumönnum á Suðurnesjum, ökuskírteinið mitt er númer 777 á landsmælikvarða.“ Framhald í næsta blaði Konurnar, sem við bi.rtum myndina af hér að ofan, er litli kórinn í Kvennakór Suðurnesja, eða sá hluti hans, sem skemint hefur víða á Suðurlandi með söng sínum á árshátíðum, þorrablótum og við ýmis hátíðahöld og hlotið mikið lof fyrir. Eins og áður hefur koinið fram, rennur allt það fé, sem þær afla með þessu móti, til Kvennakórsins, og er árei.ðanlega mjög fátítt, en sýnir hins vegar mikla fórnarlund fyrir málcfnið. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hrönn Sigmundsdóttir, Elsa Kjartansdóttir, Rcsa Helgadóttfr, Gauja Magnúsdóttir, Hrefna Sigurðardóttir, Pálína Erlings- dóttir, Kristín Waage, Unnur Gísladóttir, Margrét Fri.ðriksdóttir, Ada Benjamíns dóttir og Sigríður Þorsteinsdóttir. F A XI — 3

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.