Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1975, Blaðsíða 4

Faxi - 01.01.1975, Blaðsíða 4
FAXI Útgefandi: Mólfundafélagið Faxi, Keflavík Ritstjóri og afgreiðslumaður: Magnús Gislason Blaðstjórn: Gunnar Sveinsson, Jón Tómasson, Margeir Jónsson Kristjón Guðlaug'sson, Ragnar Guðleifsson Auglýsingastjóri: Ágúst Matthíasson Setning og prentun: GRÁGÁS sf. Mikið eru kílóin orðin þung Útlitið í hinum ýmsu mólum þjóðarinnar virðist ekki sem bjartast ó hinu nýbyrjaða óri. Efnahagsvandinn mikill, svo til tómur gjaldeyrissjóður, slæm- ar horfur í markaðsmólum, lækkandi verð ó afurðum okkar, hækkandi verð- lag innanlands, svo að undirstöðuatvinnuvegur þjóðarbúsins, sjóvarút- vegurinn og fiskiðnaðurinn, er ó heljarþröminni. Boðað hefur verið til verk- falla í hinum ýmsu greinum, svo að reikna mó með vinnustöðvun ofan ó allt annað. Myndin sem hefur verið dregin upp fyrir okkur er með öðrum orðum einhver sú dekksta um langt órabil, og kenna menn ýmsu um, en munu þó vera sammóla, að þarna eigi hækkandi olíuverð drýgstan hlut að móli, þótt eigi megi skella allri skuldinni ó svonefnda olíukreppu. En þótt allir virðist gera sér grein fyrir því, að voði sé ó ferðum, hafa róðamenn þjóðarinnar, eða aðrir óhrifamenn sem róða yfir sterkum fjöl- miðlum, ekki gengið fram fyrir skjöldu og sýnt vilja í verki um sparnað ó einn eða annan hótt, sennilega af ótta við að missa einhvern spón úr aski sínum, svo verðbólguhjólið heldur ófram að snúast og þjóðin færist nær kviksyndinu. Ef til vill vilja menn ekki trúa því, að þjóðarlíkamann hafi þorrið afl og svara líkt og gamli maðurinn, sem ekki gat bifað steininum, sem hann eitt sinn lyfti: ,,Jó, mikið eru kílóin orðin þung nú til dags." Viðrákumst af tilviljun á þessa mynd í fórum okkar og látum hana flakka — í þeirri von að okkur sýnist rétt, — að þarna sé við stjórnvölinn Sigurður Bjarnason, skipstjóri í Sandgerði. Njardvíkurhreppur Fyrirframgreiðsla útsvara árið 1975 hófst 1. febrúar sl. Aðrir greiðsludagar eru 1. marz, 1. apríl, 1. maí, og 1. júní. Fyrirframgreiðslan nemur 67% af útsvari árs- ins 1974. Greiðsludagur fasteignagjalda var 15. janúar. Atvinnurekendum ber að gera skil á útsvörum starfs- manna sinna, tveim dögum eftir útborgun. Sveitarstjóri Njarðvíkurhrepps

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.