Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1975, Blaðsíða 5

Faxi - 01.01.1975, Blaðsíða 5
Barnastúkan heiðraði Unu Guðmundsdóttur á 80 ára afmælinu Una Guðmundsdóttir að Sjólyst í Gerðum. varð 80 ára þann 14. nóv. sl. At því tilefni efndi Barnastúkan Siðsemd í Garði til hátíðar- fundar nokkrum dögum síðar, en Una er búin að starfa meira en nokkur annar i hennai þágu, var gæzlumaður hennar í 33 ár sam- fleytt og lagði drýgri skerf en nokkur annar í bandindisstarfið í Garðinum. Meðal gesta á fundinum voru ýrrísir framámenn Reglunnar á (slandi, sem þökkuðu Unu fyrir vel unnin störf, þar á meðal Ólafur Þ. Kristjánsson, Ólaf- ur Jónsson og Hilmar Jóns'son. Einnig voru þar margir af þeim, sem haldið hafa uppi merki samtakanna í byggðarlaginu, eins og þeir Jón Eiríksson, Halldór Þorstein'sson, Krist- inn Arnason og Kjartan Asgeirsson, sem þökk- uðu Unu hennar frábæra starf í þágu æsku- lýðs byggðarlagsins, ekki einungis bindindis- starfsins, heldur einnig þeirra góðu áhrifa sem hún hafði á börnin, með leiðsögn sinni á hin- um fjölmörgu sviðum. Þar minncist hennar margir með þakklæti og hlýjum huga. Unu bárust margar gjafir, bæði frá ein- staklingum og samtökum, og Finnbogi Björns- 'son, oddviti Gerðahrepps afhenti henni fyrir 'hönd sveitarfélagsins bréf upp á hálfs mánað- ar dvöl á hressingarhælinu í Hveragerði, sem þakklætisvott fyrir árangursríkt starf í þágu byggðarlagsins. Einnig var hún sæmd merki Góðtemplarareglunnar á fslandi. Núverandi gæzlumaður barnastúkunnar i Garðinum er Sigrún Oddsdóttir. Deilt um varðveizlu húss Stjána bláa Um nokkurra ára skeið hefur verið þráttað um það, hvort varðveita eigi hú's Stjána bláa í Keflavík, en hann er sú persóna, sem ódauðleg verður á fslandi, mest fyrir tilorðning kvæðis Arnar Arnarsonar. Húsið er orðið nokkuð gamalt. en á meðan deilurnar um varðveizlu þess hafa sraðið, grotnaði það niður og telja kunnugir, að ástand þess sé nú orðið það slæmt, að vonlítið sé að endurnýja það og varðveita það í upprunalegri mynd. Bæjar- stjórn ákvað að lokum að lóta mæla það allt upp sem nákvæma'st, þar sem hæpið er að það verði byggt upp héðan af, þrátt fyrir áskor- anir margra. Hörmulegt sjóslys — Tveir menn farast Tveir menn fórust með vélbátnum Hafrúnu BA-10, um miðjan desember sl. Fór báturinn í línuróður i fremur slæmu veðri, og þegar ekkert heyrðist til hans og engir urðu hans varir, var hafin leit, og fannst brak úr bátnurri, bæði á fjörum og eins á sjónum. Sýnt þótti þá, að hann hefði farizt í Faxaflóa, en skip- verjar á honum voru þeir Birgir Hjelm og Sævar Jónsson, báðir búsettir í Keflavík og fjölskyldumenn. Séra Björn Jónsson hlaut lögmæta kosningu á Akranesi Það heyrir til algerra undantekninga, að prestur sé kosinn lögmætri koSningu í þétt- býli, en það gerðist samt á Akranesi í prest- kosningum, sem fram fóru þar i de’sember sl. Umsækjendur voru fjórir, þeirro á meðal séra Björn Jónsson, sóknarprestur í Keflavík. Hlaut hann 1316 atkvæði, eða um 69%. Af þes's- um tölum mó ráða, að Akurnesingar töldu sig fá góðan kennimann og ötulan prest, með því að standa svo einhuga um séra Björn, enda hefur hann starfað ósleitilega, bæði í þágu kirkjunnar og í marg's konar félagsstarfi ! Keflavík og Njarðvíkum. Við óskum séra Birni til hamingju með úrslitin og óskum hon- um alls velfarnaðar í hinum nýja söfnuði, um leið og við þökkum hnoum störf hans i þágu Suðurnesinnna og allt það 'sem hann hefur lagr ril pessa Díaðs. Séra Björn hefur nú verið vígður til Garðaprestakalls, en mun þjóna Keflavikurprestakalli fram á vor. Arangurslaus leit Ein víðtækosta leit sem gerð hefur verið á Suðurnesjum, er leitin að Geirfinni Einarssyni, sem hvarf 19. nóvember sl. og ekkert hefur spurzt til Síðan. Astæða þótti til að ætla, að ekki væri allt með felldu með hvarf hans, og hefur lögreglan lagt á sig mikla vinnu til að reyna að upplýsa hvarf hans, en ekkert hefur komið fram, sem varpað getur Ijósi á málið. Skorað var á almenning í gegnum fjölmiðlaj að veita upplýsingar, leitað var úr þyrlu, björgunarsveitarmenn gengu á fjörur og kembdu 'svo að segja allan Reykjanesskag- ann, en allt kom fyrir ekki. Rannsókninni á hvarfi Geirfinns mun verða haldið ófram. Frystihússbruni í Vogum Frystihúsbruni varð í Vogunum í desember- mcnuði sl. og brann það til kaldra kola á skömmum tíma, án þess að 'slökkviliðið fengi við neitt ráðið, þótt það kæmi fljótlega á stað inn. Það voru beitningarmenn, sem fyrstir urðu eldsins varir um klukkan hálfsex, en klukkan um hálfsjö var húsið brunnið til ösku. Frystihúsið var um 200 ferm. að flatarmáli cg nýstandsett, og var rekið af hálfu Flug- F A X I — 5

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.