Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.01.1975, Qupperneq 6

Faxi - 01.01.1975, Qupperneq 6
Jólaguðsþjónustur og óramót Jólahald mann á Suðurnesjum var með líku móti og áður. Jólaguðsþjónustur voru haldnar og yfirleitt vel sóttar, enda veður hið skap- legosta yfir hátíðarnar. Aramótaskemmtanir voru í hinum ýmsu samkomuhúsum og ekki má gleyma að minnast á jólatrésskemmtanirn ar fyrir yngstu kynslóðina, þar sem jólasvein- arnir komu i heimsókn, sungu með þeim og gáfu þeim einhvern glaðning. Allt fór þetta vel og 'slysalaust fram og endaði með álfa- brennu og dansi á Iþróttavellinum í Keflavík, þar sem þúsundir manna voru saman komnir til að horfa á álfakóng og drattningu, ásamt ólfum syngja og stíga dans. Einnig komu þar ýmsar aðrar persónur við sögu, svo sem Skugga-Sveinn og Ketill skrækur, og blessaðir jólasveinarnir kvöddu börnin áður en þeir héldu til heimkynna sinna, undir stórkost- legri flugeldasýningu. Það er mál manna, að sjaldan hafi betri bragur verið á álfabrenn- unni en einmitt nú. Óska eftir lagabreytingu Skipstjórar á neta- og línubátum á Suður- nesjum hafa verið mjög óánægðir með lög, sem sett voru í des. árið 1973 og telja að með þeim hafi skapast ófremdarástand á mið- um báta, sem róa frá Sandgerði, Keflavik og öðrum höfnum við Faxaflóa. Eftir að lögin voru sett máttu trollbátar toga allt árið á þeim svæðum, sem jafnan hafa verið veiði- 'svæði línu- og netabáta á vetrarvertíðum, vestur og norður af Reykjanesi, og beinlínis hrekja línu- og netabátana af þessum miðum. Til að freista þess að fá leiðréttingu mála sinna, hafa 'skipstjórar á þeim bátum sem stunda veiðar á net og linu, safnað undir- skriftum undir þá kröfu, að tiltekið svæði vestur af Stafnesi verði friðað fyrir öðrum veiðarfærum en linu, netum og handfærum á timabilinu 15. sept. til 15. mai ár hvert. Að 'sögn hefur undirskriftasöfnunin gengið mjög vel og mun krafan um lagfæringuna verða send til viðkomandi ráðuneytis. Fleiri en ofdrykkjumenn biða heilsutjón af yöldum áfengisneyzlu Rannsóknir á áhrifum áfengis á manns- likamann eru komnar hvað lengst á Norður- löndum og í Kanada. Visindamaðurinn dr. Jörg Mörland, hefir um árabil unnið að rannsóknum ó þessu sviði við lyfjafræðistofnun Oslóarháskóla. Nokkrar niðurstöður sinar birtir hann í Folkct i sumar. Þær eru í stuttu máli þeSsar: Svo að segja öll líffæri verða fyrir óhrifum af langvarandi notkun áfengis, og tíðni sjúk- 6 — F A X I dóma i flestum liffærakerfum eykst við slika drykkju. Jafnvel mjög litið magn af áfengi hefir bráð áhrif á mörg líffæri. ÞeSsi áhrif hverfa um leið og áfengið. Samt virðast ýmis konar leif- ar áhrifanna verða eftir í sumum líffærum, og þegar þær nó vissu marki leiða þær af sér varaniegt tjón. (Þetta atriði hefir verið bezt rannsakað í lifur). Afengisrannsóknir siðustu óra hafa leitt i Ijós, að fólk, sem neytir áfengis í svo litlum mæli; að enginn mundi kalla misnotkun, getur orðið fyrir heilsutjóni af völdum áfengisneyzlu og þvi jafnvel óbætanlegu. (Afengi'svarnaráð) Gustavsberg hreinlætistæki Damixa blöndunartæki Gólfdúkur Gólfteppi Stálvaskar Kaupfélag Suðurnesja Skemman — Sími 1790 Polytex- og Rex- skipamálning Þakjárn Þaksaumur Þakpappi Kaupfélag Suðurnesja Járn og Skip — Símar 2616 - 1505

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.