Faxi

Årgang

Faxi - 01.01.1975, Side 14

Faxi - 01.01.1975, Side 14
F. 26. ágúst 1904 D. 7. des. 1974 Með Friðjónr er fallinn í valinn einn af þeim Njarðvíkingum, sem um lang- an tíma hafa sett svip sinn á samfé- lagið í Njarðvíkurhreppi. Friðjón er fæddur á Hellnum á Snæ- fellsnesi og ólst' upp með móður sinni á nokkrum bæjum þar í sveit, en snemma mun hann hafa þurft að sjá um sig sjálfur og taka ungur ákvarðanir, sem ýmsum eldri mönnum þættu erfiðar i dag. Að því leyti hefst lífs.ganga hans á líkan hátt og fjölda þeirra íslendinga, sem nú er óðum að týna t'ölunni. Friðjón flyzt til Njarðvíkur árið 1921 og má segja að hending ein hafi ráðið þeir'ri ákvörðun, en hann mun ekki hafa haft um það áform að dvelja ti'i lengdar þar — og ekki er ólíklegt að nálægð jökulsins hafi tíðum verið sakn- að — þó var þar nokkur bót, að Snæ- fellsjökul mátt'i greina við hafsbrún, ef vel viðraði, og enginn jökull er h’r'einni. Fyrs'tu ár sín í Njarðvíkum stundaði Friðjón ýmis störf, en þó mest sjó- mennsku, en síðar hóf hann akstur vörubifreiðar og stundaði það starf um ár'abil, fyrst fyrir aðra, en síðar keypti hann bifreið og ók fiski og öðrum þungaflutningi mill'i Keflavíkur og Reykjavíkur. Árið 1939 stofnar Friðjón verzlun ásamt Sigurði Gúðmundssyni í Þóru- koti, og allt frá þeim tíma hefir hann verið ver'zlunareigandi í Ytri-Najrðvík, nú síðast átti hann Friðjónskjör, sem hann varð þó að selja á síðastliðnu sumri, er hann var þrot'inn að héilsu og kröftum. Hér hefir verið stiklað á stóru, án þess að getið væri þeirra þátta, er helzt hafa mótað hamingju Friðjóns, en þar á ég að sjálfsögðu v'ið fjöl'skyldulíf hans, en þar var hann mikill gæfumaður. Friðjón stofnaði sitt eigið heimili með eftirlifandi konu sinn'i, Jóhönnu Margréti Stefánsdóttur frá Fossi í G'r'ímsnesi árið 1938. Bústaður þeirra hefir lengst af gengið undir upphaf- legu nafni, sem er Vellir, en er nú MINNING Friðjón Dónsson KAUPMAÐUR Fæddur 26. ágúst 1904. — Dáinn 7. des. 1974 Borgarvegur 8. Allir sem til þekkja, kannast' við þá vinsamlegu hlýju, sem þar hefir ávallt ríkt og hefir hið fagr'a héimili þeirra borið glæsilegan vott um samheldni og rausnarskap húsráðenda, enda hafa Njarðvíkingar og aðrir gestir átt þar skemmtil'egar stundir og notið fölskvalausrar gest'risni. Börn þeirra hjóna, sem öll eru efnis- fólk, er'u: Katrín, f. 1937, en hún er gift Pálma Viðari Óskarssyni, bifreiðarstjóra, Sig- ríður, f. 1944, gift Þórhalli Guðmunds- syni, bifreiðarstjóra, og Smár'i', f. 1950, en hann er hei'tbundinn Jenný Lárus- dóttur. Auk barna sinna ól Friðjón upp að nokkru son Jóhönnu af fyrra hjóna- bandi, en nafn hans var Karl Oddgei'r's- son, en hann lézt fyrir allmörgum ár- um, en hann var mi'kill efnismaður. Mun það hafa verið meira áfall fyrir Friðjón en ýmsa gr'unar, þótt hann l'éti ekki mikið á því bera. Hitt er svo jafn- víst, að hann hefir af fremsta megni s'tyrkt ekkju Karls, Elínu Þórðardóttur, og börnin hennar fjögur, en .góðvild og hjálpsemi voru þeir þætt'ir í fari Frið- jóns, sem ég tel að hafi einkennt hann einna mest. Friðjón var enginn hávaðamaður, en allir, sem til hans þekktu, vissu, að hann var óskiptur í skoðunum sínum, og drengskapur' í orði og verki var hans aðalsmerki — en stundum má draga í efa, að slíkt aðalsmerki sé hent- ugt' fyrir verzlunrmann. — Hann hefði þó síðastur manna sagt frá því, þótt hann tapaði trú sinni á heiðarl'eikann, en hann var svo orðvar, að ég heyrði hnn aldrei hallmæla neinum, þó vissi ég til þess að honum var stundum heitt í hamsi. Að leiðarlokum er mér efst í huga er ég minnist þessa vinar míns, sú hljóðláta vinsemd, sem einkenndi allt hans viðmót, enda var hann sérlega vinsæl'l. Friðjón tók ekki mikinn þátt í félagsmálum, enda var ekki mikill 'tími aflögu frá erilsömu starfi, sem oft mun hafa krafizt' 14 til 16 stunda vinnudags, en þó var hann einn af stofnendum Lionsklúbbs Njarðvíkur og einn af virkustu félögum þess klúbbs, og var hann heiðursmeðlimur klúbbsins síð- ustu árin. Um l'eið og ég kveð þennan látna heiðursmann og bið honum Guðs bless- unar vil ég senda mínar innilegustu samúðarkvéðjur til eiginkonu og, barna tengdabarna og barnabarna. Ingólfur Aðalsteinsson KVEÐJA f,rá Lionsklúbbi Njarðvíkur Friðjón Jónsson var einn af stofnfé- lögum Lionsklúbbs Njarðvíkur árið 1958. Hann starfaði sem ötull félags- maður frá uppafi í klúbbnum, með sín- um verzlunarstörfum. Hann var gerð- ur að heiðursfélaga í Lionsklúbbnum árið 1972. Við félagarnir sendum hon- um okkar hinztu kveðjur með þakklæti fyrir allar ánægju- og gleðistundir, sem við áttum með honum. Blessuð sé minning þín. 14 — F A X I

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.