Faxi - 01.12.1996, Side 5
Kórinn
syngur við setningu vinabæjarmóts í H jörring
^ðasögum hættir til að vera
endalausar leiðinlegar upptalningar
”l>ar næst, þar á eftir, síðan, svo að
°kum„”. Ég ætla samt að revna.
Laugardaginn 1. júní 1996 hélt
Kói' Keflavíkurkirkju í söngferð til
^víþjóðar og Danmerkur. Kórinn var
“Ó endurgjalda heimsókn Kórs
r°Uhattankirkju frá því um vorið
l994; Til Trollhattan komum við
seinni Part dags. Gestgjafamir tóku á
móli °Lkur strax í Gautaborg og báru
okkur á hönduni sér þá daga sem við
dvöldum hjá þeim. Þvílíkar móttökur
og gestrisni. Okkur var komið fyrir á
hóteli í hjarta bæjarins og boðið í
kvöldmat. Þrátt fyrir að komið væri
kvöld og myrkur vildu þau endilega
sýna okkur stærsta stöðuvatn Svfjvjóð-
ar, Vánern. Svo var öllum raðað í
einkabíla þannig að í hverjum bíl var
amk. einn sem var sæmilega að sér í
skandinavísku. I gegnurn þoku og
milli trjánna sáum við Vanern, og
annað merkilegt nefnilega elgi sem
við fengum að borða síðar. Að
morgni sunnudags sungum við í fyrsta
skipti opinberlega í ferðinni. Það var í
hinni stórglæsilegu kirkju Trollháttan.
Daginn áður hafði verið fermingar-
guðsjrjónusta en á sunnudeginum var
messa og altarisganga. Þar sungum
við 4 sálma og gengum til altaris með
kikjugestum.
Eftir liádegi sungum við í Örgryte í
Gautaborg í safnarðheimili þar sem Is-
lendingafélagið hefur aðsetur. Svo
var farið í Liseberg sem er stór og
skemmtilegur skemmtigarður með
fullt af tækjum og rússibönum. Einari
var talin trú um að Fjóla hefði farið í
þann svæsnasta. Hann hældi henni
vel og lengi en varð voða sár jregar
hann kornst að hinu sanna, að Fjóla
hefði bara horft á hann og kannski
ímyndað sér að |iað gæti verið gaman
að prufa. Þreytt og sæl eftir góðan
dag komum við til Trollháttan rétt fyr-
ir miðnætti. Gísli bauð þá upp á fram-
burðarkennslu í dönsku. En hann var
nreð á geisladisk danska lagið á
prógramminu í flutningi höfundarins
Benny Andersen og Poul Dissing.
Svantes lykkelige dag. Guðmundur
Sig. einsöngvari og Hrönn héldu litla
tvísöngstónleika.
Mánudagurinn 3. júní. Það er enn
stjanað við okkur. Gestgjafarnir
keyrðu okkur um allan bæ og ná-
grenni. Einn túlkur í hverjum bíl.
Saab bílaverksmiðjumar eru í Troll-
háttan og í tenglsum við þær stórt og
rnikið safn með öllum tegundum af
fólksbílum sem jteir hafa farmleitt.
Þekktastur er bærinn fyrir skipastiga
sem liggja upp í Vánem. Hinir fyrstu
voru gerðir árið 1800, þóttu og þykja
enn mikil mannvirki. Enn veisla. Nú
FAXI 105