Faxi - 01.12.1996, Qupperneq 37
FAXI líll.AISLAI) l!l!lli
Námsstyrkir Námsmannapjónustu
Sparisjóðsins í Keflavtk
Um mitt síðasta sumar var tilkynnt um út-
hlutun námsstyrkja úr hinni svonefndu
Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins í Kefla-
v,k en þetta er fimmta árið sem slíkir styrkir eru
Veittir. Eins og flestum er kunnugt er Sparisjóðurinn
1 Keflavík mikilvirkur styrktaraðili á sviði menning-
armála á Suðurnesjum og á það ekki hvað síst við á
'fróttasviðinu. Með tilkomu Fjölbrautaskóla Suður-
nesja gjörbreyttust aðstæður ungs fólks á Suðurnesj-
111,1 varðandi framhaldsnám sem kom m.a. fram í því
mun fleiri en áður sækja sér menntun á hinum
ýtrtsu sviðum.
Stjórnendur Sparisjóðsins í Keflavík hafa lagt
•h^kið af mörkum á undanfömum árum til að styðja
efnilegt ungt fólk sem er við nám og á þessu ári
klutu eftirtaldir námsmenn styrk:
100.000. kr. styrk fengu Gestur Pétursson en hann
e' að Ijúka B.S. námi í tæknifræði frá Oklahoma
State University og Unnur B. Halldórsdóttir sem
lýkur B.Ed. námi frá Kcnnaraháskóla íslands.
50.000. kr. styrk fá Hulda María Stefánsdóttir og
arlotta Sigurbjörnsdóttir en þær voru báðar að
Juka stúdentsprófi frá Fjölbrautarskóla Suðumesja.
Það voru þeir Ólafur Ambjömsson, skólameistari
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri SSS
°§ Friðjón Einarsson, forstöðumaður M.O.A. sem
skipuðu dómnefndina sem sá um valið á styrkþeg-
Ununt. HH
Myndin var tekin í Sparisjóðnum við afhendingu námsstyrkjanna. Frá vinstri eru á myndinni Páll
Jónsson, sparisjóðsstjóri, Bjarney Hallmannsdóttir með son sinn Hallmann Oskar Gestsson, en hún
tók við styrknum fyrir hönd eiginmanns síns Gests Péturssonar, Hulda María Stefánsdóttir, Unnur B.
Þórhallsdóttir, Þórður Björnsson sem tók við styrknum fvrir hönd dóttur sinnar Þórdísar. Lengst til
hægri er síðan Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri. Ljósmynd/Ljósmyndastofa Suðurnesja.
Fasteignasalan
Hafnargötu 27. Keflavík
Símar 421 1420-421 4288
✓
Oskum viðskiptamönnum okkar
gleðilegrar hátíðar og þökkum
góð viðskipti á árinu.
Hilmar Pétursson
FAXI 137