Faxi - 01.03.1999, Side 12
Crófln 8 • K'flavtk ■ ,lml 421 4670 C^n 8 * ' "m'421 4670
Bílakringlan, Stapafell o.fl.
opna Bílabúðina í Grófinni
Þann 19. mars .s.l. var ný varahluta-
verslun fyrir bíla opnuð í Grófinni í
Keflavík. Verslunin , sem ber nafnið
Bílabúðin, er í sama húsnæði og vara-
hlutaverslun Bílakringlunnar hefur verið
í undanfarin ár. Sagan að baki hinni
nýju búð er nokkuð merkileg því hér var
verið að sameina tvær varahlutaversln-
anir sem verið hafa Ieiðandi á þessum
markaði á Suðurnesjum um áratuga
skeið. Önnur þeirra var verslun
Bílakringlunnar en Birgir Guðnason
hefur verslað með bílavarahluti og
málningarvörur í Grófmni í 30 ár og hin
var varahlutaverslun Stapafells sem rek-
in hefur verið við Hafnargötuna í hart
nær hálfa öld. Með þeim eru það síðan
tveir aðrir aðilar sem standa að þessari
verslun, Heildverslunin Orka og Heild-
verslun Snorra G. Guðmundssonar.
Þessir aðilar báðir hafa átt mikil við-
skipti við verkstæðiseigendur og vara-
hlutaverslanimar gegnum tíðina og stíga
nú skrefinu lengra og taka fullan þátt í
rekstri þessarar verslunar. Eigendurnir
eru bjartsýnir á að geta veitt bíleigend-
um á svæðinu betri þjónustu en áður
enda verður vöruúrvalið fjölbreyttara en
áður. Fyrst um sinn munu þeir Guðbjart-
ur (Baddi í Stapafelli) Björnsson og
Guðni Pálsson sjá um afgreiðslu í versl-
uninni en reiknað er með að þriðja
starfsmanninum verði bætt við fljótlega.
Framkvæmdastjóri verslunarinnar
verður Þórður Ragnarsson.
HH.
Bílakringlan
tekur í notkun
bílaþvottastöð
Bílar, bílar og enn meiri bílar. Bílabúðin er vel staðsett í Grófinni með
öðru húsnæði Bílakringlunnar og einnig er að finna í nágrenninu önnur
fyrirtæki sem þjóna hinum fjölmörgu bíleigendum.
Hér má sjá fulltrúa eigenda Bílabúðarinnar. Frá vinstir eru það Jóhann
(iunnar Stefánsson frá Orku, Stefán Jónsson frá Stapafelli, Snorri Snorra-
son frá Heildverslun Snorra G. Guðmundssonar, Pál H. Guðmundsson frá
Orku og Birgi Guðmundsson frá Bílakringlunni.
Sama dag og Bílabúðin var opnuð tók
Bílakringlan í notkun sjálfvirka bíla-
þvottastöð en ein slík hefur verið í notk-
un hjá Aðalstöðinni til margra ára. Stöð-
in er búin þýskum tækjum en verður rek-
in þannig að starfsmaður verður ávallt til
staðar bíleigendum til aðstoðar. Mun
hann m.a. sjá um að tjöruþvo bílana ef
þess gerist þörf, losa af bílunum útvarps-
loftnet og annað er þurfa þykir hverju
sinni. Að sögn Birgis Guðnasonar var
þessi leið valin sökum þess að talið er að
mjög margir veigri sér við að fara einir
með bíla sína gegnum sjálfvirkan þvott.
Daginn sem opnað var fengu menn að
prófa stöðina án endurgjalds og urðu
fjölmargir til þess að nýta sér það kosta-
boð. Þá verður einnig boðið uppá
handþvott, bón og alhreinsun eins og
verið hefur. HH.
IM .1 m I *
—J m
Nýja Bílaþvottastöðin í Bílakringlunni. Ljósm: Faxi/HH
Þeir horfa björtum augum til framtíðar-
innar (iuðni Pálsson og Guðbjartur
Björnsson en þeir munu sjá um að af-
greiða viðskiptavini. Mun þeim vafalaust
farast það vel úr liendi enda búa þeir báðir
yfir inikilli reynslu við verslunarstörf.
12 FAXI