Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 13

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 13
Minning: Þórhallur Guðjónsson Fœddur ló.júlí 1931 - Dáinn 25. desemher 1998 Mágur minn, Þórhallur Guðjónsson húsasmíðameistari, er látinn. Hann lést á Sjúkrahúsi Keflavíkur á jóladag eftir að hafa barist við erfiðan sjúk- dóm í langan tínia. Þrátt fyrir að Þórhallur hafi lengi vitað að hverju stefndi, var hann ávallt glaður og hress þegar við hjónin heim- sóttum hann á heimili hans. Var þá ekki óalgengt að við Þórhallur kæm- um okkur fyrir, þar sem við gátum rætt saman aðaláhugamál okkar, sem var íþróttir. Oftast var það knattspym- an sem var á dagskrá og þá oftar en ekki gengi Keflavíkurliðsins í knatt- spymu. Svo kom að því að Þórhallur gat ekki lengur verið heima og varð að leggjast inn á Sjúkrahúsið í Keflavík. Þar naut hann frábærrar aðhlynningar og umönnunar starfsfólks sjúkrahúss- ■ns og ber vissulega að þakka það. Þórhalli kynntist ég fyrst þegar ég Hutti lil Keflavíkur, en þá varég giftur systur hans. Urðum við Þórhallur strax miklir mátar, enda áhugamál okkar hin sömu. Að vísu var Þórhallur mikill áhuga- maður um frjálsar íþróttir og var reyndar lengi keppandi í þeim, en hann hafði einnig mikinn áhuga á knattspymu. Ófáar ferðirnar fórum við Þórhallur saman til Reykjavíkur til að horfa á knattspyrnuleiki. Það var í einni slíkri ferð sumarið 1955 að við Þórhallur og fleiri fórum til Reykja- v'kur að sjá leik í íslandsmótinu í knattspyrnu. Áttust þá við Skagamenn °g Valur. Ekki man ég hvernig sá leikur endaði, en ég man vel eftir heimferðinni, því þá fórum við að neða um það að nauðsynlegt væri að konia upp góðu knattspyrnuliði í Keflavík. Úr því að það væri hægt á Akranesi, því þá ekki í Keflavík? Ihúafjöldi var þá hinn sami á báðum þessum stöðum, enda var Kellavík á þessum tíma stærsta bæjarfélagið seni ekki hafði sérstakt íþróttabandalag, en há voru Keflvíkingar í fþróttabanda- h'gi Suðumesja. í þau fáu skipti sem það tók þátt í íslandsmóti var liðið valið af öllum skaganum. Er ekki að orðlengja það frekar, því lljótlega var farið að kanna jressi mál og eftir mikil fundahöld og breytingar á lögum íþróttahreyfingarinnar var samþykkt að gera Keflavík að sérstöku íþrótta- héraði. Var Þórhallur mjög atkvæða- mikill í þessu máli, enda var hann þá formaður Ungmennafélags Keflavíkur og reyndi því mikið á hann. Til gam- ans má geta þess að markið var sett liátt eftir að ÍBK var stofnað. Tak- markið var að Kenavíkurliðið yrði ís- landsmeistari eftir 10 ár frá stofnun. Það tókst og gott betur, því Kellavík- ingar urðu íslandsmeistarar í knatt- spyrnu 1964, eða átta árum eftir að bandalagið var stofnað. Þórhalli voru falin ýmis störf fyrir íþróttahreyftnguna og önnur félaga- samtök. Þórhallur var í stjórn Ung- mennafélags Keflavíkur í 15 ár og lengst af sem formaður. Þá átti hann sæti í fyrstu stjórn Iþróttabandalags Kenavíkur og var hann í stjóm þess í 13 ár. Þórhallur var lengi í stjórn Stangveiðifélags KeOavíkur, eða 19 ár. Einnig átti hann sæti í stjóm Frjáls- íþróttasambands íslands um tíma. Það verkefni sem var þó viðamest af því sem Þórhallur tók að sér var for- mennska í landsmótsnefnd vegna landsmóts Ungmennafélags íslands sem lialdið var í Kellavík og Njarðvík árið 1984. Hér var um geysimikla vinnu að ræða við að skipuleggja mót- ið sem var það fjölmennasta sem háð hafði verið. Þetta leysti Þórhallur svo vel af hendi að öll skipulagning móts- ins var eins og best varð á kosið, enda voru Þórhalli færðar sérstakar þakkir í mótslok fyrir frábært starf. Þórhallur hlaut margvíslegar heið- ursveitingar fyrir stöiT sín að íþrótta- málum. Hann var gerður að heiðursfé- laga i Ungmennafélagi Kellavíkur á 50 ára afmæli félagsins árið 1979. Þann heiður hljóta aðeins þeir sem hafa áralangt unnið frábær störf fyrir félagið. Þórhallur var sá yngsti sem hlotnast hefur sæmdarheitið „heiðurs- félagi UMFK“. Hann var þá aðeins 48 ára gamall. Þórhallur var einnig sæmdur gullmerki íþróttasambands íslands á 50 ára afmæli UMFK fyrir mikil og frábær stöif að íþróttamálum. Við fráfall Þórhalls hefur íþróttahreyf- ingin misst góðan félaga sem ávallt var tilbúinn til starfa fyrir hana. Ég þakka Þórhalli fyrir allar samveru- stundir okkar og langt og ánægjulegt samstarf á liðnum árum. Ég sendi öll- um aðstandendum Þórhalls mína inni- legustu samúðarkveðjur. Við söknum hans. Sérstaklega sendi ég Steinunni og börnum þeirra einlæga samúðar- kveðju og bið góðan Guð að styrkja þau á þessum erfiða tíma. Megi Guð gefa þeim kraft og blessun til að standast þennan mikla missi. Hafsteinn (luðmundsson Auglýsing um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar vegna Alþingiskosninga 8. maí 1999 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla til Alþingiskosninga þann 8. maí nk. verður sem hér segir á skrifstofu Sýslumannsins í Keflavík, Vatnsnesvegi 33, Keflavík, og Víkurbraut 25, Grindavík ( hjá aðstoðaryfirlögregluþjóni): Frá 15. mars til og með 30. apríl, alla virka daga frá kl. 09:00 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 15:30. Frá 3. maí til og með 7. maí verður opið frá kl. 09:00 til 12:00 og frá kl. 13:00 til 18:00. Á kjördag, 8. maí verður opið frá kl. 10:00 til 12:00. Sýslumaðurinn í Keflavík, Jón Eysteinsson. FAXI 13

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.