Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 18

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 18
Það er viðtekin ven,ja við skólaslit að þeir nemendur sem skarað hafa framúr á önninni fá fyrir það ýmis konar viðurkenningar. Hér má sjá þann fríða hóp sem að þessu sinni hlaut viðurkenningar. í aftari röð frá vinstri eru Hallvarður P. Jónsson, Vilhjálmur Skúlason, Unnar Örn Unnarsson og Pálmar Guðmundsson. í fremri röð frá vinstri eru Alda Sveinsdóttir, Hanna María Kristjánsdóttir, Marta Jónsdóttir, Margrét Sæmundsdóttir, (iuðbjörg R. Jó- hannesdóttir, Kamilla Ingibergsdóttir og Kristín Valgerður Jónsdóttir. Ljósin.: Myndarfólk/Haukur Ingi Útskrifl frá Fjölbrautaskóla Sudurnesja á haustönn 1998 Urdráttur úr ávörpum við skólaslit á 45. önn Oddný Harðardóttur aðstoðarskólameistari I dag verða útskrif- aðir 37 nemendur frá skólanum. A þessari önn voru innritaðir 740 nemendur í dagskóla og 280 í öldungadeild. Kennarar í fullu starfi voru 50 og stundakenn- arar 8. Nýir kennarar sem í haust bættust í þann fríða hóp sem fyr- ir var, voru þau Ivar Valbergsson vélstjórn- arkennari, Guðrún Ragnarsdóttir efnafræðikennari, Sesselja Magnúsdóttir sögukennari og Steinunn Tóm- asdóttir sem kennir viðskiptagreinar. Nýir stundakenn- arar voru þau Una Steinsdóttir en hún kenndi áfanga um fjármál í meistaraskólanum og Jón Bjöm Skúlason sem kenndi þjóðhagfræði. Guðbjörg Aðalbergsdóttir tók við stöðu áfangastjóra en Magnús Oskar Ingvarsson sem gengt hefur stöðunni undanfarin ár snéri sér aftur að stærðfræðikennslu í fullu starfi. Við þökkum MÓA fyrir vel unnin störf sem áfangastjóri. Sigríður Bílddal námsráðgjafi er í leyfi í vetur en hún starfar nú hjá Mið- stöð símenntunar á Suðumesjum. Kennsla hófst 25. ágúst en það er nokkru fyrr en venjulega en samkvæmt samningum við kennara og lögum um framhaldsskóla má hnika skólaárinu til og þótti nauðsynlegt að lengja haustönnina þannig að fjöldi kennsludaga á báðum önnum verði sem líkastur. í haust fengum við í fyrsta skipti til okkar nemendur sem ekki eru orðnir sjálfráða. Þetta breytir nokkuð starfsaðferðum okkar. Áður var ekki leyfilegt að gefa aðstandendum nemenda upplýsingar um námsgengi en nú er það skylda okkar að upplýsa aðstandendur og þeir eiga rétt á að fá þær upplýsingar. Af þessu tilefni var tekið upp umsjónarkerfi fyrir nýnema en 9 kennarar tóku að sér að aðstoða þá sérstaklega og fylgjast rneð námsgengi þeirra. Foreldrafundur var haldinn 30. ágúst síðastliðinn. Þar voru um 200 foreldrar nýnema upplýstir um kennsluáætlanir, mætingarreglur, námsráðgjöf og um- sjón með nýnemum. Einnig var áfangakerflnu lýst í stórum dráttum. Skólinn fékk styrki til þróunarverkefna fyrir skólaár- ið 1998-1999 frá þróunarsjóði framhaldsskólanna, meðal annars til að þróa sjálfsmatskerfi fyrir skólann. Matsnefnd skólans hefur unnið að verkefninu og haft samstarf við matsnefnd Menntaskólans á Akureyri. Á þessari önn voru kennsla og áfangar á tæknisviði metin. Á síðastliðnu skólaári voru málasvið, stærðfræði- og raungreinasvið og stjómendur metnir og reynt að bæta það sem betur mátti fara. Sjálfsmat skólans hefur auð- veldað okkur að laka á vandamálum og einnig að átta okkur betur á veikum og sterkum hliðum skólastarfsins. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar í kjölfar niður- staðna og má til dæmis nefna að kennarar töldu að rennslið á upplýsingastreymi frá stjórnendum væri ekki nægilega kraftmikið á stundum, þannig að nú er frétta- bréf gefið út vikulega þar sem helstu atriði varðandi skólastarfið koma fram og nefnist fréttabréfið Anda- pósturinn. Gott samstarf hefur verið við fræðsluráð málmiðnað- arins varðandi netagerð en skólinn hefur sótt um að verða kjamaskóli fyrir netagerðarnám. Kjarnaskólar fá aukið fjármagn til þróunarstarfa og leggur skólinn áherslu á að auka þjónustu á þessu sviði meðal annars með fjarkennslu og bættri námsgagnagerð. Laugardagurinn 17. október var opinn dagur í skól- anum. Almannatengslahópur skólans skipulagði mót- töku gesta og kynnti dagskrá m.a. með kynning- arplakati. Kennsla var með hefðbundnum hætti en í frí- mínútum fluttu nemendur tónlist og Ijóð fyrir gesti. Dagurinn tókst vel að okkar mati og var ánægjulegt hve margir gestir komu en tilgangur þess að hafa opinn dag er að gefa Suðumesjamönnum tækifæri til að sjá daglegt starf skólans og voru kennslustundir skipulagð- ar með það í huga þó nemendur flytji ekki tónlistarat- riði og ljóðalestur í frímínútum á hverjum degi. Við fengum góða gesti í heimsókn á önninni. Meðal annarra komu fjórir Portugalar og einn Dani vegna Leonardoverkefnis sem skólinn tekur þátt í og þing- menn sjálfstæðisflokksins kynntu sér starfsemi skól- ans og sannfærðust vonandi um nauðsyn þess að byggja við skólahúsnæðið. Einnig fengum við í heim- sókn sinfóníuhljómsveit frá Svíþjóð sem að mestu var skipuð tónlistarmönnum á aldrinum 16-20 ára. 18 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.