Faxi

Árgangur

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 15

Faxi - 01.03.1999, Blaðsíða 15
Aðalfundur Kaupfélags Sudurnesia 1998 fram á við og ganga í takt Finimtudaginn 18. niars s.l. var liald- inn aðallundur Kaupfélags Suðurnesja fyrir árið 1998. Segja má að það liafi verið nokkur tímamótafundur því nú eru gengnar í garð verulegar breyting- ar á rekstrarformi fé- lagsins. I lok síðasta árs var lilutafélagið Sam- kaup stofnað með það fyrir augum að það tæki yfir verslunarrekstur kaupfélagsins. Það gekk síðan eftir þann 1. janú- ar 1999. En lítum fyrst á ýmislegt af því sem fram kom á aðalfundinum. Kaupfélagsstjóri er Guð- jón Stefánsson. Undir hans stjórn skilaði félagið sínum besta rekstrarár- angri hin síðari ár. Nam rekstrarhagnaður eftir skatta tæpum 60 milljón- um. Heildarvöruvelta árs- ins nam rúmlega 2,2 milljörðum og lirein eign félagsins nam rúmum 300 milljónum. Starfsmenn voru í lok ársins 202 í 151 stöðugildi. Starfsemi Kaupt’élags Suðurnesja fór á árinu fram á tíu stöðum. Aðal- skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 62 í Keflavík. Félagið rekur átta mat- vöruverslanir og bera þrjár þeirra Samkaups- nafnið og eru þær í Njarð- vík, á ísafirði og í Hafn- arfirði. Þrjár verslnanir bera Sparkaups-nafnið; þ.e. í Keflavík, Sandgerði og Garði. Lágvöruversl- unin Kaskó er í Keflavík og þar er einnig lítil þjón- ustuverslun. Þá rekur kaupfélagið kjötvinnslun- ina Kjötsel í Samkaups- húsinu í Njarðvík. SAMKAUP HF. Eins og áður sagði tók Samkaup hf. við öllum verslunarrekstri þann 1. janúar s.l. Sem hlutafé í hinu nýja félagi lagði kaupfélagið fram tæki og búnað verslana, skrifstofu og kjötvinnslu. Samkaup hf. tók við vörubirgðum, viðskiptakröfum og öðr- um skammtímaskuldum miðað við áramótin. Jafn- frarnt tók Samkaup hf. að sér skammtímaskuldir Kaupfélagsins, s.s. skuldir við birgja o.fl. Kaupfélag- ið mun áfram reka allar fasteignir og leigja þær nýja félaginu. FORKAUPSRÉTTUR Síðar á árinu er gert ráð fyrir að boðin verði út hlutafjáraukning í hinu nýja félagi og í framtíð- inni er stefnt að því að það verði opið félag á hlutabréfamarkaði. Heild- arhlutafé Samkaupa hf. er nú 225 milljónir króna og er það allt í eigu Kaupfé- lags Suðurnesja. Fyrir- hugað er að félagsmönn- um Kaupfélagsins verði boðinn forkaupsréttur við áðurnefnda hlutafjáraukn- ingu en þeir voru um síð- ustu áramót 3.406. í 7 deildum. TÍMABÆR BREYTING Að lokum látum við hér fylgja svar Guðjóns Stef- ánssonar er við spurðum hann að því hvers vegna Samkaup hf. hafi verið stofnað. Félagið er með þessu að nýta sér það for- skot sem hlutafélagsform- ið hefur. Við ætlum ekki að láta halla á okkur, bara vegna rekstrarformsins, við teljunr hinsvegar að við séunr að stíga skref við nýja tíma. Kaupfélag Suðurnesja er þannig fyrst kaupfélaga til að stíga slíkt skref með allan sinn rekstur. Ég vona að þetta sýni að Kaupfélag Suður- nesja vill fylgjast með nýjungum á þessu sviði eins og öðrum og þorir að hagnýta sér þá kosti sem í boði eru. Nýtt deiliskipulag Samkvæmt grein 6.2.3 í skipulagsreglugerð sem sett er samkvæmt 10. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73 frá 28. maí 1997, er lýst eftir athugasemdum við eftirfarandi tillögu að deiliskipulagi í Reykjanesbæ. Reitur fyrir fjölnota íþróttahús Svæðið afmarkast af Flugvallarvegi að norðan, Kjarrmóa að sunnan, Nikkelsvæðiað vestan og göngustíg milli Kjarrmóa og Flugvallarvegar að austan. Á svæðinu er gert ráð fyrir byggingu 8-9 þúsund fermetra fjölnota íþróttahúss. Tillagan liggur frammi á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, frá 17. mars til 14 apríl 1999. Athugasemdum við tillögurnar skal skila til bæjarstjóra Reykjanesbæjar eigi síðar en 28. apríl 1999, og skulu þær vera skriflegar. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunum. Reykjanesbær 17. mars 1999 Bæjarstjórinn í Reykjanesbæ FAXI 15

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.