Faxi - 01.03.1999, Side 14
FAXI Mars 199»
Hið nýja afgreiðslu- og verkstæðishús SBK. Fyrir miðju er afgreiðslan en
stóru dvrnar vinstra megin við rútuna eru á verkstæðinu. Aftan við þetta
hús rís síðan bílgeymslan.
Eins og sjá má er bílgeymsla SBK engin smásmíði. Enn sem komið er er
hún óupphituð en vonandi rætist úr því innan tíðar. (ieinarhöfundi varð að
orði þegar hann kom í húsið og sá lofthæðina að þar mætti auðveldlega
koma upp fyrirtaks fimleikahúsi með því að setja inilliloft í húsið. En það
er nú önnur saga en hugmyndinni er samt sem áður komið hér á frainfæri!
Ljósm: Faxi/HH
I>að er ágæt aðstaða sem starfsmenn SBK hafa þegar þarf að dvtta að bif-
reiðum fyrirtækisins. Flestir bílstjóranna taka þar til hendinni og hér má
sjá þegar verið var að skipta um framrúðu á einum bílnum.
Um miðjan nóvember s.l.
flutti afgeiðsla SBK af
Hafnargötu 12 í Grófina í
fyrrum húsnæði Dráttarbrautar
Keflavíkur. SBK byggði húsið að
Hafnargötu í bvrjun 6. áratugarins
og var fyrst með starfsemi í öllu
húsinu en síðan voru bæjarskrif-
stofur Keflavíkur til húsa á efri hæð
hússins þar til þær fluttust að
Tjarnargötu 12 fyrir nokkrum
árum. Fyrirtækið Ný-Ung í Kefla-
vík hefur nú keypt húsið en ekki er
enn komið í Ijós til hvers það veröur
nýtt.
Keflavíkurbær eignaðist hús Drátt-
arbrautarinnar fyrir nokkrum árum og
hefur hluti þess verið leigður út til ým-
issa aðila og nú síðast til SBK sem
leigir stærstan Itluta hússins. Hið nýja
afgreiðslu og verkstæðishús SBK er
tvískipt og í eldri hluta þess eru skrif-
stofur, almenn afgreiðsla, aðstaða fyrir
starfsfólk og verkstæði. Nýrri hluta
hússins var aðalvinnsluhús dráttar-
brautarinnar, stórt og mikið hús með
heilmikilli lofthæð. 1 þessum hluta eru
nú rúturnar geymdar í skjóli fyrir
14 FAXI
veðri og vindum og þarna er einnig
aðstaða til að þrífa þær.
Eins og fram kom í síðasta tölublaði
er Einar Stcinþórsson tekinn við fram-
kvæmdastjóm hjá SBK og hittum við
hann nýlega að máli til að fræðast um
hvemig gengið hefur að koma sér fyrir
með starfsemina á nýjum stað og hvað
væri annars a döfinni hjá SBK. Fara
svör hans hér á eftir:
Við erum hér með alla starfssemina
á einum stað sem er mikill kostur.
Enn eigum við samt svolítið í land
með að klára húsnæðið og gera það
eins og við viljum hafa það. Við eig-
um eftir að Ijúka frágangi utandyra,
ganga frá stæðum fyrir rútumar, setja
upp lýsingu og sitthvað fleira.
I janúar gerðum við þá breytingu á
áætluninni að helgaráætlun var sam-
ræmd áætluninni í miðri viku. Aætl-
unin er því eins alla vikuna, að því
undanskildu að l'yrsta ferðin fellur nið-
ur um helgar og er því fyrsta brottför
frá Keflavík kl. 8.30 á laugardöguni
og sunnudögum. Einnig er búið að
setja upp skilti á allar stoppistöðvar
með upplýsingum um áætlunina. 1
öllum ferðum er ekið fram hjá Kringl-
unni, niður Laugaveg. Hverfisgötu,
Lækjargötu og niður á BSI. A joessari
leið er fólk komið í mjög góða teng-
ingu við SVR og er því greið leið uni
alla borgina.
Ekki verða gerða stórar breytingar á
rekstrinum sem verður með hefð-
bundnu sniði, þ.e. fyrir utan áætlunina
til Reykjavíkur, skólaasktur í ná-
grannabyggðirnar, akstur strætisvagna
og við erum í hópferðaakstri rneð ís-
lenska og erlenda ferðamenn um land
allt. I því sambandi er gaman að geta
þess að við eigum von á nýjum bíl á
næstu vikum. Þetta er 54 sæta MAN
nteð sjónvarpi, myndbandstæki,
geislaspilara, ísskápi o.fl. þægindum.
Við erum mjög stoltir af því að fá
þessa glæsilegu rútu í annars ágætan
bílaflota sem fyrir er hjá okkur.
Við þökkum Einar greinagóð svör
um leið og við óskum SBK og starfs-
fólkinu velfamaðar á nýjum stað. HH
Einar Steinþórsson framkvæmdastjóri við vinnu sína. Skrifstofan er björt
og vel staðsett og hefur hann bæði yfirsýn yfir bifreiðaplanið og afgreiðsl-
una.
I=C3 1 1 'odöö d
mmd i&ffi