Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.03.1999, Qupperneq 17

Faxi - 01.03.1999, Qupperneq 17
 FAXI Mars 1999 / Pað er lítill vafi á því að sterkustu körfuboltalið landsins er að finna í Reykjanesbæ. Að þessu sinni voru það Njarðvíkingar sem unnu bikarinn. Ljósm. Víkurfréttir. Þegar Ijóst var að úrslitaleik- ur Bikarkeppni KKÍ yrði á milli ineistaraliðanna úr Reykjanesbæ þá var það Ijóst fyrir- fram að það myndi verða hörku- leikur eins og þeir gerast bestir. Leikurinn var leikinn í Laugardals- höllinni laugardaginn 6. febrúar s.l. fyrir fulli húsi og honum var jafnframt sjónvarpað beint á Stöð 2. Njarðvík- ingar báru sigur úr bítum og bættu enn einum meistaratitlinum í safnið. En það verður að segjast eins og er að þegar innan við hálf rnínúta var til leiksloka virtust Keflvíkingar vera með sigurinn í höndunum. En þegar körfuboltinn er annars vegar er það tvennl sem þarf að hafa í huga. 1 fyrsta lagi getur leikur snúist gjörsam- lega við á örskömmum tíma og liitt er að þegar Njarðvíkingar eru annars vegar þá gefast þeir aldrei upp og í þeirra augum er leiknum ekki lokið fyrr en bjallan glymur. Frá upphafi var leikurinn mjög jafn og gerði hvorugt liðið sig líklegt til að stinga hitt af. Hittni Njarðvíkinga var heldur betri (49% - 43%) en ekkert hallaði á í fráköstunum (36 - 36). Aldrei skildu mörg stig liðin að en undir lok síðari hálfleiks náðu Kefl- víkingar yfirhöndinni, voru m.a. 7 stigum yfir þegar tæp hálf mínúta var eftir af leiknum. En heilladísirnar snérust á sveif með Njarðvíkingunum. Falur Harðarson hinn eitilharði bak- vörður var kominn út af með fimm villur, Birgir Örn Birgisson varð að fara út af með blóðnasir og hin örugga vítaskytta Kristján Guðlaugsson brenndi af tveimur vítaskotum. Er skemmst frá því að segja að Njarðvík- ingarnir jöfnuðu leikinn og knúðu fram framlengingu með glæsilegri þriggjastiga körfu Hennanns Hauks- sonar sem náði frákasti eftir skottil- raun Brentons Birminghams, lék knettinum út fyrir þriggja stiga línuna og skaut þaðan beint ofaní á síðustu sekúndu leiksins. Menn geta rétt ímyndað sér stemm- inguna í Laugardagshöllinni þegar Hermann hafði jafnað leikinn. Njarð- víkingarog stuðningsmenn þeirra ætl- uðu af göflunum að ganga en Keflvík- ingar og stuðningsmenn þeirra trúðu varla sínunt eigin augum. Áhorfendur sem margir voru á leiðinni út úr hús- inu því þeir vom búnir að bóka Kefl- víkingum sigur snéru nú aftur þegar þeim varð ljóst Itvað gerst hafði. Það var erfið raun fyrir lið Keflavíkur að einbeita sér í framlengingunni auk þess sem Fals naut ekki lengur við. Enda fór það svo að Njarðvíkingar réðu lofum og lögum og unnu leikinn með 102 stigum gegn 96. Stórskemmtilegum og ákaflega spennandi leik var lokið og eins og svo oft áður þótti manni leiðinlegt að aðeins annað liðið hlaut sigurlaunin. Stigaskorun einstakra leikmanna var sem hér segir: Njarðvík Brenton Birmingham...........26 Teitur Örlygsson.............24 Friðrik Ragnarsson...........18 Hennann Hauksson.............14 Friðrik Stefánsson...........14 Páll Kristinsson..............6 Keflavík Damon Johnson................37 Falur Harðarson..............25 BirgirÖm Birgisson...........15 Guðjón Skúlason...............9 Hjörtur Harðarson.............4 Gunnar Einarsson..............4 Til hamingju Njarðvíkingar HH Heiðarskóli Þeir seni lagt hafa leið sína um Heiðarhverfi undanfama mánuði hafa orðið vitni að því að nýr skóli er að rísa í Reykjanesbæ. Skólinn heitir Heiðarskóli og H mun kennsla hefjast í honum strax næsta haust. Skólinn mun hýsa nær 500 nemendur frá aldr- inum 6-16 ára. Jafnframt mun ganga í gildi nýtt skipulag í skólamálum í bænum því þá verða allir skólar bæjarins lang- skiptir, þ.e. allir skólarnir verða með nemendur í 1. - 10. bekk. Hefur bænum því verið skipt upp í ný skólahverfí. Faxi mun fjalla meir um skólamálin í næstu blöðum en birtir hér mynd af hinum nýja Heiðaskóla eins og hann leit út nú undir lok rnars. Ljósm: Faxi/HH FAXI 17

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.