Faxi - 01.06.1999, Síða 5
WMI
FAXI Jiíní !!)!)!)
A|*qiskosningap 8. maí 1888
Kosningar til jiings fóru fram laugardaginn 8. maí
s.l. í blíðskaparveðri um land allt. Þótt kjörsókn hafi
í heild verið með minna móti þá var í öllu falli ekki
hægt að kenna veðrinu um. Því miður þykast menn
sjá almennt minnkandi áhuga fólks fyrir því að nýta
sinn atkvæðisrétt og virðist það í samræmi við það
sem gerst hefur meðal annarra vestrænna lýðræðis-
ríkja. M.a. var undir 25% þátttaka í sveitarstjómar-
kosningum á Englandi fyrir skömmu. Vonandi er þó
langt í að það verði þannig hér á landi því þótt kjör-
sókn hafi ekki verið minni síðan árið 1942 þá var
hún samt í heild yfir landið allt 83,1%. Athygli vek-
ur að það er í stærstu kjördæmunum sem kjörsóknin
er minnst, þ.e. 81,1% í Reykjavík og 82, 9% á
Reykjanesi. Mest var kjörsóknin á Norðurlandi
vestra, 87,8%
flokksins og ráðherra til margra ára, hafði forgöngu
um að stofnað var til nýs framboðs er fékk nafnið
Frjálslyndi flokkurinn og var aðalbaráttumál lians
afnárn kvólans í núverandi mynd. Vegna óánægju
með útkomu í prólkjöri Sjálfstæðismanna á Vest-
fjörðum gekk Guðjón A. Kristinsson til liðs við
Frjálslynda flokkinn og skipaði efsta sæti listans þar
vestra. Reyndist það happadrjúgt fyrir framboðið
því hann fékk tæp 18% atkvæða og náði Guðjón þar
með kjöri sem þingmaður. Þetta hafði síðan það í för
með sér að Sverrir komst inn í Reykjavík sem upp-
bótarþingmaður. í heild verða því miklar breytingar
á þinginu sem nú tekur við því fjórir flokkar eru
hoiínir og þrír nýir komnir í staðinn!
ÚRSLIT Á LANDINU ÖLLU
FYRIRHEIT UM BREYTINGAR
I aðdraganda kosninganna gætti nokkurrar
spennu, a.m.k. ef litið er u.þ.b. ár aftur í tímann. Rík-
isstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks
hafði, að því er almennt var talið, náð góðum árangri
enda voru uppgangslímar í þjóðfélaginu. Stjómar-
andstaðan hal'ði haldið því einna helst á lofti að af-
rakstri góðærisins hefði verið misskipt og boðaði
breytingar. Lengi vel leil út fyrir að vinstri stjórn-
málaöflin myndu nú loks mæta sameinuð til leiks og
skoðanakannanir gáfu fyrirheit um mikið fylgi, fylgi
sem slagað gæti upp í fylgi Sjálfstæðisflokksins.
Liðsmenn Alþýðubandalags, Alþýðuflokks, Þjóð-
vaka og Samtaka um kvennalista mynduðu sameig-
inlegt framboð sem fékk nafnið Samfylkingin. Þegar
til kastanna kom klufu þó Steingrímur Sigfússon og
nokkrir aðrir sig út úr hópnum og stofnuðu til fram-
boðs er lckk nafnið Vinstri hreyftngin - grænt fram-
boð. Þegar svo var komið sýndu skoðanakannanir
að ekki myndi verða að vænta neinna stórkostlegra
breytinga og reyndist það svo þegar á hólminn var
koniið.
SVERRIR HERMANNSSON OG KVÓTINN
Heitasta málefni þessara kosninga má vafalaust
lelja stjórnun fiskveiða eða „kvótann". Öll framboð-
in vildu breyta þar einhverju en erfitt var að henda
reiður á í hverju þær breytingar ættu að felast. Svetr-
ir Hermannsson, fyrrvcrandi þingmaður Sjálfstæðis-
Listi Framboð Fin^nienn Atkvæði Hlutfall
B Framsóknarflokkur 12 30415 18,4%
D Sjálfstæðisflokkur 26 67513 40,7%
F Frjálslyndi flokkunnn 2 6919 4,2%
H Húmanistaflokkurinn 742 0,4%
K Kristilegi lýðræðisflokkurinn 441 0,3%
S Samfylkingin 17 44377 26,8%
U Vinstri hreyfing - grænt framboð 6 15115 9,1%
z Anarkistar á Islandi 204 0,1%
Auð 3351
Ógild 354
Sjálfstæðisflokkurinn fékk mjög góða útkomu,
fór í fyrsta skipti yfir 40% í 25 ár og vann eitt þing-
sæti. Framsókn tapar í heild um 5% frá síðustu
kosningum og tapaði þrernur þingsætum. Samfylk-
ingin og Vinstri heyftngin - grænt framboð fá sam-
tals minna fylgi en móöurflokkarnir hvað sem síðar
kann að verða. Ríkisstjórnin hélt velli og Davíð
Oddson stýrir áfram ríkisstjórn þar sem
stjórnarflokkamir hvor um sig hefur sex ráðherra.
Tveir þeirra eru ú Reykjaneskjördæmi, þ.e. Árni
Matthíesen sjávarútvegsráðherra og Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra.
ÚRSLIT í REYK.IANESK.IORDÆMI
Listi Framboö Pinnmenn Alkvæði Hlutfall
B Framsóknarflokkur 2 7190 16,0%
D Sjálfstæðisflokkur 6 20033 44,7%
F Frjálslyndi flokkurinn 2076 4,6%
H Húmanislaflokkurinn 165 0,4%
K Kristilegi lýðræðisflokkurinn 173 0,4%
S Samfylkingin 4 12593 28,1%
U Vinstri hreyfing - grænt framboð 2629 5,9%
Auð 914
Ógild 111
Helstu tíðindin hér voru þau að Sjálfstæðisflokk-
urinn náði ntjög góðum árangri og bætti við sig einu
þingsæti. Þrátt fyrir að Fraamsóknarflokkurinn fengi
um 5% minna fylgi en síðast hélt hann báðum sín-
unt þingsætum þar sem flokkurinn tapaði þingsæt-
um naumlega í landsbyggðarkjördæmum. Komst
því Hjálmar Ámason aftur á þing sem jöfnunarþing-
maður og var það reyndar í fyrsta sinn sem þessi
flokkur fær jöfnunarsæti.
Þingmenn í Reykjaneskjördæmi næsta kjörtímabil
verða eftirtaldir:
Ámi M. Mathiesen af D-lista
Gunnar Ingi Birgisson af D-lista
Sigríður Anna Þórðardóttir af D-lista
Rannveig Guðmundsdóttir af S-lista
Þorgerður K. Gunnarsdóttir af D-lista
Guðmundur Ámi Stefánsson af S-lista
Siv Friðleifsdóttir af B-lista
Kristján Pálsson af D-lista
Sigríður Jóhannesdóttir af S-lista
Hjálmar Ámason af B-lista
Ámi Ragnar Ámason af D-lista
Þórunn Sveinbjamardóttir af S-lista
HH
FAXI 29