Faxi - 01.06.1999, Blaðsíða 11
Gunnar Sveinsson:
í Viðistaöakirkju í Hafnarfirði 15. maí 1999
Kóramót eldri borgara var haldið í Hafn-
arfiði að þessu sinni. Þátttakendur i
mótinu voru:
Vorboðar úr Mosfellsbæ.
Eldey frá Suðumesjum
Samkórinn Hljómur frá Akranesi
Hörpukórinn fráÁrborg
Gaílarakórinn úr Hafharfírði.
Mótið var haldið í Viðistaðakirkju í Hafnarfirði. j
Aðstaða til að halda slíkt mót þar er mjög góð.
Kirkjan er stór og fögur og málverk Baltasar setja )
svip á hana að innanverðu. Þó finnst mér málverkin
svolítið yfirdrífa sjálfa innréttingu kirkjunnar. Mér
finnst að möguleiki ætti að vera á því að að hylja
málverkin sitt hvoru megin við altarið til fjölbreytni í
í útliti kirkjunnaren nóg um kirkjuna að sinni.
Um 180 manns tók þátt í mótinu að þessu sinni.
Mætt var klukkan rúmlega tólf og þá borðaður léttur
hádegisverður í félagsheimili aldraða í Hafnarfirði.
Síðan var haldið í Víðistaðaskóla þar seni hver kór
hafði aðstöðu í einni kennslustofu. Eftir það var far-
ið í kirkjuna og æftngar haldnar bæði sérstakar fyrir
hvem kór og síðan sameiginlega vegna þeirra laga er
syngja átti í lok mótsins. Við þetta tækifæri fengu
þátttakendurnir kaffi og meðlæti í félagsheimili
kirkjunnar.
Klukkan fimm hófst svo sjálft mótið og var þá
kirkjan fullskipuð, bæði af áheyrendum og söngfólki
og mun þar hafa verið nærri 400 manns. Áður höfðu
blásarar úr Lúðrasveit Hafnarfjarðar undir stjórn
Stefáns Ómars Jakobssonar leikið nokkur lög við
góðar undirtektir. Fonnaður eldri borgara í Hafnar-
firði, Einar Sveinsson, setti mótið með nokkrum
orðum og bauð alla velkomna og bað síðan Vorboða
úr Mosfellsbæ að hefja sönginn.
Vorboðar í Mosfellsbæ er lítill kór með aðeins 22
söngmönnum, 10 körlum og 12 konum.. Stjómandi
og undirleikari er Páll Helgason. Það háir kómum
nokkuð mikið að hafa ekki undirleikara því augljóst
er að eifitt er að vera bæði stjómandi og undirleikari
en þama eru góðar raddir og söngurinn tókst vel.
Sungin voru 5 lög, þrú islensk og tvö erlend.
Eldey af Suðumesjum var næst á dagskrá. Það er
stærsti kórinn nieð 47 söngmönnum, 17 karlmönn-
um og 30 konum. Stjórnandi er Ágota Joó og undir-
leikari er Vilberg Viggósson. Eldey var að mínu
áliti og margra annarra besti kórinn og þeim tókst
sérstaklega vel upp. Mörg lög þeirra vom mjög erfið
í flutningi en kórinn skilaði þeirn mjög vel. Sérstaka
athygli vakti kór úr óperunni „Selda brúðurin" eftir
Smetana. Það er meira en lítið afrek að ná slíkum
flutningi úr 47 manna kór þar sem meðalaldurinn er
nokkuð yfir 70 ár. Þar á stjómandinn, Ágola Joó,
mestan heiðurinn af. Kórinn söng 6 lög, 1 íslenskt og
5 erlend.
Samkórinn Hljómur frá Akranesi. Þessi kór sam-
anstendur af 29 söngmönnum, 12 karlmönnum og
17 konurn. Stjómandi er Láms Sighvatsson og und-
irleikari Ásdís Ríkarðsdóttir. Kórinn hefur nýlega
fengið þetta nafn. Margar góðar raddir eru í honum
og tókst söngur hans vel. Kórinn söng 5 lög, 4 ís-
lensk og 1 erlent
Hörpukórinn frá Árborg. Þetta er næststærsti
kórinn með 44 söngmönnum og þar af eru 20 karlar
og 24 konur. Stjórnandi er Sigurveig Hjaltested og
undirleikari Heiðmar Jónsson 1 þessum kór var fjöl-
mennasti karlahópurinn og hljómaði kórinn í sam-
ræmi við það með þýðan en sterkan undirtón.
Stjórnandinn er auðsjánlega skólaður í sínu fagi.
Kórinn er mjög góður og kom mjög vel út á þessu
móti. Hann söng 5 lög þar af 4 íslensk og I erlent.
Gaflarakórinn frá Hafnarfirði. Þar voru 37 söng-
menn, þar af 12 karlmenn og 25 konur. Stjómandi er
Guðrún Ásbjömsdóttir og undirleikari Úlrik Olafs-
son. Gaflarakórinn er yngstur í þessu samstarfi en
alls ekki sá sísti. Kórinn söng Ijúf og mild lög með
ágætum en mér fannst að þeir hefðu mátt vera ögn
metnaðarfyllri í lagavali. Þeir sungu í lokin við
ágætar undirtektir lagasyrpu eftir Sigfús Halldórsson
við undirleik píanós, harmóniku og tromina. Var
það vel til fundið og gerði lukku. Þeir sungu 5 lög,
3 íslensk og 2 erlend.
í lok tónleikanna sungu kóramir sameiginlega 6
lög. Var þar kominn 180 manna blandaður kór og
var varla rými fyrir allan þann mannskap fyrir fram-
an altari kirkjunnar. Hver söngstjóri stjómaði einu
lagi nema hvað heimamaðurinn stjórnaði tveimur.
Blásarar úr lúðrasveitinni léku undir. Hafði hver kór
kosið eitt lag en allir kórarir síðan æft þau lög er
syngja skyldi sameiginlega. Samsöngur kóranna
tókst mjög vel og var þeim vel fagnað í lokin með
löngu lófataki þakklátra áheyrenda og var þá jafn-
framt söngstjórum og undirleikurum afhent blóm.
Fonnaður bauð síðan kórfélögum til kvöldverðar í
Frímúrarahúsinu og hófst þar skemmtun með borð-
haldi kl. 20. Sveinn Einarsson var þar veislustjóri
og komu allir kóramir með skemmtiatriði. Að loknu
borðhaldi og skemmtiatriðum var síðan stiginn dans
til kl. 24.
Skipulag og framkvæmd mótsins var til mikillar
fyrirmyndar hjá Hafnftrðingum og eiga ]reir þakkir
skildar fyrir móttökumar.
Gunnar Sveinsson.
FAXI 35