Faxi - 01.06.1999, Page 10
Vortónleikar Karlakor Keflavíkur
söngskrá fyrir tónleika KK
þetta vorið ritar formaður
kórsins, Páll Bj. Hilmarsson,
þessi orð: „Pegar vora tekur fara
söngfuglar á kreik.“ Pessi skemmti-
legu orð minntu undirritaðann á að
þau eru orðin nokkuð mörg vorin
þar sem einn af föstu punktunum í
tilverunni var að fara á vortónleika
karlakórsins og sennilegt er að svo
verði lengi enn.
Karlakór Keflavíkur varð 45 ára í
vetur og lætur enn engan bilbug á sér
finna. Það sér maður á þeirri endumýj-
un sem orðin er í röðum kórfélaganna
og ef maður lagði sig sérstaklega eftir
því mátti vel heyra kröftugar raddir
þeirra skera sig úr á stöku stað.
Vilberg Viggósson hefur stjórnað
kómum undanfarin sex ár og hefur því
svo um munar sett mark sitt á söngstíl
hans. Þegar kómum tekst best upp þá
er hann virkilega góður og hrein unun
að hlíða á. Söngskráin skírskotaði að
þessu sinni til vorsins og sumarsins og
ættjarðarlögin voru að sjálfsögðu á
sínum stað. Fyrst fannst manni að það
skorti fjölbreytni í söngskrána en þeg-
ar upp var staðið var það misskilning-
ur því þeir Guðbjöm Guðbjömsson og
Steinn Erlingsson, sem sungu einsögn
með kórnum sáu svo sannarlega um
þá hlið.
Þótt Steinn væri ekki alveg búinn
að ná sér eftir flesnsu þá söng hann
lag Hammersteins „Þú ert aldrei einn á
ferð“ við slíkar undirtektir að hann
komst ekki undan því að syngja það
öðru sinni! Guðbjöm Guðbjömsson á,
þótt enn sé ungur að árum, ágætan
söngferil hjá þýskum og svissneskum
óperuhúsum. Hann hefur í vetur ann-
ast raddþjálfun kóifélaga og er mikill
fengur að því. Hann söng þrjú lög á
tónleikunum: „Heimir“ eftir Sigvalda
Kaldalóns, „Dein ist mein ganzes
herz“ eftir Franz Lehár og „Gígjuna“
eftir Sigfús Einarsson. Öll eru þessi
lög gullfalleg, ekki hvað síst Gígjan,
sem er að rnínu mati eitt fallegast ein-
söngslag sem ég þekki. Söngur Guð-
bjöms fannst mér mjög góður.
Mig langar sérstaklega að geta
nokkurra laga sem mér fannst kórinn
syngja sérstaklega vel. Þar er fyrst að
nefna lagið „Haustlauf* eftir Bjarna
Gíslason við texta Jóhanns Jónssonar.
Vilberg Viggósson útsetti lagið. „Her-
mannakórinn" úr óperunni II
Trovatore eftir Vcrdi en í því lagi
fannst mér flutningur kórsins ná há-
marki. Að lokum er að geta lagsins
„Galdra Gvendur" eftir Stan Jones við
magnaðan texta Sigfúsar Kristjánsson-
ar. Var virkilega gaman að heyra það
lag í kraftmiklum söng kórsins.
Eins og undanfarin ár annaðist
Agota Joó undirleik á píanó og var un-
dragaman að fylgjast með samleik
hennar, stjórnandans og kórsins.
Þórólfur Þórsson lék á bassa og Asgeir
Gunnarsson greip í nikkuna í
nokkrum lögum. Áttu þau öll mikinn
þátt í góðum tónleikum. Njarðvíkur-
kirkja var fullsetin þetta kvöld (11.
maO og fékk kórinn góðar undirtektir
hjá áheyrendum sem ekki gáfu sig fyrr
en sungin höfðu verið mörg aukalög.
Páll Bj. Hilmarsson ávarpaði við-
stadda og þakkað fyrir komuna og
minnti í leiðinni á geisladisk kórsins.
Fer nú hver að verða síðastur að eign-
ast hann en sem betur fer standa nú
fyrir dyrum upptökur með kórnum
með nýjan geisladisk í liuga.
Takk kærlega fyrir ánægjulega
kvöldstund.
HH
Upphaf haustannar 1999
Töfluafhending fer fram
mánudaginn 23. ágúst.
Skólasetning veður á sal skólans
24. ágúst kl. 8:00.
Kennsla hefst að athöfn lokinni.
Skólameistari
34 FAXI