Faxi - 01.06.1999, Blaðsíða 17
FA.XI Jiíní I!)!)!)
HEFUR EIGNAST SPARISJÓÐSHÚSIÐ Á
NÝJAN LEIK
Eins og flestuni er kunnugt seldi Sparisjóðurinn í
Keflavík húseignina að Tjamargötu 12 á sínunt tíma
til Islenskra aðalverktaka en nú nýlega mynduðu
Sparisjóðurinn, Reykjanesbær og Lífeyrissjóður 1
Suðumesja með sér félag sem nú hefur keypt liúsið
til baka. Heitir félagið Tjamargata 12 ehf og er hlut-
ur Sparisjóðsins 64,9%, Reykjanesbæjar 30,1% og
Lífeyrissjóðsins 5%. Kaupverð hússins var 369
milljónir króna.
SPARISJÓÐURINN Á í MÖRGUM FYRIR-
TÆKJUM
Starfsemi banka og sparisjóða verður sífellt marg-
breytilegri og til að standast betur harðnandi sam-
keppni á fjármagnsmarkaðnum hefur Sparisjóðurinn
smátt og smátt eignast hlut í ýmsum fyrirtækjum
sem þar starfa. Eignarhluti Sparisjóðsins í þessum
fyrirtækjum er sem hér segir:
Alþjóðlega líftryggingafélagið 1,30%
Greiðslumiðlun 3,07%
Kaupþing 12,05%
Kreditkort hf. 2,21%
Rciknistofa bankanna 1,82%
Scandinavian Holding 7,00%
Sparisjóðabanki Islands 13,40%
SP-Fjánuögnun 4,00%
Tölvumiðstöð sparisjóðanna 9,66%
HRAÐBANKAR OG NETIÐ
Fyrir um fimmtán árum þóttu það mikil tíðindi
þegar einhvers staðar var settur upp hraðbanki. Nú
er það varla í frásögur færandi. I dag má finna hrað-
banka frá Sparisjóðnum í Keflavík á fjölmörgum
stöðum og bendir það til þess að fólki þyki þessi
þjónusta af hinu góða. Hraðbankamir em á eftirtöld-
urn stöðunr: I aðalafgreiðslu Sparisjóðsins að Tjam-
argötu 12, í verslun ÁTVR að Hólmgarði 2 í Kefla-
vík, í Fjölbrautaskóla Suðumesja við Sunnubraut 36
í Keflavík, í afgreiðslu Sparisjóðsins að Grundavegi
23 í Njarðvík, í afgreiðslu Sparisjóðsins að Víkur-
braut 62 í Grindavík, í íþróttamiðstöðinni í Vogum
að Hafnargötu 17, í Hraðbúð Essó í Garði og í af-
greiðslu Bláa lónsins í Svartsengi.
Eins og llestir gera sér grein fyrir þá eru tölvur
nýttar í dag á æ fleiri sviðum. Vaxandi viðskipti eiga
sér nú stað unt tölvunet og er Intemetið á leið með
að verða mikilvirkur viðskiptamarkaður. Margt
bendir reyndar til þess að þar nruni að finna mesta
vaxtarhraðann í nútímaviðskiptum. Fjámiagnsstofn-
anir á íslandi hafa lekið fljótt við sér í þessu tilliti og
er nú svo konrið að bæði almenningur og fyrirtæki
geta sinnt stórum hluta sinna fjármagnsviðskipta frá
eigin tölvubúnaði. Fylgir því augljóslega mikil hag-
kvæmni og hafa sparisjóðimir hvað þetta sneilir oft
verið í fararbroddi um ýmsa þætti þessara viðskipta.
SPARIS J ÓÐURINN OG ÍBÚÐALÁNASJÓÐ-
UR
Um síðustu áramót urðu miklar breytingar á sviði
húsnæðislánaviðskipta. Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins var lögð niður og í stað hennar konr Ibúðalána-
sjóður ríkisins. Eftir þá breytingu gegna bankar og
sparisjóðir auknu hlutverki með því að þeir verða
mun virkari þátttakendur í því ferli sem á sér stað
við íbúðakaup. Hér eftir verður þetta ferli sern hér
segir: Þegar bráðabirgðargreiðslumat liggur fyrir og
heppileg eign hefur fundist er kauptilboð geit og þá
með fyrirvara um lánveitingu íbúðalánasjóðs. Banki
eða sparisjóður útbýr greiðslumat og sendir Ibúða-
lánasjóði niðurstöður útreikninga. Þegar lánveiting
hefur verið samþykkt hafa þessir aðilar unrsjón með
og sjá um afgreiðslu á þeini atriðum senr lánveiting-
unni og útborgun hennar tengjast. Er augljóst að
með þessu nýja fyrirkomulagi situr l'ólk við sarna
borð, sama hvar á landinu það býr.
BJARTSÝNN Á KOMANDI ÁR
Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri er að
vonum ánægður rneð afkornu síðasta árs og er um
leið bjaitsýnn livað framtíðina varðar. Hann þakkar
hinn góða árangur samstilltu átaki stjómar og starfs-
fólks. Sparisjóðurinn á sér traustan og stóran við-
skiptamannahóp um öll Suðunes og mun áfram sem
hingað til lcggja sig fram um að veita honum sem
besta þjónustu.
HH.
VERKALÝÐS- OG
SJÓMANNAFÉLAG KEFLAVÍKUR
Skrifstofa félagsins er að Hafnargötu 80. Opið
mánudaga tíl fimmtudaga kl. 9-16, föstudaga kl. 9-15.
Skrifstofan (Garði, Garðbraut 69a eropin
þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9:30 -12:30
Síminn er 421 5777
Munið
orkureikningana
Eindagi orkureikninga
er 15. hvers mánaðar.
Látið orkureikninginn hafa forgang
Hitaveita
Suðurnesja
FAXI 41