Straumar - 01.08.1927, Blaðsíða 7
STRAUMAR
117
höfundunum bæri ekki saman um það, hvenær Jesús
hefði orðið Messías.
Rakti fyrirlesarinn nú hugsanaferil aðalhöfunda N.tm.
í þessu efni, og sýndi fram á, að um ferns konar skilning
á hugtakinu guðssonur væri þar að ræða.
Elztur mundi sá skilningur vera, er kæmi fram í
sumum ræðum í Postulasögunni (og það eignuðum bæði
Pétri og Páli), að Jesús hafi fyrst við upprisuna frá
d a u ð u m orðið Messías eða guðs-sonur, þá hafi hann
verið hafinn til guðlegrar tignar og valds. Samkvæmt
þeim skilningi var hann hér á jörð „spámaður máttugur
í verki og orðilí, „maður, sem guð hafði búið sérstökum
hæfileikum til að gera kraftaverk, undur og táknu.
Annar skilningurinn sé sá, að hann hafi orðið Messías
við skírnina, er andinn kom yfir hann. Menjar
þess skilnings hafi það verið, að alt fram á fjórðu öld
hafi verið haldin sérstök hátíð tf. janúar, til minningar
um skirn Jesú. Sú hátíð var talin einskonar fæðingarhá-
tíð hans, því að við skírnina hafði guðs-sonurinn fyrsta
sinn komið í ljós. Jólahátíðin hafi aftur á móti ekki orðið
almenn innan kristninnar fyr en á 5. öld. Samkvæmt
þessum skilningi var Jesús þegar orðinn Messías, er hapn
kom opinberlega fram, og það var sú trú á hann, er læri-
sveinarnir játuðu, fyrir munn Péturs, í námd við Sesareu
Pilippí: „Þú ert Kristur, sonur hins lifanda guðsu.
Þriðji skilningurinn sé sá, sem kemur fram hjá tveim
mestu rithöfundum N. tm., sem sé þeim Páli og Jóhannesi.
Þeir haldi því báðir fram, að Jesús sé guðs-sonur frá
eilífð. Hann hafi átt fortilveru og sé kominn af himni;
himnesk veran hafi klæðst holdi hér á jörð. I dýrðar-
ástandinu hjá Guði hafi hann verið í guðsmynd, en af-
klæðst henni af elsku til mannanna, og af löngun til að
hjálpa þeim hafi hann stigið niður og gerst maður. Hann
hafi í þeirra augum verið guðleg vera eða guðs-sonur,
þegar áður en hann fæddist hér á jörð. En hið einkenni-
lega sé, að hvorugur þessara höfunda virðist hafa minstu
hugmynd um það, sem síðar var nefnt getnaður af hei-
lögum anda. Aldrei nokkurn tíma minnist þeir á slíkt.