Straumar - 01.08.1927, Page 10
120
STRAUMAE
Hitt væri gagnstætt N. tm. að ætla sér að einskorða
trúna á guðdóm Krists við trú á yfirnáttúrlegan getnað.
Að lokum lýsti hann yfir því, að sér hefði lengi
fundist þessi orð Hebreabréfsins fegursta og sannasta lýs-
ingin á eðli Krists: ljómi Gfuðs dýrðar og ímynd
hans veru.
„Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs“ væri enn
meginatriði hinnar kristilegu játningar, eins og á dögum
postulanna. Kristur væri enn sá konungur, er öll kristnin
vildi lúta.
Á eftir lét próf. H. N. syngja hin alkunnu vers úr
PassíusUmunum: „Víst ertu, Jesú, kongur klár“, undir
fögru gömlu lagi, er Jón Pálssson, aðalféhirðir Lands-
bankans, hefir varðveitt frá gleymsku og vakið athygli
þeirra H. N. og Páls Isólfssonar á.
Óheilindi.
Oft er talað um óheilindi í íslenzkri pólitík og blaða-
mensku. Er það sízt lýgi, að þau eru mikil og stór sið-
spillandi allri aiþýðu, því að svo virðist mér, að í þess-
ari síðustu kosningabaráttu hafi ekki aðrir önglar verið
meir notaðir til að veiða atkvæði, en lygi, óhreinskilni,
blekkingar, loðinn og hálfur sannleikur og upptíningur á
öllum gömlum og nýjum glappaskotum andstæðinganna.
Gömul blöð og þingtíðindi eru lesin vandlega niður í kjöl-
inn til þessa sparðatínings og því, sem finst, er svo
snúið á versta veg. Jafnvel tölum er bylt til í blekking-
arskyni. Svona hefir það verið hér í Reykjavík, það vita
allir, og það fullyrði eg, og má mikið vera ef það hefir
verið betra úti um sveitir landsins.
öll þessi lýgi, sem á þingmálafundum og í þingsölun-
um er kölluð „ósannindiu, „ónákvæmniu, „misskilninguru
og fleiri mildum orðum, því að orðið „Iygiu þykir ókurteist