Straumar - 01.08.1927, Síða 17

Straumar - 01.08.1927, Síða 17
STRAUMAR 127 laust sá, að leggja ofurlítinn plástur á ýrasa þá, sem sár- ast hefir sviðið, að mælt, hefir verið móti meygetnaðar- kenningunni, láta þá halda, að prestastefnan væri þeim sammála um þetta atriði, þó að svo sé ekki. En hvað er það annað en alþýðudekur að víkja þannig af vegi hrein- skilninnar til þess að þóknast fjöldanum? Nú skyldi enginn halda, að flutningsmenn einir hafi falsað fundarmenn til þessarar samþyktar. Nei, það var borið undir atkvæði, hvort bera skyldi upp tillöguna, og það var samþykt með allmiklum meirihluta. Þannig leiddi meiri hluti fundarmanna sig sjálfa út í óheilindin, ragmenskuna, falsið og óheiðarleikann. Nú getur verið, að mér hafi skjátlast í öllu þessu. Það getur verið, að prestastefnan hafi hagað sér svona í fljótræði og heimsu, því að tíminn var lítill til að hugsa málið, og eg vona, að svo hafi verið. En eitt gætu þó prestar af þessu lært, og það er að fara varlega í næsta sinn að samþykkja ioðnar yfirlýsingar í viðkvæmum mál- um. Og annað gætu þeir líka lært. Það er brýnt fyrir vitnum í Englandi, er þau eru fyrir rétti, að segja sannleikann, allan sannleikann og ekkert nema sannleikann. Einar Magnússon. Kring*sjá. Á. þossn ári, 1927, eiga þrir merkir háskólar í Evrópu afmæli. í júli var háskólinn i Tiibingen í Þýskalandi 450 ára. og í sama mán- uði á háskólinn 1 Marburg i Þýskalandi 400 ára afmæli. Litlu seinna er Uppsala háskólinn i Sviþjóð 450 ára. í tilefni af almæli Uppsala- háskólans er ráðgert að gefa út ljósmyndir af hinni heimsfrægu bibliu Ulfilas, „Silfurbókinni" svonefndu Það er svo að segja eina handritið af þessari biblfu, sem Ulfila kristniboði Gota þýddi á got- nesku (seint á 4. öld). Handritið er skrifað með silfurletri á rautt pergament og hin mesta gersemi. I þrjátiu ára striðinu (1618 —1648) fundu Sviar handritið i Prag og fluttu til Stokkliólins. Siðan livarf það, en ianst aftur i Hollandi og keypti þá háskólinn í Uppsala það.

x

Straumar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Straumar
https://timarit.is/publication/679

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.