Straumar - 01.08.1927, Side 18
128
S T R A U M A R
Merk stofnun. Das soziale Institut der christ-
lichen Weltkonferenz. í Bern (í Sviss) hefir verið ákveð-
ið að koma á fót stofnun, er rstarfi visindalega að rannsókn þjóð-
fjelagslegra vandamála1-. Rætur þessa máls má rekja til kirkjufund-
arins í Stokkhólmi (192f>). Siðan hefir verið unnið ósleitilega að
framkvæmd þess. Hafa veríð haldnir alþjóðafundir um það, bæði i
London og Bern. Bernarfundinn, sem haldinn var sl. sumar, sat
m. a. erkibiskup Svia, Söderblom. Þar komu menn sjer saman uin
þetta: 1.) Stofnunin á að verða miðstöð fyrir samvinnu allra fólaga
og stofnana, sem vinna að þjóðfjelagsmálum innan hinna ýmsu kírk]u-
deilda, eða í sambandi við þær. 2.) Hlutverk hennar á að verða
það, að safna itarlegum skýrslum um ýmisleg vandamál þjóðfjeiag-
anna og atvinnulífsins og rannsaka viðfangsefni þessi visindalega i
ljósi kristilegrar siðfræði, svo að sjá megi skýrt, hverjar sjeu skyld-
ur kirkjunnar á þessum sviðum. 3.) öll starfsemi stofnunarinnar
ber að miða að þvi að veita kirkjudeildunum hagnýtar leiðbeining-
ar og fræðslu.
Endanleg ákvörðun um tiliiögun og' starfsemi stofnunarinnar
hefir þó enn eigi verið tekin. Væntanlega verður það gert i sumar.
Dr. Adolf Keller, docent i kirkjufræðum við háskólann i Ziirich,
hefir verið falin forstaða hennar fyrsta árið. Með honum starfa að
rannsóknunum margir visindamenn frá Englandi, Bandarikjunum,
Þýzkalandi og Sviþjóð. Stendur stofnunin nú þegar i brjefaskiftum
víð menn og fjelög um allan heim.
Hefir isl. þjóðkirkjan leitað samvinnu við stofnun þessaVfl
Gildi trúar liét fyrirlestur, er sira Sveinbjörn Högnason á
Breiðabólsstað flutti á Synodus. Benti hann á, hversu trúin væri
uppspretta allrar fegurðar i mannlifinu, þvi að i trúarlifinu breiddi
mannlifið sig móti lielgum og huldum öflum. Lagði hann mikla
áherzlu á Iiið dulræna. Deilur um trúarefni væru hættulegar, þvi
mætti ekki gleyma, að leiðirnar að föðurhjarta guðs væru margar,
en aðeins eitt hugarfar gæti leitt menn til guðsrikis, hugarfar Jesú
Krists - kærleiki til guðs og manna.
Eftir dauðann hét Synódusfyrirlestur, sem síra Friðrik Rafnar
á Utskálum hélt. Skýrði hann frá bók eftir indverska trúspekinginn
Sundar Singh, sem lýsir framhaldslifi mannanna, eins og S. S. hefir
komið það fyrir sjónir i vitrunum. - Heitir bók S. S.: „Sýnir frá
andaheiminum“ („Visions of the Spíritual World“).
Næstu blöð Straumn koma ekki út fyr en i október, þá koma
sept. og okt. blöðin. Kaupendur eru vinsamlegast mintir á, að gjald-
dagi er 1. okt., og að til blaðsins er stofnað án nokkurs höfuðstóls
eða rekstursfjár af efnalausum námsmönnum.
Prentsmiöjan Acta.