Straumar - 01.12.1928, Qupperneq 9
STEAUMAR
183
í sál Jesú skín svo raikið af guðsfriði og ró og tign, svo
raikið af mætti og vizku, að vér getum varla gert oss í
hugarlund, hve nærri hann stendur Guði, samanborið við
oss. En ekki svo fjærri, að hann nái ekki til vor; hann
er mitt á meðal vor.
Guð gefi, að þessi helgistund í minningu Jesú Krists
megi verða til þess að minna oss á, að vér sjálfir eigum
að verða fullkomnir eins og faðirinn himneski er full-
kominn. Guð gefi, að mynd Jesú Krists megi verða svo
skýr fyrir oss á þessari stund, að vér skiljum, að hann
er uppspretta þeirrar kyrlátu gleði, sem nú legst yfir borg
og bæ, að vér finnum það, að af því að hann kom og brá
upp fyrir oss ljósi sannleikans, þá er heimurinn í raun og
veru góður og mennirnir góðir og Guð óendanlega góður.
Guð gefi að sú vissa megi fylgja oss inn á heimili vor
héðan, fylgja oss langt inn í framtíðina, og verma osslífið.
Guð gefi að trú Jesú Krists, kærleikur hans, fórnarlund
hans, breiði friðarskin á veg vorn allra héðan í frá. Guð
gefi, að von og hugrekki Jesú Krists fylli hjörtu vor og
lýsi oss eins og jólastjarna, alla leið unz vér fyrir augliti
Guðs allsherjar fáum að mæta honum og þakka honum,.
sem var frelsari vor, sem kom til vor og bjó með oss
fullur náðar og sannleika. Gleðileg jól! — Amen.
„Ekki hann, heldur Barrabasu.
Er Guðsson forðum greip hans fjenda sveit
með grimdarhug og tryltir blindu æði,
þeir svifust einskis, svall þeim gremja heit
og sefast lét ei þeirra heiftar-bræði,
nema að sjá hann hafinn hátt á kross.*
Þeir hræddust sín, að hjaðna mundu völd,
ef heftur væri’ hann ei í starfi sínu;