Straumar - 01.12.1928, Blaðsíða 17
S T R A U M A R
191
mynd kenningarinnar er orðin talsvert önnur. Hvorttveggja
er fagurt og glæsilegt. En það eru svipuð umskifti og að
koma úr fegurð náttúrunnar inn í glæsilega liöll með
óteljandi súlum og súlnagöngum. í öðrum staðnum er það
guðs fria náttúra, ósnortin af manna höndum en óendan-
leg að tign og fegurð. í hinum staðnum birtist máttur og
snilli mannsandans, sem er innblásinn frá hæðum — en
mannaverkin sjást þó alstaðar; áreynsla, heilabrot og sett-
ar lífsreglur eru augljósar í hverjum hlut“.
Líkingin er bæði snjöll og rétt og glæsilega sett fram.
En mismunurinn á kenningu Jesú og Páls, var, eins og
höf. tekur síðar fram, eigi fólgin í breyttu innihaldi,
heldur því, að Páll var farinn að leggja áherzlu á nokkuð
önnur atriði. Kjarni fagnaðarerindis Jesú var guðsrík-
ið, en þungamiðjan í boðskap Páls var Jesús Kristur
Eg hefi nú rakið aðalefni bókarinnar í stórum dráttum.
Efnið, sem lá til úrlausnar, er geysi-mikið og víðtækt og
vandi að ákveða, hversu mikið skuli tekið með, eða hve
langt skuli farið út í ýms smærri atriði; því að þótt bók-
in sé stór (319 bls. í stóru 8vo), má hún kallast stutt í
samanburði við margar erlendar bækur um sama efni.
Og helzt hefði eg kosið, að hún hefði verið lengri. Veld-
ur því ekki sízt meðferð höf. á efninu, stíll hans og frá-
sagnarháttur.— Prófessor Magnús Jónsson er lærðastur
maður á íslandi í þessum efnum. í 11 ár heflr það verið
æfistarf hans að rannsaka þessi fræði, enda ber ritið þess
ljós merki. Alt er hnitmiðað og rammskorðað, lipurt og
létt, enda segir liöf. í „Eftirmála“: „Eg hefi nú unnið að
samning bókarinnar h. u. b. 4 ár, samið hana, endursam-
ið og yfirfarið oftar en eg man að telja og altaf þurft
eitthvað að lagfæra, alt til síðustu prófarkaru. — Stíll höf.
og frásagnarháttur er og á þann veg, að hvorttveggja
hlýtur að heilla athugulan og smekkvandan lesara. Öll er
bókin rituð af fjöri og lipurð og á vönduðu máli. Tveir
kaflarnir finnast mér þó bera af, III. afturlivarf Páls og
trúarskoðanir hans, og síðasti kaflinn, lýsing á Páli og
Jesús Kristur og Páll. —
Það er meira en lítið vandaverk að rita nákvæmt