Straumar - 01.12.1928, Blaðsíða 12
186
STEAUMAR
að sjá eftirvæntingarsvipinn á mönnum, er þeir voru að
opna þá. Mér hlotnaðist allstór böggull. I honum var mynd
af dönsku drotningunni i fallega ísaumuðum ramma, dönsk
húslestrarbók, prjónaðir smokkar og blaðahengi, og eitt-
hvað fleira. Innan í böglinum var og bréf frá sendandan-
um, einhverri konu á Suður-Jótlandi. Árnaði hún mér allra
heilla og bað um svar við bréfinu. Eg skrifaði henni
þakkarbréf seinna, en hefi ekki frétt frá henni síðan.
Þess eru ekki all-fá dæmi, að ungir sjómenn hafi kynzt
konuefnum sínum með þessum hætti.
Innihald hinna böglanna var líkt og glöddust allir
yfir því. Eg hefi aldrei séð gjafir þegnar með meiri gleði
og þakklæti en þessa fábreyttu hluti að heiman, sem
báru þess svo ljós merki, að þar voru góðir menn og
góðar konur, sem mundu eftir sjómönnunum, sem eiga við
óblíð kjör að búa og velkjast höfn úr höfn, vinalausir og
stöðugt í hættu fyrir illum áhrifum og siðspillandi. Barns-
leg gleði ljómaði af andliti sjómannanna, er þeir báru
saman það, sem þeim hafði hlotnazt, skiftu á hlutum, eft-
ir því, sem hver kaus sér helzt o. s. frv. Er menn höfðu
skemt sér við þetta nokkra stund, var öllum boðið til
kaffidrykkju. Var þá glatt á hjalla. Tveir norskir sjómenn
léku á hljóðfæri, spilaði annar á mandólín og hinn á pí-
anó og varð hin bezta skemtun af. Ræður voru haldnar
fyrir minni allra Norðurlanda. Louis Zöllner, sem er ræð-
ismaður Dana og Islendinga, flutti þar ræðu fyrir minni
Islands. Þakkaði eg hana nokkrum orðum.
Þegar liðið var fram að miðnætti var samkomunni
slitið með því, að sungnir voru ættjarðarsöngvar allra
Norðurlanda, sem prentaðir eru í sálmabók danska sjó-
mannatrúboðsfélagsins. Pyrir íslandi var sungið hið fagra
kvæði A. Munch: „Yderst mod Norden lyser en öu,
sem Matth. Jochumsson hefir þýtt: „Lýsir af eyju við
ísþokuslóð11. Þarf eigi að segja, hve eg gladdist við þann
kærleika og vinaþel, sem eg mætti hjá þessum útlendu
bræðrum í framandi landi. Héldu menn nú á braut, er
þeir höfðu kvatt prestinn og þakkað skemtilega samveru-