Straumar - 01.12.1928, Blaðsíða 13
STRAUMAR
187
Btund. Þetta kvöld verður í minningu minni eitt hinna
fegurstu, sem eg hefi lifað. —
Daginn eftir fór eg til næsta bæjar, Shields, og var
þar á samskonar jólahátíð á sænska sjómannaheimilinu,
sem þar er.
Fáum Islendingum er kunnugt, að út um heim, sér-
staklega í Englandi og á Norðurlöndum, starfa kristileg
félög meðal sjómanna. Þau eiga sjómannaheimili og sam-
komuhús í fjölda mörgum hafnarborgum víðsvegar um
heim, þar sem siglingar eru miklar. Þangað geta sjómenn
komið og setið þar, lesið eða skrifað og hvílt sig, þegar
þeir hafa landgönguleyfi. Þangað geta þeir látið senda
bréf til sín, og þar er þeim leiðbeint um marga hluti,
hvattir til og hjálpað að senda fé heim til sín. Þar geta
þeir fengið góðar veitingar við lágu verði, spilað, teflt o.
s. frv. Þar eru haldnar euðsþjónustur, sungnir sálmar og
fluttar bænir, og eru það oft einu tækifærin, sem fjöi-
margir sjómenn hafa til að heyra eitthvað gott orð, einu
tækifærin, sem þeir hafa til að lyfta huganum upp frá
daglegum störfum. Sjómanna-lestrarstofurnar eru einu stað-
irnir, þar sem þeir geta sezt niður, aðrir en veitinga-
krárnar og bjórstofurnar, sem breiða opnar dyr móti hverj-
um sjómanni, sem á land stígur.
Og starfsmenn lestrastofanna eru einu mennirnir í
landi, sem tala við sjómennina án þe&s að ætla sér að
seilast ofan í vasa þeirra eftir þeim aurum, sem þeir hafa
unnið sér inn í baráttunni við sollnar öldur heimshafanna.
Á sjómannalestrarstofunum eiga atvinnulausir sjómenn at-
hvarf. Þar er þeim oft útvegað skipsrúm og jafnvel styrkt-
ir með fé.
Af þessu mega allir sjá, að félög, sem halda uppi
þessari starfsemi, vinna mikið og merkilegt starf, ekki að-
eins fyrir trúarbrögðin, heldur og fyrir menningu og mann-
dóm sjómannanna.
Hér á landi hefir litið verið unnið að þessu starfi
fram að síðustu árum af öðrum en Hjálpræðishernum, sem
lengi hefir haft sjómannastofur í kaupstöðum, einkum
L