Árbók Héraðssambandsins Skarphéðins - 01.01.1926, Qupperneq 14
14
jón Signrðsson). Óskuðu þeir eftir 2 mönnum í við-
bót, og- voru kosnir Ólafur Túbals og- Injgjmar Jó-
hannesson.
XIII. Sæmundur Sveinsson mintist á grein Guðm.
frá Mosdal í 3.hefti „Skinfaxa" 1925. Hvatti hann
aðgerða í því, að safna drögum til sögUi félagsskap-
ar vors, og spurði héraðsstjóm um aðgerðir hennar
í málinu. Héraðsstjóri svaraði, að sambandsstjóm
U. M. F. í. mundi gera ákveðnar till. um það o. fl.
í vetur.
XIV. þá var samþ. í einu hljóði svohljóðandi till.
frá héraðsritara:
„Héraðsþingið felur héraðsstjóm að senda U. M.
F. Akureyrar heillaóskaskeyti í tilefni 20 ára af-
mæli þess“.
XV. Stjómarkosning.
Héraðsstjórnin var endunkosin, þeir:
Héraðsstjóri : Sigurður Greipsson, glímukóngur.
Héraðsritari: Aðalsteinn Sigmundsson, skólastjóri.
Héraðsgj aldkeri: Sigurj. Sigurðsson, bóndi, Kálfholti.
Varastjóm:
Héraðsstjóri: Guðm. Ingimarsson, Efri-Reykjum.
Héraðsritari: Inigimar Jóhannesson, Eyrarbakka.
Héraðsgjaldkeri: Guðm. Pálsson, Lambalæk.
Stjóm og varastjórn voru kosnar með lófataki.
þinggerð lesin upp og samþykt.
þingi slitið aðfaranótt 11. jan. kl. 121/2-
Ingimar Jóhannesson.
Ámi ögmundssoai. Guðm. Pálsson.
i