Árbók Héraðssambandsins Skarphéðins - 01.01.1926, Blaðsíða 16
Opið bréf
til U. M. F. innan HéraðssambandsinS
„Skarphéðins“.
Kæru félagar!
Eg vil nota tækifærið, um leið og eg sendi ykkur
þinggerð héraðsþingsins, að ávarpa ykkur og ræða
við ykkur ýms þau mál, er fyrst og fremst krefjast
athygli okkar, U. M. F. í þessu héraði. Vil eg biðja
ykkur að taka mál þau, er eg drep á, til rækilegrar
íhugunar og starfa fyrir þau í félögum ykkar.
1. BindindismáL Skuldbinding U. M. F. í. byrjar
svo: „Eg undirritaður lofa því og legg við drengskap
minn, að meðan eg er félaigi innan þessa sambands
(U. M. F. I.), skal eg ekki neyta neinna áfengra
drykkja, né verða þess vísvitandi valdandi, að öðrum
séu þeir veittir“. Enginn getur verið lögmætur fé-
lagi sambandsfélags, nema hann sé háður þessari
skuldbindingu.
Ætlunarverk okkar U. M. F. er: að gera sjálf okk-
ur meiri menn, þjóð okkar þroslkaðri og land okkar
betra, en vera mundi án félagsskapar okkar. þess
vegna hljótum við að keppa eftir hverju því, sem
eyikur mannkosti okkar, en afneita öllu, er rýrir þá.
Ekkert annað er samrímanlegt hugsjón U. M. F. —