Árbók Héraðssambandsins Skarphéðins - 01.01.1926, Blaðsíða 20
20
töku í íþróttum. það er ógerlegt fyrir héraðsstjóm
að smala íþróttamönnum, auk annara anna við mótið,
og, ófært að hafa ekki trygða þátttöku nokkru íyrir-
fram. þessvegna vil eg nú heita sem kröftulegast á
alla þá, sem íþróttum unna og sóma sambandsins, að
þeir geri sitt til þesis að drífa upp sem öflugasta þátt-
töku í íþróttakepninni. Stjórnum félaganna vil eg i
því sambandi benda á b.-till. íþróttanefndar, í þing-
gerðinni.
Aðstoðarmenn við mótið þurfa félögin að leggja
til, tvo hvert. Ríður á að það séu traustir drengir og
samvizkusamir. — Auk þess vænti eg þess, að1 hverj-
um U. M. F., sem á héraðsmótið kemur, renni blóðið
til skyldunnar, svo að hann ljái lið sitt til þess að
halda þar góðri reglu, óbeðið, og lagfæra það, sem
aflaga kann að ver. pað, hvernig mótin fara fram,
hefir mikla þýðingu fyrir féiagsskapinn út á við.
Héraðsþinigið síðasta fór prýðilega fram og gefur
ágætar vonir um framtíð „Skarphéðins“. Er sjald-
gæft að hitta á mannfundum j afn-samstilta krafta
og þar voru. Ber það af undangengnum þingum, og
hafa þau þó góð verið. Vil eg þakka félögum þeim,
er fulltrúa sendu, fyrir vel valda sendimenn; og góðan
undirbúning þingmálanna. Væri æskilegt, að ekkert
félag léti framar undir höfuð leggjast að senda menn
á héraðsþing.
Að svo mæltu óska eg U. M. F. árs og friðar, og
bið þá muna jafnan kjörorðið:
í s 1 an d i a 11!
Eyrarbakka, 7. febr. 1926.
Aðalsteinn Sigmundsson,
héráðsritari.