Alþýðumagasín - 01.11.1933, Síða 10
ELSTA kona í Englandi er ný-
dáin, í sveitaþorpinu Sidcup
í Suður-Englandi.
Agnes Jenkens hét konan og
varð 107 ára gömul. — Það er
fullyrt að hún hafi aldrei stígið
fæti sínum inn í járnbraut, eða
upp í bil. — Þangað til hún var
85 ára rak hún búskap sinn sjálf
og vann alla útivinnu, og þegar
hún var 90 ára gömul, dansaði
hún í brúðkaupi eins barna-barns
síns.
MARGIR kannast við hinar
ýmsu íþróttategundir, eða
tilraunir til að reyna að fara ferða
sinna um sjóinn á öðru en hinum
algengu bátum og skipum. — Það
hafa komið fram sjóskíði, sjósleð-
ar, sjó-reiðhjól o. s. frv. en allar
þessar tilraunir hafa aðeins orðið
tískuíþróttir, sem hafa komist i
móð svo og svo langan tíma á
vissum stöðum. Hér á myndinni
sést nýjasta uppfyndingin á þessu
svíði. — Og sést að nú hafa
menn tekið vélaaflið í þjónustu
sína.
EITT hryllilegasta morð sem
sögur fara af var framið
haust í New York. — Hefir það
jafnvel vakið viðbjóð og umtal í
glæpaheiminum þar og má þá
nærri geta að langt er gengið.
Það var dönsk stúlka sem myrt
var, Betty Karlsen að nafni. Hún
hafði haft leyniknæpu alræmda
í borginni á 3. Avenue á horninu
á 79. götu. Hægri hönd hennar
og umsjónarmarmaður við smygl-
unina var ítali nokkur Tony
Marino, sem var jafnframt einn af
helstu mönnum, stærsta ítalska
glæpaflokksins í borginni]
Um miðjan sept s.l. dó svo
Betty Karlsen snögglega, — úr
lungnabólgu, og gaf þektur lækn-
ir dánarvottorðið. Skömmu síðar
sneri Tony Marino, sem nú hafði
yfirtekið alt eftir Betty, sér til lif-
tryggingarfélagsins Metropolitan,